Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Side 2
r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS { 190 ágætu meðmælum, sem hann hafði meðferðis frá Hollandi. Þessi ai,vik urðu til þess, að Rönt- gen hlaut framhaldsmenntun í Sviss. Þar lagði hann einkum stund á stærðfræði, eðlisfræði og náttúru- vísindi, en hafði einnig áhuga fyrir listum, bókmenntum og sögu, og sótti fyrirlestra í þeim greinum. Hann lauk verkfræðiprófi með ágætum, og doktorsprófi við há- skólann i Ziirich, 12. júní 1869, þá 24 ára að aldri. Ilöntgen var náttúruskoðari og fjallgöngumaður f Þótt RÖntgen væri iðinn við nám- \ ið, sérstáklega þegar frá leið, og hefði að því loknu aflað sér álits . vina sinna og kennara sem vísinda- mannsefhi, hafði hann þó á þessum árum Önnur áhugamál og ánægju- stundir. Hann var mikill náttúru- vinur og náttúruskoðari. Hann var heillaður af hinu tignarlega fjalla- ^ landslagi í Sviss og gerðist mjög áhugasamur fjallgöngumaður, \ hafði unun af því að klífa háa 't tinda. Eitt sinn varð hann fyrir því ^ óhappi að hrapa í fjallgöngu. Hann ‘ særðist alvarlega og fannst af hendingu, ósjálíbjarga. Þegar hann var orðinn heill aftur, seiddu þó \ fjöllin enn sem fyrr, og einnig ‘t vatnið í'agra við Zúrich, þar sem \ hann ren iðulega sér til skemmt- unar. — Um tíma voru þessar ^ skemmtiferðir orðnar alltímafrek- ar. Vinur Röntgcns og kennari í \ eðlisfræði, prófessor Kundt, benti honum á það, að ekki myndi verða mikið úr prófi með þessu lagi. — Röntgen vissi, að þetta var af vin- \ arhug mælt, og sneri sér að nám- { inu af alhug. Síðar varð hann að- \ stoðarmaður um mörg ár hjá þess- i um sama"kennara, og fylgdist með ^ honum tii Þýzkalands. í bréfi til \ yinar sín£, E. L. Albert verkfræð- ings, 12. ilóv-1922, n^jmist Röntgen enn þessa velgjörðarmanns síns, sem leiddi hann inn í eðlisfræðina og hreif hann úr óvissunni um íramtíðina, en þannig kemst hann að orði um prófessor Kundt. Röntgcngeislarnir fundnir Röntgen var orðinn kunnur vís- indamaður áður en hann fann rönt- gengeislana, og hafði verið prófess- or við ýmsa háskó'la í Þýzkalandi. 8. nóvember 1895 uppgötvaði hann geisla þá, sem síðan eru við hann kenndir. Þá var hann prófessor í eðlisfræði við háskólann í Wúrz- burg. Hann var að rannsaka ljós- fyrirbrigði og geisla, sem koma fram við rafmagnsúrhleðslu í gler- hylki, sem lofti hafði verið dælt úr. Háspenntum rafstraum var hleypt á milli tveggja skauta, sem brædd voru í enda hylkisins, svo að loft kæmist ekki inn í það. Þessi fvrir- brigði höfðu verið rannsökuð af ýmsum vísindamönnum um nokkra áratugi, og ósýnilegir gcislar, aðrir en röntgengeislar, fundizt (katoðu- geislar). Þess hafði orðið vart á sumum rannsóknarstoíum, að ljós- myndaplötur eyðilögðust eða voru með cinkennilegum blettum, og mun þar hafa gætt áhrifa írá rönt- gengeislum, cn þessum filmu- skemmdum var ekki gefinn nægi- legur gaumur. Það var fádæma skarpskyggni Röntgens og hugvits- scmi, samfara einstakri nákvæmni við rannsókn náttúrufyrirbæra, scm lciddu til þcss, að hann fann hina óþekktu geisla, sem þarna höfðu verið að verki. Röntgen hefur ekki látið cftir sig frásögn af því, hvernig liann varð geislanna var, cn sagan segir, að kvöld eitt, þegar hann var í rann- sóknarstofu sinni við athugun á þessum ljósafyrirbrigðum, hafi hann veitt þv; athygli, að efni, sem getur orðið sjalflýsandi (fluorescer- andi) við geislaáhrif, ög lá á borði í herberginu, gaf frá sér birtu í hvert skipti, sem hann hleypti há- spenntum rafstraum i gegnum gler- hylkið. Honum varð ljóst, að ósýni- legum geislum, sem gerðu efnið lýsandi, hlaut að stafa frá hylkinu. Hann sökkti sér niður í rannsókn á þessu og fann, að spjald roðið slíku efni, þ. e. skyggnispjald, gaf birtu á sama hátt. Ef bók var sett á milli spjaldsins og hylkisins, kom fram gagnsær skuggi af bókinni. Geislarnir smugu í gegnum bókina. Sér til mikillar undrunar sá hann einnig beinin í sinni eigin hendi á skyggnispjaldinu. — Nýir geislar voru uppgötvaðir. Rannsókn á cðli gcislanna Næstu vikur eftir þessa uppgötv- un yfirgaf Röntgen sjaldan rann- sóknarstofu sína. Með ótrúlegri elju rannsakaði hann eiginleika þessara nýju geisla. Á tæpum tveim mánuðum lauk hann rann- sóknum sínum, og lagði undirstöð- una að þekkingu manna á eðli þeirra. 28. desembcr 1895 skýrði hann frá uppgötvun sinni og lýsti eiginleikum geislanna. Hann ncfndi þá x-geisla, og hefur það nafn að mestu haldizt í hinum enskumæl- andi heimi, annars eru þeir að jafn- aði nefndir röntgengeislar eftir Röntgen sjálfum. Fyrsta ritið um geislana var 12 blaðsíður og heitir „Uber eine neue Art von Strahlen“, þ. e. um nýja tegund geisla. Og á næstu 2 árum birti hann 2 stutt viðbótarrit. — Röntgen var óvenju íáorður en gagnorður, og með þessum visinda- ritum hafði hann upplýst heiminn um allar þær grundvallarreglur, sem gilda um eðli og eiginleika röntgengeislanna. Það er einstakt vísindalegt ai'rek. Engar af athug- unum hans haía þurft leiðréttingar við síðar. Þær viðbætur og skýr- ingar, sem íram hafa komið, eiga

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.