Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1949, Blaðsíða 1
37. tölublað.
Sunnudagur 9. október 1949.
XXIV. árgangur.
Ernst Pollatschek:
2
BAK VIÐ JÁRIMTJALDIÐ.
Sannleikurinn um „Sæluríki“
III. KAFLI
Hlutverk stjettarfjelaganna.
Á VESTURLÖNDUM hafa stjettar
fjelögin leyst af hendi framúrskar-
andi starf, til að bæta kjör og menn
ing fjelaga sinna — og annara
verkamanna líka — og halda þessu
starfi enn ótrauð áfram hjerna
megin Járntjaldsins.
En hvað er þá um starfsemi
stjettarfjelaganna bak við járn-
tjaldið?
Þar hefir orðið stórkostleg breyt-
ing á hlutverki stjettarfjelaganna
í tíð sovjetstjórnarinnar- í opinberu
stjórnarmálgagni er svo sagt frá
deilum, sem urðu á allsherjarþingi
stjettarfjelaganna sem haldið var
í desember 1928.
„Stjórn sambands stjettarfjelag-
anna barðist með hnúum og hnef-
um gegn nýskipan stjettarfjelag-
anna. Flokkurinn vildi að stjettar-
fjelögin ynnu alveg jöfnum hönd-
um að viðgangi ríkisrekstursins og
bættum kjörum verkamanna, en
hægrimenn (þar er átt við hina
svonefndu „hægri andstöðu“ í
hinna vinnandi stjetta
stjettarfjelögunum) töldu, að hlut-
verk stjettarfjelaganna væri ein-
göngu það, að gæta hagsmuna fje-
laga sinna“.
Það er alveg Ijóst, að flokkurinn
sigraði í þessari deilu. Það var
vegna þess, að hann hafði ríkis-
valdið á bak við sig. Stjórn stjettar-
fjelagasambandsins, með Tomski í
broddi fylkingar, var sett af 1929.
Hvað mundu verkamenn vorir
segja, ef ríkisstjórnin dirfðist að
setja sambandsstjórn þeirra af?
Slíkt hefir hvergi komið fyrir,
nema í Rússlandi og leppríkjum
þess, og svo í Þýskalandi á dögum
Hitlers.
Eftir sigurinn yfir stjettarfjelög-
unum var komið þar á þeirri ný-
skipan sem flokkurinn vildi. Frá
þessu er skýrt í riti, sem nefnist
„Sovjetríkið“ og var gefið út af
jafnaðarmannaflokknum í Sviss
árið 1947-
„Eftir að Tomski hafði verið sett-
ur af, og svokölluð „hreinsun“ far-
ið fram í stjettarfjelögunum gekk
í gildi ný stefnuskrá um hlutverk
stjettarfjelaganna. Var aðalkjarni
hennar, að allir legðust á eitt, með
að auka sem mest afköst í öllum
iðngreinum, að fastakveða launa- !
flokka, að auka „vinnuagann“, að
koma á stað „sósíalistiskri vinnu-
,
samkeppni", að auka framleiðsluna
með því að innleiða í stórum stíl
„Stachanovaðferðina“, og vinna að
þjóðarhag og velgengni. — Þann-
ig voru stjettarfjelögin gerð að
einu hjóli í stjórnarvjelinni, og
þeim nákvæmlega afmarkaður bás
Um svo þýðingarmikið atriði
sem launakjör, hafa þau ekki fram-
ar neitt að segja.
Síðan 1935 hefir ekki um neina
vinnukjarasamninga nje launa-
samninga verið að ræða. Það er á-
kveðið hve mikið af ríkistekjun-