Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1950, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1950, Blaðsíða 1
líl&ll 18. tölublað. Sunnudagur 14. maí 1950. XXV. árganguT Ivar Guðmundsson VÍÐFRÆGASTI ÍSLENDINGURINN í EVRÚPU VÍÐFRÆGASTI íslendingurinn, á meginlandi Evrópu og þótt víðar væri leitað, um þessar mundir, er án efa Albert Guðmundsson knatt- spyrnumaður. Tugþúsundir yngri og eldri knattspyrnuunnenda um alla Vestur-Evrópu þekkja og dá knattspyrnusnillinginn, „íslend- inginn Guðmundsson“, eða „Albert íslending“, eins og hann er venju- lega. kallaður í blöðunum. Og frægð hans eykst með hverjum kappleik. Eftir síðasta leik hans, í Lyon hinn 16. apríl, var Al- bert borinn „á gullstóli" um götur borgarinnar, en mannfjöldinn sýndi aðdáun sína með gleðihróp- um og dansaði af kæti í kring um knattspyrnusnillinginn íslenska, eins og Suðurlandabúum einum er lagið, er þeir hylla afreksmenn. Bestu knattspyrnufjelög í heimi, í Bretlandi, Frakklandi og Ítalíu, bjóða Albert gull og græna skóga, ef hann vilji leika með þeim. Hann hefir jafnvel fengið aðlað- andi tilboð frá knattspyrnufjelög- um í Suður-Ameríku. En öll þessi frægð og aðdáun hefir síður en svo stígið hinum unga manni til höf- uðs. Hann er eins og hann var, þegar hann ljek fyrsta meistara- flokksleikinn sinn með „Val“ í Reykjavík fyrir tæpum 10 árum. Og þegar við erum sest í snotra heimilinu hans, ásamt konu hans frú Brynhildi og litlu dóttur þeirra, Helenu Þóru, 3. ára, er eins og að tala við „einn af strákun- um“ frá því í gamla daga. En milli þess, sem rabbað er um gamla kunningja og endurminningar eru rifjaðar upp frá íslandi, kemur sag- an um Reykjavíkurpiltinn, sem varð víðkunnastur íslendinga, að- eins 27 ára. Helt að „knattspyrnan væri búin að vera“. Þegar Albert Guðmundsson var tvítugur, fór hann til verslunar- náms í Edinborg í Skotlandi. „Þá helt jeg að alvara lífsins væri byrjuð og knattspyrnan búin að . Albert Guðmundsson. vera hjá mjer“, segir hann. — En skotski þjálfarinn, Murdo Mc Dougall, sem verið hafði hjá Val, fekk Albert tii að halda knatt- spyrnunni áfram. — Hann vissi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.