Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Qupperneq 2
LíxoxjUxy AxUxwijUxixjiuviJomo 494 Aðalstræti var kirkjan, og unihverf is hana húsaþyrping innrjetting- anna. Af nær 30 húsum og kofum þar voru aðeins sex úr timbri. Hin húsin voru úr torfi og grjóti. Torf- bæir voru á öllum hjáleigunum og eins á Arnarhóli, Hlíðarhúsum og Seli. Þá voru og komnir nokkrir torfbæir tómthúsmanna í Grjóta- þorpi, og einn, Þingholt, fyrir ofan læk. ÞESSI var þá stofninn að höf- uðborg íslands: 9 eða 10 timbur- hús, en allar aðrar byggingar úr torfi og grjóti. Þá voru íbúar Reykjavíkur taldir 167 alls, en í Reykjavíkurkirkjusókn (sem nóði einnig yfir Nessókn og Laugarnes- sókn) voru alls 302 sálir, en íbúar landsins voru þá alls taldir 38 363. Móðuharðindin voru þá nýgenrin um garð og árið 1785 höfðu lát- ist 83 í Reykjavíkursókn, 36 í Nes- sókn og 33 í Laugarnessókn, ..flest úr vesöld, niðurgangi og kreppu- sótt“ eins og segir í kirkjubókinni. Hjer voru því óglæsilegir tímar. er hin nýa borg reis á legg. Á næstu árum fjölgar þó mjög timburhúsum í kvosinni. Og á næstu áratugum fjölgar einnig mjög þurrabúðarmönnum. Þeir reistu sjer torfbæi, flestir utan við Kvosina. Tók þá að myndast bygð í Skuggahverfi • og Þingholtum og Grjótahverfið að stækka. Reykja- vík varð þannig tvöföld í roð;nu. Annars vegar voru timburhúsin í Kvosinni, flest eign erlendra kaup- sýslumanna, en hins vegar torf- bæir íslendinga. Þegaf þcssa er gætt má segja að íslendingar hafi upphaflega bygt höfuðborg sína úr torfi. Og þannig er hún álitum á 50 ára afmæli sínu. í Landsbókasafninu er gevmt handrit að skrá um torfbæi í Rvík 1830 og bætt við nokkrum, sem bygðust á næstu arum, eða alt fram að 1840. Skrá þessi er samin af Jóni Jónssyni prentara í Stafni. Hefir hann tekið hana sam- an á gamals aldri (1866) og má því vera að einn og einn bær hafi gleymst, annaðhvort vegna þess. að höfund hafi mint að hann væri rifinn fyrir þennan tíma, eða bygð- ur seinna. En skrá þessi sýnir þó greinilega hvernig Reykjavík hefur verið á svipinn þegar hún hafði náð fimmtugsaldri. TORFBÆIRNIR í Reykjavík voru yfirleitt ljelegri heldur en sveitarbæir, enda var þeim venju- legast hrófað upp af litlum efnum. Til er lýsing á torfbæunum, er Þorbergur Þórðarson rithöfundur skrifaði eftir frásögn Ólafs Jóns- sonar fiskimatsmanns, sem fæddur var í Hlíðarhúsum 1856 og segir þar meðal annars svo: — Öll úthverfi Reykjavíkur voru langt fram eftir aldarhelm- ingnum eintómir torfbæir að heita mátti. Hver bær var tíðast tvö hús, er stóðu hlið við hlið. Annað hús- ið var til íbúðar, hitt til elda- mensku og geymslu. Veggir voru hlaðnir úr torfi og grjóti, fram- stafnar sumstaðar úr torfi og grjóti, upp að glugga og þar fyr- ir ofan gerðir úr timbri, en ann- ars voru þeir allir úr timbri Aftur- stafnar voru ýmist úr torfi og grjóti upp að glugga og efri hlutarnir úr timbri, eða þeir voru úr torfi og grjóti upp úr og þá gluggalausir. Þá hjetu þeir gaflöð. Framstafnar sneru venjulega til suðurs, stund- um til austurs. Sperrur voru að jaínaði krossreistar (mynduðu 90 stiga horn í mæni). Stundum voru þær með kalfa í mæni Á sperrunum var skarsúð á íbúðar- húsunum, en refti á eidhúsi og geymslu. Þar ofan á kom torf- þekja. Á milli þekjunnar og súð- arinnar var hvorki tróð njc hella. Laugt fram eftir aldarhelmingn- um voru hjer til torfbærr, sem voru með moldargólíi og höfðu refti eitt og torf í stað súðar. Rúm- stæðin voru bálkar, hlaðnir úr torfi og grjóti, og þá var dreift heyi undir sængurfötin. — Þrifnaður stóð á þessum tím- um í flestum greinum að baki því, sem nú tíðkast, enda voru skilyrði flest til þrifnaðar þá margfalt verri en nú á tímum. Gólf voru venjulega þvegin tvisvar í \ ikr', á miðvikudögum .og laugardögum, en aðra daga voru þau oftast sóp- uð með fuglsvæng. Gólf voru aldrei þvegin úr sápu, heldur aðeins úr vatni og fínum sandi, sem sóttur var niður í fjöru. Eftir þvottinn var stráð á þau hvítum skeljasandi, sem fluttur var í pokum utan úr Örfirisey. Gólfdúkar eða teppi voru þá ekki til. Hvíti skeljasand- urinn var því fyrsti vísir til dúka og teppa á gólfum. Honum var dínnig stráð í ganga og bæjardyr, þótti það hreinlegra og fallegra. Sjaldnast voru vanhús við torf- bæina. Karlmenn gengu örna sinna út um holt og niður að sjó, en börn og kvenfólk hægði sjer í nætur- gögn, sem tæmd voru í hlandíor- ir eða á sorphauga, er voru tieima við flesta bæi.------ Þessu ber saman við lýsingu Mackenzie, sem hjer var á ferða- lagi 1810. Hann kom að prestsetr- inu Seli. Þar átti þá heima Brynj- ólfur Sigurðsson dómkirkjuprest- ur. Segir Mackenzie svo frá: — Presturinn mætti okkur við dyrnar á kofaræfli, og leiddi okk- ur inn löng, dimm og skítug göng framhjá allskonar drasli, fram hjá manni, scm var að berja harðfisk, og inn í dimt herbergi. Það var svefnherbergi fjölskyldunnar og hið besta á bænum. Þakið var svo lágt, að maður gat varla staðið upprjettur, og þar var tæplega rúm fyrir nokkurn hlut ncma hús- gögnin, cn þau voru: rúm, klukka, lítil kommóða og glerskápur. —

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.