Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Qupperneq 4
496
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
í Reykjavík. Seinna bjó þar Jón
Jónsson orðlagður sjósóknari, f?>ð-
ir hinna kunnu Sölvahólsbræðra,
Jóns og Steingríms. Hús S I S.
var bygt rjett við bæinn. Lagð-
ist hann litlu síðar í eyði og var
rifinn).
8. Klöpp var bygð 1838, rjett fyr-
ir vestan Skuggabæinn, en Skuggi
er nú eyðilagður. (Bærinn stóð á
hárri klöpp niður við sjóinn, rjett
fyrir austan Klapparvör, sem var
aðallendingarstaður á þ^ssum slóð-
um. Þar standa nú olíugeymar
B. P.)
9. Móakot var bygt sama árið,
1838. (Það var beint upp af Kveld-
úlfshúsunum. Þar bjuggu einu
sinni Jóhannes Guðmundsson og
Sólveig Sigurðardóttir. Hún hafði
áður átt Guðlaug Ólafsson frá
Helgafelli og var sonur þeirra Ólaf-
ur í Hlíðarhúsum (d. 1894), faðir
sjera Þórðar á Söndum, föður Sig-
urðar tónskálds).
10. Svo var Snússa, þar sem
gamla Hólshúsið er. (Býli þetta
stóð á ofurlitlum hól og hjet upp-
haflega Litlibær. Lárus Hallgríms-
son (bróðir sjera Sveinbjarnar)
bygði það upp og var það þá kall-
að Lárusarhús, en hlaut seinna
nafnið Hólshús. En í daglegu tali
var það kallað Snússa. Halldór
Þórðarson bókbindari ljet rífa það
og bygði þar tvílyft timburhús,
sem nú er Laugavegur 4).
11. Garðshorn rjett fyrir ofan
þar sem hús Helga Hálfdánarson-
ar er núna; það stóð þar inn í
Landshöfðingjatúnið, en var rifið
þegar Hilmar Finsen var hjer st’pt-
amtmaður. (Það var rifið 1868. Nú
er þar verslun Jóns Björnssonar
& Co.)
12. Bergstaftir þar sem þeir eru
nú (á horni Skólavörðustígs og
Bergstaðastrætis. Þar bjó eitt sinn
Páll Eyjólfsson gullsmiður, sem
jafnframt gaf sig við blaðanvensku
og gaf út um nokkur ár blað, sem
„Tíminn“ hjet).
13. Pjetursbær. í efri Þingholta-
röðinni var norðast gamall bær,
sem Jón sálugi Markússon átti og
reif hann og bygði upp aftur, sem
nú á Pjetur Stephansson Ottesen
skósmiður. (Þessi bær hjet að
rjettu lagi Bjarg og var nyrsta
býlið í „Nýu Þingholtum“, en svo
nefndist fyrst bygðin við Ingólfs-
stræti. Lárus G. Lúðvígsson skó-
smiður keypti seinast bæ þenna og
reisti þar steinhús, sem enn stend-
ur, Ingólfsstræti 3).
14. Þar rjett fyrir ofan Skafta-
bær, sem kallaður er. (Þessi bær
hjet áður Miðbýli, en seinna dró
hann nafn af Skafta Skaftasvni
járnsmið og smáskamtalækni. Þessi
bær stóð þar sem nú er verslun
Jóh. Árm. Jónssonar).
15. Stafn. Fyrir sunnan Pjetuis-
bæ er bær, sem Einar heitinn póst-
ur átti og nú býr í honum Jón
Jónsson prentari. ( Þarna bjó og
lengi Alexíus Árnason lögreglu-
þjónn. Nú er þar Ingólfsstræti 5.)
16. Þar rjett fyrir ofan Miðbýlis-
kot, sem nú er rifið. (Hjet seinna
Rannveigarbær).
17. Ofanleiti. Næst fyrir simn-
an Jóns prentara bæ er Ofanleiti,
sem var bygt af Pálma sál. snikk-
ara. (Þar bjuggu Jón Árnason (d.
1859) og Guðbjörg Jónsdóttir. Dótt-
ir þeirra, Gróa „skreðari“ átti Frið-
rik Gíslason verslunarmann og
þeirra dóttir var Júlíana kona
Hjartar Þórðarsonar hugvitsmanns
í Chicago. Seinna bjuggu þar
Magnús Magnússon (faðir Þórðar
bókbindara og Magnúsar prentara)
og Guðmundur Sigurðsson faðir
Sigurðár, er lengi var skrifstofu-
stjóri Eimskipafjelagsins. Bærinn
var rifinn 1896 og nú er þar Tng-
ólfsstræti 7).
18. Grímsbær. Þar fyrir sunuan
Melbysbær eða Grímsbær, sá var
álitinn elsti bær í þeirri röð; hann
er nú rifinn og þar bygt Amtmanns
húsið. (Þessi bær var kendur við
Grím Bjarnason, sem bygði hann.
Grímur tók sjer nafnið Melby og
þess vegna var bærinn á seinni ór-
um kallaður Melbysbær. Grímur
var tengdafaðir Árna Gíslasonar
leturgrafara. Grimsbær var rifinn
1879 og bygðu þeir Theodór Jónas-
sen og Magnús Stephensen bar
stórt tvílyft timburhús. Þar er nú
Ingólfsstræti 9).
19. Pálsbær. Þar fyrir sunnan
Pálsbær. (Þessi bær var kendur
við Pál Magnússon afa Magnúsar
Magnússonar skipstjóra. Þarna
bygði Halldór Þórðarson seinna
vandað steinhús, sem nú á Óskar
Halldórsson útgerðarmaður, Ing-
ólfsstræti 21).
20. Brenna. Upp undan hans
(Pálsbæar) bletti var Brenna, sem
nú er rifin og bygt þar steinhús.
(Þarna bjuggu Ingimundur Þor-
björnsson frá Ártúnum og Þuríður
Eiríksdóttir. Dóttir þeirra var Gróa,
sem Gróubær var við kendur. Son-
ur þeirra var Jón sjóklæðasaum-
ari, faðir Guðríðar, er giftist Jón-
asi Guðbrandssyni, steinsmið og
bjuggu þau langa ævi í Brennu.
Þeir bræður Magnús og Jónas Guð-
brandssynir rifu bæinn og bygðu
þar steinhús, sem enn er kallað
Brenna — á horni Spítalastígs og
Bergstaðastrætis).
21. Sigurðarbær. Fyrir sunn-
an Pálsbæ var Sigurðarbær og var
bygður nokkru seinna. (Hann var
kendur við Sigurð Jónsson snikk-
ara bróður Jóns prentara. Sonur
Sigurðar var Rafn skósmiður. Þessi
bær hjet annars Norður-Berg. Þar
er nú Ingólfsstræti 23).
22. Zakaríasarbær. Þar fyrir sunn
an Zakaríasarbær, er nú rifinn og
þar komið steinhús. (Þessi bær var
fyrst bygður af Erlendi syni Run-
ólfs Klemenssonar verslunarstjóra
og var hann þá kallaður Berg. Sig-
ríður dóttir Erlends giftist Zakarí-