Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1952, Síða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
217
Ásgeir stóð alla brautina, en
hinir féllu einu sinni hver.
18 km skíðaganga
Hinn 18. febr- var keppt í 18 km
skíðagöngu. Ræsimark og enda-
mark voru þar og einnig í hinum
göngunum á flöt Holmenkoll-
stökkbrautarinnar, en göngubraut-
in lá inn um Nordmarka, eins og
venja er til á skíðamótum í Oslo.
Mesti hæðamismunur var um 165
m. Göngubrautin var talin vera
með erfiðasta móti.
Smurning skíðanna hjá okkar
mönnum tókst sæmilega. Tveim
þeirra hlekktist á. Ebenezer missti
af sér annað skíðið og skemmdi skó
sinn, svo að ekki tókst að festa
skíðið vel eftir það. Oddur rakst á
tré, er hann var að fara fram úr
öðrum manni, er annað hvort gat
ekki eða vildi ekki víkja. Hann
meiddi sig þá í fæti og braut annan
skíðastafinn. Hann kom að vísu í
mark, en gat ekki keppt síðan. Að
öðru leyti voru menn okkar vel á
sig komnir, er þeir komu að marki.
í göngunni voru 80 keppendur og
komu 75 í mark. Rástími fyrsta
manns (Brenden, Noregur) var
61 mín. 34 sek., en hins síðasta, er
kom í mark, 92 mín. 39 sek. —
Meðaltal af öllum rástímum í leik-
unum var 71 mín. 11 sek- Árangur
íslenzku keppendanna:
Mín. Sek.
Nr. 32 Gunnar PétursSon .. 70.30
— 40 Ebenezer Þórarinsson . 71.10
— 45 Jón Kristjánsson .... 72.05
— 55 Oddur Pétursson .... 73.35
Svig karla
Hinn 19. febr. var keppt í svigi
karla í Rödkleiva. Mjög miklum
snjó hafði verið mokað í svigbraut-
ina undanfarna daga og voru nú
keppnisaðstæður góðar og sæmi-
lega jafnar fyrir keppendur, eftir
því sem verið getur. Lengd braut-
arinnar var 450 m, hæð hennar 169
m, en fjöldi hliða 49. Lögun braut-
arinnar var lítið eitt breytt í seinni
umferð. Áður en leikur hófst var
ákveðið að aðeins um þriðjungur
keppenda fengi að fara seinni um-
ferðina.
Keppendur voru 85, þar af komu
79 í mark í fyrri umferð. Bezti rás-
tími var þar 59,2 sek. (Senger,
Austurríki), en tveir þeir lökustu
93,5 sek. og 146,9 sek- Meðaltal allra
rástíma í fyrri umferð var 72,1 sek.
Rástímar okkar manna í þeirri um-
ferð voru:
Sek.
Nr. 30 Ásgeir Eyólfsson......66,4
— 40 Jón Karl Sigurðsson .. 69,3
— 46 Stefán Kristjánsson .. 70,2
Haukur Sigurðsson datt illa og
hætti leikum. Hinum hlekktist ekki
teljandi á.
Eftir fyrri umferð var það ákveð-
ið, að 33 hinir fyrstu skyldu einnig
fara síðari umferð. Ásgeir Eyólfs-
son keppti því til úrslita í sviginu
og varð þar nr. 27. Bezti rástíminn
í síðari umferð var 60,5 sek., en
Ásgeirs tími 69,7 sek. Fyrstur í
svigkeppninni varð Schneider,
Austurríki, með úrslitatímann 120,0
sek., en tími Ásgeirs var 136,1 sek.
50 km skíðaganga
Hinn 20. febr. fór fram 50 km
skíðáganga. Mesti hæðarmismunur
á göngubrautinni var um 240 m.
Sú ganga varð mjög söguleg, því
að meðan hún fór fram hækkaði
lofthitastigið úr h- 2° C í + 6° C
á nokkrum hluta leiðarinnar og
skapaði það göngumönnum mikinn
vanda, hvað skíðaáburð snerti. —
Urðu þeir að marg smyrja skíðin
á leiðinni og tókst það mjög mis-
jafnlega, enda var það háð því
hvað þeir höfðu á sér eða gátu
fengið á leiðinni og auk þess blotn-
uðu sum skíðin og héldu illa áburði.
Þessi ganga tókst ekki vel fyrir
íslenzku göngumönnunum og urðu
þeir meðal hinna síðustu- Kepp-
endur voru 36, þar af gáfust þrír
upp. Rástími fyrsta manns (Haku-
linen, Finnland) var 213 mín. 33
sek-, en hins síðasta 288 mín. 47 sek.
Árangur manna okkar var:
Mín. Sek.
Nr. 29 ívar Stefánsson .... 279.50
— 30 Jón Kristjánsson . .. 281.32
— 33 Matthías Kristjánsson 288.47
é
Skíðaboðganga /
Hinn 23. febr. var keppt í 4x10
km skíðagöngu. Göngubrautin þótti
miðlungs erfið. Hæðarmismunur
var um 140 m. Færið var alls staðar
svipað á brautinni og smurning
tókst yfirleitt vel. Þrettán þjóðir
sendu sveitir í boðgönguna, en tólf
þeirra komu að marki.
Fyrsta sveitin (Finnland) hafði
rástímann 140 mín. 16 sek., en hin
síðasta, er kom í mark (Bandarík-
in) 173 mín. 28 sek. Meðaltími allra
rástíma var 154 mím 24 sek. ís-
lenzka sveitin varð nr. 11 naeð rás-
tímann 160 mín. 09 sek. í íslenzku
sveitinni voru Gunnar Pé.tursson,
ívar Stefánsson, Jón Kristjánsson
og Ebenezer Þórarinsson. Millitím-
ar þeirra voru 40 ipín. 05 sek. —
40 mín. 30 sek. — 39 mín. 39 sek.
— 39 mín. 55 sek.
. . l- i _- ** ,
• i i—*
Skíðastökk
Sunnudaginn 24. febr. var síðasta
skíðakeppni Vetrar-Ólympíuleik-
anna, skíðastökk, og jafnframt hin
tilkomumesta, að því er ytri að-
stæður snerti. Um 140 þús. manna
munu hafa séð þann leik. — Kepp-
endur voru 44 og 431uku leik- Sig-
urvegarinn (Bergmann, Noregur)
stökk 67,5 og 68 m og hlaut 226,0
stig. Skemmstu stökklengdir voru
56,5 og 55,0 m og lökust útkoma
þess, er lauk leik, 142,5 stig. Meðal-
tal allra stiga var 194,6.
Ari Guðmundsson hlaut 183,0