Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1951, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1951, Síða 6
258 r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ræðum. — Hin aðferðin var al- gengari að snúra skóna; mjótt snæri var saumað eftir endilöngu varpinu, en síðan látin hælbönd úr þvengjum í skóna til að halda þeim á fætinum. Hjer verður að minnast á saum- þráðinn. Oft varð að hafa hann úr útlendu efni, en til var innlendur saumþráður í seymi sem kallað var, það tóku menn innan af mölum stórgripa sem slátrað var, og var það svo langt að nægði til að verpa hvaða skó sem var, en innan af bógum var tekið styttra seymi sem nota mátti í sauma. Seymið var flegið frá kjötinu, síðan skafið vandlega, svo að ekki væru á því kjöttætlur, því næst rifið í lengj- ur og svo hengt á prik til þerris. Þegar það var notað, var það svo rifið niður að það yrði mátulegur nálþráður. Seymið var mjög sterkt, og mun sterkara en þvengir, sem oft voru notaðir til að verpa með skó. Margfaldur togþráður var líka stundum notaður á vörp. Ekki mun það hafa verið algengt að nota seymi til skógerðar, en það þótti bera vott um hirðusemi og fyrirhyggju að hirða það og nota, og þó að útlent saumgarn kostaði ekki mikið, var verra að nota það, því það var miklu ótraustara, og skónum hætti fremur til að varp- slitna eða nasbitna, en svo var það kallað ef tásaumur bilaði og táin gægðist fram úr. Þannig var þá aðferðin við að gera skó. En næst er að athuga notagildi þessara skóa. SENNILEGA hefur þessi gerð skóa verið notuð alt frá landnámstíð, nema að Iangir þvengir hafa ver- ið vafðir upp kálfann. Sjeu þeir bornir saman við nútíðarskó verða gallarnir margir og yfirgnæfandi, þó miklu muni að nota þá eða ganga berfættur eins og sumar þjóðir gerðu. í fyrsta lagði vörðu þeir fæturna illa fyrir vætu, þeir voru þess ekki megnugir að verja vætu af döggvotu grasi, þótt nýir væru. Þegar gengið var niður úr þeim var farið að bæta þá, og vildi þá draga vatn um nálspor og með bótunum. í vetrarferðum reyndi mjög <4 hvað vandað hafði verið til skónna, því ef þeir varpslitnuðu eða þvengir biluðu fyltust þeir af snjó og ollu töfum í ferðalaginu og það sem verra var, raka á fótum, sem gat valdið kali og jafnvel líf- tjóni. Á sumrin í þurkum voru þeir sjerstaklega hvimleiðir, urðu þeir þá harðir sem gler og hálir í botninn, og hætti auk þess við að kreppa mjög að fætinum. Frá slík- um skóm mun vera kominn máls- hátturinn um skókreppuna. En þótt nútíðarmenn sjái fleiri galla en kosti á þessum frumstæðu skóm, þá voru þó vel gerðir leður- skór í miklum metum hjá eigand- anum og síður en svo að kostum þeirra væri gleymt. — Þeir voru sjerlega ljettir á fæti og gott að ganga á þeim þá mjúkir voru og ekki stokkfreðnir; í fjallgöngum þóttu þeir allra skóa bestir, því þeir láta svo vel eftir hverri hreyf- ingu fótsins. Nýir skór voru líka mjög þægileg tilbreyting frá göml- um og bættum, og síðast en ekki síst höfðu þeir þann stóra kost að allir gátu veitt sjer þá vegna þess verðmætis, sem í þeim var bundið. Hjer hefur verið talað um gnægð ir miklar af skæðaskinni, og mun svo hafa verið um alt Suðurland nema þegar fellir var, af harðind- um eða pestum. En sennilegt er að þetta hafi verið á annan veg í sjávarplássum eða öðrum þeim stöðum. sem fátt var um stórgripi. Til þess benda tvær munnmæla- sögur, sem jeg hef heyrt af norð- anverðum Vestfjörðum, þar sem harðbýlt er og lítið um uppeldi stórgripa. Önnur sagan segir að fram á þessa öld hafi það verið algengt þar vestra að mæla vegalengdina milli bygða með því að segja til, hvað marga skó þyrfti til að ganga yfir hana, tveggja skóa heiði, þriggja skóa heiði o. s. frv. Frá þessari sögu segir Þorvaldur Thor- oddsen í 13. árg. Andvara. Yfir Þorskafjarðarheiði mun vera 6 stunda gangur milli bygða, og hafi hún verið þriggja skóa heiði, hafa skórnir dugað í tvo tíma, og er þetta sennilegt ef þeir hafa verið gerðir úr steinbítsroði, hákarlsskráp eða ærbjór. Hin sögnin bendir til að á sumum bæum þar um slóðir hafi lítið fallið til af skæðaskinni: Símamenn úr Reykjavík voru við vinnu sína á Vestfjörðum. Eitl sinn kom til þeirra bóndi, og hafði hann meðferðis hest stóran og stæðilegan. Símamennirnir spurðu bónda um aldur hestsins, og sagði hann að hann væri 28 vetra. Þeir hældu þá hestinum mjög og þótti hann stæðilegur og vel með farinn. En þá svaraði bóndinn: Þið ættuð að sjá folann; ykkur mundi þykja hann fallegur. Þeir spurðu þá hvað folinn væri gamall, en bónd- inn sagði að hann væri 18 vetra. Það segir sig sjálft að sá bóndi, sem elur ekki upp stórgripi, lætur hesta sína ná hálfum mannsaldri og hefur ekki máð folanafnið af 18 vetra hesti, hann getur ekki eignast mörg húðarskinn af eigin gripum í sínum búskap. ÞAÐ sem hjer hefur verið sagt um skinnaverkun og skógerð er aðallega eins og þetta tíökaðist á SuðurlandL í sumum atriðum mun þetta hafa verið öðruvísi í öðrum landshlutum. í Borgarfirði og víðar voru leð- urskór gjarnan bryddaðir með elti- skinni í stað snúru; þar voru líka spariskór gerðir úr eltiskinni, og skinnið stundum litað úr viðar-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.