Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1949, Side 15
LESBOK MORGUKBLAÐSINS 507 SKALDIN EDWIN CERIO rithöfundur og auðug- asti maður á litlu eynni Capri, sem er skamt undan Neapel, hefur nýlega gef- ið út bók um þau skáld, sem dvalist hafa á eynni síðan hann man eftir. Hann er nú sjötugur og var íaðir hans læknir þarna. Fyrstu skáldin, scm uppgötvuðu þessa itölsku paradís, voru af ger- mönskum ættum. Þar voru fremstir í flokki H. C. Andersen danska ævin- týraskáldið og þýska skáldið Gerhard Hauptmann. Svo kom þýska Ijóðskáld- ið Rainer Maria Rilke og orkti þar angurvær ástaljóð. Þar næst kom sænski rithöfundurinn og læknirinn Axel Munthe. Þarna ritaði hann bók sína „San Michele", sem hefur orðið frægust allra bóka næst bibliunni, gefin út á 32 tungumálum og alls staðar metsölubók. Skömmu eftir aldamótin kom þang- að ungur enskur læknisstúdcnt, til þess að eyða sumarleyfi sínu á ódýran hátt. Hann gat þá dvalist þar í tvo mánuði og dvalarkostnaður, ásamt fargjaldi báðar Jeiðir, var ckki ncma 20 Stcr- lingspund. Hann hjet William Somcrsct Maugham, og hann varð ekki læknir, hcldur rithöfundur, og hann hcfur haldið trygð við Capri siðan. Joseph Conrad ritaði fyrstu fimrn smásögurnar sinar á Capri, en ;íðan settist hann að á Englandi. Einn af kunnustu rithöfundunum á Capri er Norman Douglas. Hann er Englendingur og nú rúmlega áttræður að aldri. Þegar hann var ungur var hann við sendisveit Breta í Pjetursborg í Rússlandi, en hvarf frá því starfi til þess að ferðast um Ítalíu og hafnaði á Capri. Þar ritaði hann skáldsögu, sem hjet „Siren Land". Hún fjekk heldur kuldalegar móttökur, er hún kom út. Fáir vildu kaupa hana og scinast var upplaginu fleygt. En nú sclst hver bók af þcssari útgáfu fyrir meira heldur cn höfundurinn fckk i ritlaun fyrir hana. Douglas hcfur ritað ævisögu sina og scgir þar frá því er hann kom fyrst til Capri. Þá keypti hann þar ljómandi skógarspildu fyrir sama sem ekki neitt, °g bygði þar sjálfur ævintýrahús. — Seinna l' nti hann í fjárkröggum og ím.U það. I aeinaita -Luðj var hani'i j Lnglandi, en hefur nú horfið aftur til Á CAPRI Capri. Kona hans er dáin og einkason- ur hans er rithöfundur í Ameríku. En í fyrsta skifti á ævi sinni er hann nú „á hinni grænu grein", því að Mctro- Goldwyn-Mayer kvikmyndafjelagið hefur keypt af honum rjettinn til að filma skáldsögu cftir hann, scm heitir „Sunnanvindur". Húsið „II Rosario", scm gnæfir yfir dimmblátt hafið, þar scm þeir rithöf- undarnir Thornton Wilder, Hugh Wal- polc og Campton Mackenzie áttu áður heima, er nú eign Graham Green og þar býr hann og er að breyta skáld- sögunni „Sunnanvind“ í kvikmynda- leikrit. Þeir Norman Dotlglas hafa því mikið saman að sælda, og hittust dag- lega í sumar í veitingahúsi til þess að ræða um þetta efni. Einn af hinum kunnu rithöfundum á Capri er Francis Brett Young. Hann las upphaflega læknisfræði eins og vinur hans Somerset Maugham, en misti heilsuna í stríðinu í Vestur-Afriku á árunum 1914—18. Hann fór þá fyrst til Capri 1919 sjer til hcilsubótar og dvaldist þar samflcytt í 10 ár og vann að ritstörfum. Einkcnnilegastur af öllum rithöfund- unum á Capri — og cf til vill sá skyn- samasti — er Þjóðverjinn barón Gluck. Hann er nú um sextugt, hár og gjörfu- legur maður. Hann lifir aðallega á nið- ui’soðnum þýskum blóðpylsum, sem enginn ítali mundi vilja leggja >sjer til munns. Hann sjest stundum á gangi með prinsessu Pignatelli, sem er mynd- höggvari. Hún er altaf með kofra á höfði og blæju fyrir andliti. Hún hefur sagt: „Þegar jeg var 16 ára gömul, sannfærðist jeg um það að jeg mundi aldrci verða laglcg, og þess vegna tók jcg þann kost að vcrða cinkennileg. ..“ Henni hcfur tckist það. Gluck barón vinnur að ritstörfum alla daga og stundum langt fram á nótt. En þcgar hann hcfur lokið við handrit að cinhvcrri bók, gcngur h.mn mcð það fram á háan klctt skammt frá húsi sínu og fleygir því í sjóinn. Hann var spurður að því hvers vegna hann gerði þetta og þá svaraði hann: „Mcð þcssu móti nýt jcg þcirrar ánægju að festa hugsanir ntinar á (tjþpir, og losa svo 3^14 vjð það omak að lesa það, sem jeg hef sknfað." Barnahjal Faðirinn fór í gönguför með son sinn. Eftir nokkra stund fór drenghnokkinn að dragast aftur úr. — Geng jeg of hratt, góði minn?“ spurði pabbi. — Nei, það er bara jeg scm gcng of hægt, svaraði sá litli. ★ Ella átti afrnæli. Rjctt áður cn gestirnir komu sagði hún við mömmu sína: — Jeg vona að jeg fái margt fallegt frá telpunum. — Þú átt ekki altaf að vera að hugsa um það að fá eitthvað, sagði mamma. Þú verður líka að hugsa um að gefa. — Jæja, jæja, þá vona jeg að telpurnar gefi mjer mikið, sagði Ella. ★ Það var verið að reyna að kenna Júlla að þekkja á klukku. — Þetta eru klukkustundirnar, þctta eru mínúturnar og þctta- cru sekúndurnai-, og mundu það nú. Júlli glápti um stund eins og sauður, cn sagði svo: — Hvar eru augnablikin. ★ Stjáni var ekki nema fjögurra ára þegar hann eignaðist systur. Foreldrarnir voru dauðhrædd um að hann mundi verða af- brýðissamur og kynokuðu sjer við að segja honum frá þessu. Seinast kom þeim saman um að þau skyldu láta hann uppgötva það sjálfan. Mamma kom heim af fæðingardeildinni eftir að Stjáni var sofnaður og svo var vaggan mcð litlu systur sett fram an við rúniið hans. Stjáni vaknaði sncmma na'sta i morgun og þcgar hann sá litla ! barnið þarna fyrir framan sig varð hann himinlifandi af kæti og spurði: — Á jeg þetta? Honum var sagt að svo væri. I Upp frá því átti hann litlu syst- ur — hann og enginn annar. 4 1 —............. ..........V

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.