Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1952, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1952, Blaðsíða 11
I: LESBÓK MORGUNBLAÐSINS <M? 231 það upp óp mikið og heldur víst að ég ætli að taka peninginn aftur. Starfsmennirnir fyrir innan grind- ina skilja nú að hér er enginn venjulegur Múlatti á ferð, þó hör- undið sé brúnt, heldur sólbakaður Americano. Því miður, í pósthúsinu fást ekki frímerki, en í veitinga- stofunni við hliðina, þar eru þau seld. Ég veit af reynslu að burðargjald bréfa frá Kúbu til íslands er hærra eftir því sem lengra dregur frá Havana og bið um 23 cent á annað bréfið, sem er einfalt, en 56 á hitt, það er tvöfalt. Stúlkan límir merk- in á bréfin, tekur síðan blað og blýant og reiknar með þeim ein- kennilega árangri, að hjá henni verða 28 og 56 samtals 108. Einn dollar og átta cent. Ég tek skrif- færin og sýni henni að 28 við 56 séu, að mínu viti 84. Stúlkan nær í kunnáttumann, sem getur loks komið mér í skilning um að þetta sé engin góðgerðarstofnun, sem selji vörur á innkaupsverði, og af því hann sjálfur á ekki hlut að máli, leyfir hann sér að bæta því við, að allir útlendingar séu vit- lausir. Bréfin fóru í póstkassann og komust með beztu skilum í hendur viðtakanda heima á Islandi, eftir aðeins sex vikur, en þess ber líka að geta, að frá Antilla til Havana eru tíðar ferðir og frá Havana til Bandaríkjanna margar flugferðir daglega. íslenzk frímerki eru mjög vel séð á Kúbu, sérstaklega þessi með myndinni af Jóni Arasyni, biskup. Það verður bezt séð á því að bréf, sem okkur berast að heiman eru flest frímerkjalaus, þ. e. merkin hafa verið rifin af þeim af ein- hverjum áhugasömum söfnurum, sennilega í póststofunum á Kúbu. Þetta sakar auðvitað ekkert, þar sem bréfin sjálf koma til skila. Öllu óviðkunnanlegra finnst manni, þeg- ALASKAÖSP (Populus trichocarpa, var hastata) kom fyrst hingað til lands vorið 1944. Þá voru sendsr hingað um 600 græðlingar frá U. S. Forest Service í Seward á Kenaiskaga. Þeir voru teknir á stað, sem Divide heitir, og er um 30 km norður af bænum Seward við vatnaskilin milli Cooksfjarðar og Kyrrahafs. Sá heitir Norgarden, er hjó þá og sendi hingað. Hann var þá skóga- vörður á þessum slóðum, en er nú fluttur til Bandaríkjanna. Af þessum 600 græðþngum lifðu að- eins urn 50. Hinir þoldu ekki hinn langa flutning, sem tók milli 2 og 3 mánuði á stríðsárunum. — Síðar komu fleiri græðlingar hingað, en þá tók Jack Lean í Cooper Landing við Kenaivatn. En ar hornið af umslaginu er klippt af, til þess að ná merkinu heilu, þannig að hluti þessara friðhelgu orðsendinga liggur opinn fyrir ó- viðkomandi. Þetta kemur stundum fyrir, þótt sjaldan sé. yfirleitt var raiklum vandkvæðum bundið að koma þeim óskemmdum hingað. Haustið 1950 sendi Einar G. E. Sæ- mundsen um 25 þúsund græðlinga hingað frá Kenaiskaga og úr nágrenni Anchorage. Þeir hafa lifnað mjög sæmilega. Nú má orðið skera nokkur þúsuml græðlinga hér á landi á hverju ári, og innan fárra ára mun nóg til af þessari tegund hér á landi. Öspin vex hratt í góðum jarðvegi, og líklegt er að hana megi nota í skjól- belti víðs vegar um land. Öspin spring- ur út á vorin um sama leyti og björkin í Múlakoti og fellir blöð sín um sama leyti. Á myndinni hér að ofan eru þrjár af elztu öspunum hér, sem plantað var í Múlakoti vorið 1944. Síðan hafa þær verið fluttar tvívegis, siðast haustið 1947. Þá voru þær um 2 metrar á hæð. Á s.l. sumri fóru allmargar þeirra yfir 5 metra, og þær, sem eru á myndinni eru nærri hálfur sjötti meter á hæð. (Myndina tók Hákon Bjarnason-í ágúst 1951).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.