Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Qupperneq 7
t LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
* 195
þarf langt að fara í bílum til þess
að komast út á flugvellina. Menn
sætta sig þó við þetta á meðan ekki
er hægt að komast fljótar yfir. En
þegar koptarnir koma til sögunn-
ar, breytist þetta. Þá verða gerðir
lendingarstaðir fyrir koptana inni
í sjálfum borgunum. Fyrsti slíkur
lendingarstaður hefir verið gerður
á þaki hafnarbyggingarihnar í
miðri New York borg. Frá slíkum
lendingarstöðum verður fólk svo
flutt út á flugvellina og það ferða-
lag er ekki nema nokkrar mínút-
ur. —
Kostir koptanna fram yfir kosti'
venjulegra flugvéla, eru margir og
miklir. Koptarnir geta sest og haf-
ið sig tii flugs á örlitlum bletti, svo
að ekki þarf að gera óhemju dýra
flugvelli fyrir þá. Þeir geta flogið*
í hvaða veðri sem er, svo að segja.
Þeir geta flogið aftur á bak og
áfram o£ til hliða, þeir geta farið
löng renniflug og þeir geta staðið
kyrrir í loftinu, þar sem þeir eru
komnir.
Ef loftárásir eru gerðar á borg-
ir, er ekki hægt að koma bílum
við. En koptarnir geta komið til
hjálpar hvar sem er. Þeir geta sam-
stundis flutt lækna, hjúkrunarlið
og hjúkrunargögn á sprengjustað-
inn. Þetta hafa þeir sýnt í Kóreu,
og þess vegna eru þeir kallaðir
„englar“ þar.
KOPTINN
KEMUR í STAÐ BÍLA
Á vetrum, þegar ófærð teppir
alla vegi, geta koptarnir komizt
hvert sem er og flutt vistir og
nauðsynjar. Þeir geta líka orðið til
þess að byggð rísi upp þar sem nú
er ónumið land og engar samgöng-
ur. Landnemarnir byggja þá hús
sín með flötu þaki og bar setjast
koparnir, sem færa þeim allar lífs-
nauðsynjar og póst og flytja þá
sjálfa fram og aftur.
Sennilegt er talið að innan
skamms verði koptarnir almenn-
ingseign og komi algjörlega í stað
bíla. Menn geta farið á þeim hvert
sém þeir vilja. Á góðviðrisdögum
geta þeir skroppið með alla fjöl-
skyldu sína upp til fjalla og fagurra
staða, þar sem engir vegir eru. Og
þá skipta vegalengdir ekki svo
miklu máli. Það væri til dæmis
hægðarleikur að skreppa héðan frá
Reykjavík austur að Hallormsstað
að morgni og koma heim að
kvöldi. Og það er einhver munur
að sitja fkopta eða bíl. Þar er eng-
inn hávaði, engir hnykkir né ó-
þægindi af vondum vegum. Það
fer jafn þægilega um menn eins
og inni í stofu og þreyta gerir ekki
vart við sig. En hætt er við að
þeir sem færi í bíl í einum áfanga
austur að Hallormsstað, væri orðn-
ir þreyttir og aðþrengdir þegar
þangað kemur.
Það er miklu auðveldara að fara
með kopta heldur en aðrar flug-
vélar. Allur útbúnaður þeirra er
miklu einfaldari. Það er ekki meiri
vandi að fara með þá og stjórna
þeim, heldur en taka bílpróf, og
þó enn minni, því að á einum degi
geta menn lært að fljúga kopta.
Við skulum hugsa okkur að ein-
hver fjölskyldufaðir hér í Reykja-
vík eigi kopta. Einhvern sunnudag
ákveður hann að skreppa með fjöl-
skylduna upp að Hvítárvatni. Hann
dregur koptann upp úr geymslu-
skúrnum og fólkið sezt í hann. Það
hefur með sér nesti til dagsins.
Húsbóndinn sezt fram í og styður á
hnapp og í sama bili fer hin mikla
loftskrúfa á stað. Það heyrist ekk-
ert í henni og hægt og rólega lyftír
hún koptanum frá jörð. Þegar þau
eru komin 1200 fet í loft upp, hreyf-
ir hann stýrissveifina svo að kopt-
inn hallast ofurlítið fram á við, en
við það breytist ferðalagið svo að
nú fara þau ekki hærra heldur
tekur koptinn nú á rás. Eftir stutta
stund er Reykjavík horfin og eftir
svo sem hálfrar stundar flug eru
þau komin upp að HvMrvami.*Þá
er stýrissveifinni kippt til baka og
vængjunum úr sambandi við hréýf-
ilinn. Stutta stund er þá einá' og
koptinn standi kyr í lausu lofti, eh
svo fer hann að síga og þá fer
skrúfan sjálfkrafa á stað af loft-
þrýstingnum, og þahhig svífúr
koptinn hægt og rólega tíl jarðar.
En nú spyrjið þið: Hverni^ ¥ér ef
hreyfillinn skyldi bila á miðri leið?
Það gerir ekkert tiL Skrúfah losn-
ar óðar sjálfkrafa úr sambahdi við
hann og koptinn er orðinn að svif-
flugu, sem stýra má hvert sem
maður vilL Snúninguf skrúíúhhar
hindrar það að koptinn geti hráp-
að. Og það þarf ekki stóran sléftan
blett til þess að hægt sé að lenda.
Þegar koptarnir koma í stað bíla,
verða færri umferðarslysin, því að
lítil hætta er á árekstrum í löfti.
Helzt væri hætta á því að aðrar
flugvélar kynni að rekast á kopta,
en þegar koptinn er orðið algengt
farartæki verður honum ætlað að
fljúga í ákveðinni hæð, en leiðir
flugvélanna liggja þar fyrir ofan.
^ íW íW i
FRÁSÖGNIN
„Erfiðleikar landnemans" í seinustu
Lesbók, var tekin eftir „The Icelandic-
Canadian“, tímariti Vestur-íslendinga,
en af vangá láðist að geta þess. Hins
má geta, að frásögn Magnúsar er miklu
lengri en þetta og hefur birzt í tveim-
ur heftum tímaritsins. — Eins og áður
hefur verið getið, er rit þetta gefið út
til þess að viðhalda sambandinu milli
íslendinga austan hafs og vestan, enda
þótt íslenzk tunga hverfi smám saman
vestan hafs. Ætti menn hér heima að
fylgjast betur með þessari tilraun og
það gera þeir bezt með því að kaupa
tímaritið og senda því fræðandi greinar
um land og þjóð. Mundi það áreiðan-
lega verða vel metið. Ritstjóri „The
Icelandic Canadian" er nú Hólmfríður
Danielsson, 869 Garfield St., Winnipeg,
Canada.