Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1949, Side 9
- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Jgfc’S -1 ‘ 9 ' ' .17
• • * /
EINKENNILEG VERSLUNRBRJEF
S JÉRA Eggert Sigfússon í Vogsósum var einkennilegur maður á
marga lund. Hann skifti öllum mönnum í tvo flokka, lóma og skúma.
A hans dögum var enginn sími og voru því brjefasendingar miklu tíð-
ari þá en nú. Brjef sjera Eggerts voru einkennileg eins og hann sjálfur.
Hjer birtast fjögur viðskiftabrjef frá honum. Eru frumritin í hand-
liiasatni Lbs. 1838, 4to.
Fjögur brjef til Helga Jónssonar
verslunarstjóra á Eyrarbakka
Vogsósum
12. nóv. ’91
KOL
Meðtekin kol, í 4 pokum. Það
vantar upp á vigtina í tveinnir
pokum. Jeg hefi vegið reipin og
pokana, sem kolin voru í. Það sem
vantar er: 16 pd. En annað er
verra: Það var niylsna í kolunum;
en mjer var lofað kast-kolum. —
Einar í Beggjakoti, sem sótti kolin.
segir, að kolin hafi verið afhent
af tveimur vitlausum strákum; svo
vitlausum, að þeir hafi ekki þekt
muninn á mylsnu og kastkolum.
E. Sigfússon.
Vogsósum
6. Nóv. 1894
Mig minnir, að þjer ætlið að láta
mig hafa „Nordstjernen" á 3 kr.
Blað þetta kostar: 5 kr. Og er þá
efnið miðans, að biðja yður að láta
mig vita, frá hvaða tíma þjer ætlið
að panta blaðið (t. d. frá 1. Jan.
1895). Þetta illústreraða Familíu-
blað, sem jeg held, er það mesta
askotans þjatt. „Nordstj.“ er betra
blað. Það get jeg borið um.
V. s. legast
E. S
Utan á spássíuna er skrifað (og blý-
antsstryk á milli): Jeg man ekki ná-
kv.lega hvað við töluðum, um þetta
málefni.
, Vogsósum
19. Mars ’97
Viljið þjer útvega fyrir mig: tvö
pd. af góðu Reyktóbaki, á Bakkan-
um (c: sem brúkað er í litla pípu)?
Því að um vertíðina fæst ekki mað-
ur, til að fara í kaupstað. Mjer er
sagt, að ekki fáist Reyktóbak í
Höfninni. Svar umbiðst ritað fyrir
neðan rauða strykið.
V. s. legast.
E. S.
Skrifað á lítinn miða og stórt rautt
stryk sett þvert fyrir neðan nafnið. en
rúm fjrrir 3—4 línur fyrir neðan það.
Feitletruðu orðin eru undirstrykuð
með rauðkrít.
Vogsósum
31. Jan., ’99
í brjefi 18. nóv. 1898 kveðst Pró-
fastu^ vilja, að Kirkjureikningar
sjeu sendir, sem fvrst eftir Nýár.
Það er því sjálfsagt, að jeg verð.
að senda Kirkjureikninginn: strax
með næsta Pósti.
E. S. (með blýant).
í áðurnefndu brjefi, tilfærir Pró-
fastur áþreifanlegt dæmi, uppá
hinn íslenska slóðaskap. Hann seg-
ir: „Fyrir lok síðasta Maí voru
komnir til mín aðeins 14 reikning-
ar, og fyrir Hjeraðsfundinn 16, eða
rúmur helmingur. Síðan hafa þeir
verið að koma, smátt og smátt, og
einn Reikningur fyrir 1897, sem
von var á, er enn ókominn“. Svona
kemst Ó. að orði.
rq -ib;
■ /. Einhver hefir kallað Svía-
„Nordens Franskmænd“. En ís-
lendingar ættu, finst mjer, að heita:
„Nordens Spaniere". Slóðaskapur-
inn er svo mikill, að Landsmenn
hafa ekki framkvæmd í sjer til, að
búa til lögboðna Reikninga í tæka
tíe.
E. S.
En í hinni vinstrimannalegu
Golu ætlar þjóðin að kafna (Bætt
við með blýant).
Brjef til Jóns Árnasonar í
Þorlákshöfn.
.. * .. r- ■
Vogsósum
28. mars 1896
Athugasemd
í reikningi pró 1895 er mjér fært
til skuldar 28. maí:
8 pd. Skonrók, á 25 a!!
Brauð þetta er með öllu óætt.
Þórður mælti: „Ef einhvér kaup-
maður í R.vík hefði slíkt brauð,
mundi hann fleygja því fram fyr-
ir bryggju“. — Að slík vara sje
viljandi látin af hendi, er ekki
hugsanlegt. Líklegast er, að sjó-
vætt strandskonrok hafi verið í
tunnu nálægt óskemda skonroki;
og að afhendingarmaður hafi farið
tunnu vilt. En það er ^kylda selj-
anda, að hafa gætur á slíku. Jeg,
sem áreiðanlegur viðskiftamaður á
beina heimtingu á, að mjer, sje
ei boðið slíkt.
Þetta stendur í sam.bandi við
það, að þú gjörir þjer of dælt við
mig. Það hefi jeg oft orðið var við,
er jeg hef komið í Höfnina. Þú
hefur alls ekkert Privilegium til að
segja við mig alt, sem þjer déttur
í hug. Jeg skal hjer geta eins at-
viks: Fyrir allmörgura árum :kom
jeg í Höfnina. Þegar. jeg-.vár kom-
inn, komu austan afc Eyraxbakka