Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Page 6
498 LESBÖK MORQJJNBLAÐSINS son bæjarfulltrúi kotið, en tengda- sonur hans, Þorsteinn Tómasson járnsmiður reif það og reisti þar smiðju sína. Þar er nú skrifstofa Almenna byggingafjelagsins). 38. Grænibær, þar sem nú stend- ur hús Ólafs gullsmiðs. (Líklegt er talið að Páll Breckmann kauppm. liat’i látið byggja þennan bæ. því að hann stóð á lóð þeirri, er honum hafði verið útmæld. Þetta var all- reisulegur bær. Þar bjó einu sinni Diðrik Hölter skósmiður og var þá kallaður Höltersbær. Seinast átti James Robb hann og ljet rífa hann 1848 og bvgði þar timburhús Það hús eignaðist Ólafur Sveinsson gullsmiður, ljet rífa það og bygði annað hús fram við götuna. í Grænabæ var Egill Jónsson bók- bindari fæddur. — Nú stendur þarna hið mikla hús Búnaðarbank- ans). 39. Malínubær. Svo var Mah'nu- bær, sem Oddur sál. Guðjónsson átti og gerði að timburhúsi, sem Þorkell snikkari á núna. (Þennan bæ bygði fyrst Teitur Sveinsson vefari 1797 og var hann þá kallað- ur Teitsbær. — Teitur var verk- stjóri hjá klæðaverksmiðjunni. A.r- ið 1824 bygði Hannes Gissurarson Olsen trjesmiður bæinn að nýu. Kona hans var Magdalena eða Malena — dóttir Jóhannesar Zccga og fjekk bærinn þá nafnið Malínu- bær. Oddur Guðjónsson trjesmið- ur eignaðist bæinn um 1850 og reisti þar timburhús. Þar bjó síðan Pjetur Guðjónsson organisti, bróð- ir hans. Þar er nú Tjamargata 8). 40. Guðmundarbær. Þar rjett fyrir sunnan var lítill bær, scm átti Guðmundur hríshaldari, öðru nafni kallaður „Fjósarauður“ og hans kona Margrjet, kölluð „skarn í a‘uga“. Þar bygði Þorkell snikk- ari hús í sumar 1886. 41. —42. Suðurbæir. Þar fvrir sunnan, þar sem kálgarðarnir eru núna frá Þorkeli snikkara og Mad- dömu Guðjónssen, voru tveir bæ- ir, kallaðir Suðurbæir. (Þar var áð- ur bústaður lóskera innrjetting- anna. Bæir þessir stóðu þar sem Vonarstræti endar nú milli Suð- urgötu og Tjarnargötu. í öðrum bænum bjó lengi Ólafur Jónsson tómthúsmaður, sá er seinastur allra var settur í gapastokk hjer á dög- um Frydenbergs. Suðurbæirnir voru rifnir nokkru eftir 1860 og þótti landhreinsun að þeim. því að þeir voru ekki bæjarprýði talin). VESTURBÆRINN Þá var Melkot og Melshúsaþorp- ið í líku formi og nú er. 43. Melkot. (Þar eru tveir ábú- endur 1769, en ekki er vitað hve- nær býlið var reist. Frá 1825 bjó þar sama ættin fram yfir seinustu aldamót, fyrst Sigríður Magnús- dóttir ekkja, þá Einar sonur henn- ar og seinast Magnús sonur hans um 50 ára skeið. Þar er nú ráð- herrabústaðurinn. 44. —48. Melshús. (Þessi bær hafði upphaflega grasnyt, en þegar Hólavallaskóíi var reistur 1785 vár grasnytin lögð til hans og bærinn breyttist í tómthús. Eftir aldamct- in 1800 fer býlum að fjölga þarna og urðu þau alls fimm. í einu þeirra fæddist Jón Guðmundsson ritstjóri Þjóðólfs. Melshúsabæirnir voru rifnir þegar kirkjugarðurinn var gerður, að bæ Bjarna Matthíasson- ar hringjara undanteknum, en sá bær var rifin 1908). 49.—50. Skólabærinn (eða Skóla- bæirnir. Þeir voru reistir á lóð Hólavallaskóla eftir að hann var rifinn 1807. í öðrum bænum bjó Jón Valdason, annálaður atorku- maður, einhver sá fyrsti sem gerði sjer akstur að atvinnu. Þarna er nú Suðurgata 26). 51.—52. Hólakot. (Það var upp- haflega grasbýli, en nokkuð af grasnyt þess var lagt undir inn- rjettingarnar og þá kallað „Ullar- stofutún“, en það, sem eftir var seinna lagt undir Hólavallaskóla. Þama voru einu sinni tveir bæir og margbýli. Þar bjó lengi Gissur Magnússon næturvörður, sem gekk um göturnar með gaddakylfu, stundaglas og ljósker. Hólakot <dóð þar sem nú er Garðastræti 41, eða milli þess og Suðurgötu 16) Grjótaþorpið var líkt og nú. 53. Hclgabær þar sem hann er. (Þetta var syðsta býlið í Grjóta- þorpi. Þann bæ bygði Helgi Eyólfs- son frá Bútsstöðum um 1830. Þarna bjó Jón Borgfirðingur um hríð

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.