Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1951, Blaðsíða 1
17. tbl.
;i$loT0tmMaí>g ins
Sunnudagur 6. maí 1951.
XXVI. árgangur.
ÁHRIF HAFSTRAUMA Á SfLD-
ARGEIMGD AÐ IMORÐURLANDi
HAFSVÆÐIÐ milli Noregs, Shet^
landseya, Færeya, íslands, Græn-
lands, Svalbarða og Bjarnareyar er
oft nefnt Noregshaf. — Að svo
miklu leyti sem það er ekki um-
lukt löndum, takmarkast það af
grunnsævishryggjum er liggja milli
landanna. Svo það er aðskilið frá
djúpsævi Norðurhafsins fyrir norð-
an og Atlantshafsins fyrir sunnan
og vestan þetta svæði. Tveir eru
aðalhafstraumar á svæði þessu,
Austur-Grænlandsstraumurinn og
Golfstraumurinn.
Golfstraumurinn á upptök sín
suður við Mexicoflóa. Flytur hann
tiltölulega hlýan og tiltölulega salt-
an sjó norður og austur yfir At-
lantshafið upp að ströndum V-
Evrópu.
Neðansjávar hryggurinn milli ís-
lands og Bretlandseya verður á
vegi Golfstraumsins. Af því leiðir,
að straumurinn skiftist þannig, að
nokkur hluti hans, hinn svokallaði
Irmingerstraumur, beygir til vest-
urs í áttina að suðurströnd íslands,
fer vestur með suðurströndinni og
norður fyrir vestan ísland, uns
hann mætir Austur-Grænlands-
INioregshaf og straumkerfi þess
Örvarnar sýna í höfuðdráttum straumana á hafsvaeði því, sem er heimkynni
norsk-íslensku sildarinnar. Skyffgða svaeðið gefur grófa mynd af útbreiðslu kalda
sjávarins á sumrin. — Fiskarnir sýna hugsanlega leið síldarinnar á sumrin.