Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Síða 1
4 FIMTÍU ÁRA AFMÆLI SÍNU VAR REVKJAVÍK TORFBÆABORG ÞEGAR Reykjavík fekk kaupstað- arrjettindi, fór fram útmæling á verslunarlóðinni, sem var aðeins „Kvosin“, milli sjávar og tjarnar, milli Grjótahæðarinnar og læksins. Auk þess voru henni lögð tún Hóla- kots og Melshúsa. En aðrar hjáleig- ur jarðarinnar Reykjavík: Landa- kot, Grjóti, Götuhús, Stöðlakot og Skálholtskot urðu utan við í út- mælingargerðinni, sem er dagsett 12. febrúar 1787, segir svo um þessa ráðstöfun: — Þessar hjáleigur var ekki talið nauðsynlegt að leggja til kaupstað- arins, því að það sem honum hefur verið lagt virðist kappsamlega nóg. En skyldi svo ólíklega ske einhvern tíma, að Reykjavík þyrfti á meira landrými að halda, þá má bæta við þessum hjáleigum, með leyfi hans hátignar konungsin-s, sem er eig- andi þeirra. — Fljótlega kom upp óánægja út af því, að þeir, sem áttu heima innan kaupstaðarlóðarinnar, skyldi ekki hafa neinar nytjar úthaga Víkur- jarðar. Varð það til þess að fram fór mat á ellu landi jarðarinnar, og að því loknu lagði stiptamtmaður til, að úr því að nokkur hluti af Reykjavík hefði verið út lagður til kaupstaðar, yrði úthagar jarðarinn- ar að fylgja honum þannig, að íbú- ar kaupstaðarins hefði sameiginleg- an afnotarjett þeirra eftir þörfum á borð við aðra landeigendur. Á þetta felst stjórnin með úrskurði 19. apríl 1788. Upp úr 1790, þegar innrjetting- arnar eru að syngja á sitt síðasta vers, fyrirskipaði Rentukammerið nýja útmælingu. Hún var fram- kvæmd í maí 1792, og var þá bætt við kaupstaðarlóðina Skálholts og Stöðlakots lóðum. Með þessu var þá kaupstaðarlóðin endanlega á- kveðin, og helst hún þannig óbreytt um heila öld, eða fram til 1892. Þannig var þá afmarkað það svæði, þar sem menn máttu versla. Utan við það mátti engin verslun vera. En þetta var ekki öll Reykja- vík. — Eftir sem áður var kölluð Reykjavík öll sú bygð, sem var á landareign jarðanna Víkur, A.rnar- hóls og Hlíðarhúsa, og þar með tal- in kirkjujörðin Sel. Nyrst í Kvosinni (við Aðalstræti) voru þá kongsverslunarhúsin, ný- lega flutt þangað utan úr Örfirisey. Þau voru öll úr timbri. Syðst við

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.