Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1952, Síða 10
198 LESEÓK MORGUNBLAÐSINS Hvað gerð/sí 1 marz MERKUSTU tíðindin í þessum mán- uði og þau merkustu er lengi hafa gerzt, eru þau að landhelgin er færð út þannig, að öllum flóum og fjörðum er lokað og landhelgislinan sett 4 sjó- miium fyrir utan >Trtu annes, sker og eyar. Hinn 19. marz gaf atvinnumála- ráðuneytið út reglugerð um verndun fiskveiða við ísland, þar sem þessi ákvæði eru sett um landhelgina og er þar byggt á úrskurði alþjóða- dómstólsins i Ilaag í landhelgisþrætu Norðmanna og Englendinga. Hafa ís- lendingar náð hér langþráðu tak- marki, að friða algjörlega Faxaflóa og Breiðafjörð fvrir veiðum dragnótabáta og togara. Hér á myndinni má sjá þá miklu breytingu, sem verður á land- helginni við vesturhluta íslands, allt frá Skagatá að Vestmanraeyjum. Er þar sýnd gamla landhelgislínan og sú nýa. — Reglugerðin gengur i gildi 15. maí. VEÐRÁTTA var yfirleitt góð og mild í þessum mánuði og gæftir góðar. Meðaihiti mánaðarins var 1 stig hér í Reykjavík, en víða um frostmark. Á suðvestur- landi var yfirleitt bjartviðri og úrkoma helmingi minni en venjulega. Snjó leysti í byggðum, en hjarn gerði á heiðum og fjöllum og fyrra hluta mán- aðarins gerðu menn sér til gamans að aka á jeppum upp á fjöll, svo sem Skálafell, Ok og Skjaldbreið. Annars var snjólétt um allt land. Talsvert frost var fyrstu daga mánaðarins fyrir norð- an og lagði þá Akureyrarpoll 6 þuml- unga þykkum ísi og náði íshellan út á Eyafjörð móts við Svalbarðseyri og Hörgárósa. Báturinn Drangur, sem annast flutninga á mjólk til Siglufjarð- ar, lá inni frosinn á Akureyrarpolli og komst ekki út þaðan fyr en 7. marz. — Hinn 20. skall á suðvestanhríð og teptust þá flugvellir hér syðra og fjórar flugvélar urðu veðurteptar fyr- ir norðan. Teptust þá og sumir fjall- vegir og var Hellisheiði ófær við og við fram undir mánaðamót vegna skafrennings, AFLABRÖGÐ í öndverðum mánuðinum var afli sæmilegur á báta fyrir Austurlandi en fór minnkandi er á leið. Syðra og vestra var afli mjög misjafn, en vegna góðra gæftra barst þó mikið af fiski á land. Mestur varð aflinn í Þorláks- höfn og mátti þar heita uppgripaafli í öndverðum mánuðinum. Verkfallinu á togaraflotanum lauk að kvöldi hins 8. og hafði það þá staðið í 16 daga, en eigi höfðu fleiri togarar en 5 teppzt vegna þess. í þessum mánuði fóru togarar 24 söluferðir til Englands og seldu þar fyrir 9.2 millj. króna. Fór markaður þar hríðlækkandi þegar á leið mánuð- inn og var seinast orðinn svo lélegur að togararnir hættu ísfiskveiðum en fóru að veiða í salt og fyrir hraðfrysti- húsin. Skapaðist við það mjög aukin atvinna hér í Reykjavík, svo að undir mánaðarlokin höfðu 150 menn atvinnu við afgreiðslu togaranna. Þá tók og Faxaverksmiðjan til starfa og vinnur úr úrgangi togaraaflans. Samkvæmt skýrslu frá Félagi ísl. botnvörpuskipaeigenda nam háseta- hlutur á 28 togurum árið sem leið frá 40.975—62.173 krónum. JARÐSKJÁLFTAR Hinn 12. kom harður jarðskjúlfta- kippur í Reykjavík og fannst hann viða um suðvestanvert landið. Jarð- skjálftamælar fóru úr skorðum og er talið að þetta sé harðasti jarðskjálfta- kippur, sem komið hefur í Reykjavík í 23 ár. Upptök hans munu hafa verið á Reykjanesskaga. Ekki olli hann tjóni svo teljandi sé. — Viku seinna fundust 3 litlir jarðskjálftakippir og munu þeir hafa átt upptök sín á sömu slóðum. ÍÞRÓTTIR Á sundmóti í Reykjavík hinn 6. setti Ari Guðmundsson nýtt íslandsmet í 50 m baksundi. Þá setti og Jón Magnússon nýtt drengjamet í 1000 m bringusundi. Meistaraflokkskeppni í bridge lauk svo, að sveit Benedikts Jóhannssonar sigraði. Eggert Gilfer varð Reykjavíkurmeist- ari í skák. Skíðamót Reykjavíkur var háð um miðjan mánuðinn og urðu þau Stella* Hákonardóttir og Ásgeir Eyólfsson Reykjavíkurmeistarar í svigi. Skíðamót Akureyrar fór fram og varð Magnús Brynjúlfsson meistari í svigi og stórsvigi. Hinn 19. setti Ari Guðmundsson nýtt íslandsmet i 500 m skriðsundi. og sveit úr sundfélaginu Ægi setti nýtt met í boðsundi. MANNALÁT 12. Pétur Lárusson fulltr. í skrif- stofu Alþingis, tæpl. sjötugur. 15. Sigfús Sigurhjartarson fyrv. al- þingismaður, 50 ára: 16. Guðmur.dur Geirdal skáld, 67 ára. 16. Jón Gíslason póstafgiTn. í Ólafs- vík, 57 ára. 21. Margrét Guðmundsdóttir yfir- ljósmóðir á fæðingardeild Land- spítalans, 46 ára. 22. Helgi Thordersen trésmiður í Reykjavík, 84 ára. 26. Kristján Guðmundsson forstj. Pípuverksmiðjunnar í Reykjavík 52 ára. — Árni J. Auðuns skattstjóri í ísa- firði, 46 ára. FJÁRSÖFNUN OG GJAFIR 2. marz var fjársöfnunardagur á Ak- ureyri fyrir fjórðungssjúkrahúsið og söfnuðust kr. 102.856.00. Seinna í mán- uðinum gaf Búnaðarfélag Aðaldæla

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.