Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1952, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1952, Blaðsíða 1
15. tbl. Sunnudagur 4. maí 1952 XXVII. árg. PÉTUR JAKOBSSON: /* OLANUIVI ÉG KOM í Kennaraskóla íslands í Reykjavík seint í októbermánuði 1909- Var ég þá fullt tvítugur að aldri. Hafði ég þá lokið búfræði- prófi við skólann að Hólum í Hjaltadal. Var mitt fyrsta verk, er ég kom til Reykjavíkur, að ganga á fund skólameistara. Kveið ég hálfgert fyrir því. Var ég óvanur að ganga fyrir höfðingja. Fann ég til van- máttar. Ég var lúinn eftir langan gang norðan úr landi. Hafði ég vað- ið ár og læki. Var ég fótasár eftir þá eyðimerkurgöngu. Ég var lítill að vallarsýn og svo er enn. Var ég klæddur fátækleg- um fötum og var með létta pyngju. Hafði ég nokkrar áhyggjur af, að skólameistara mundi sýnast ég ólíklegur til að prýða skólann og kennarastétt landsins. Samt lagði ég á stað í áttina til skólans. Þegar þangað kom sýndist mér skólinn stórt hús og vistlegt. Hitti ég mann þar utan dyra. Hafði hann á hendi upphitun skólahúss. Heils- aði ég manni þessum og spurði hann hvort skólameistari mundi heima vera. Hann kvað já við. Bað ég hann að fylgja mér til hans. FYRIR FJÖRLTÍy ÁRDM Fór hann með mig inn um fordyr hússins, upp á efri hæð- Benti hann mér á dyr þar til vinstri handar og sagði þar vera skrifstofu skóla- meistara. Yfirgaf hann mig svo og gekk út. I HJÁ SKÓLASTJÓRA Ég knúði hurð skrifstofunnar. Eftir augnablik opnaðist hurðin og út kom maður aldurhniginn, silfr- aður á hár og skegg, hár vexti, beinvaxinn, fyrirmannlegur, prúð- ur, vingjarnlegur, en þó alvarleg- ur. Þessi maður var síra Magnús Helgason frá Birtingaholti. Hafði hann, þegar Kennaraskóhnn var stofnsettur, verið sóttur yfir fjöll, ár og vötn, alla leið austur að Toríastöðum í Biskupstungum, því þar var hann þá sóknarprestur, til þess að takast á hendur stjórn hins fyrsta kennaraskóla íslands. Bauð hann mér inn í skrifstofu sína. —

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.