Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1952, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1952, Blaðsíða 4
224 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Ólafur Dan. Daníelsson Björn Bjarnason Jónas Jónsson sjálfs síns. Enda var það svo, að þar sem síra Magnús Helgason dvaldist, þar var bæði höll og hirð, burt séð frá húsakosti og lífsins þægindum. Síra Magnús Helgason var höfðingi í sínum heimagarði og höfðingi hvar sem hann fór. KENNARALIÐIÐ Þótt síra Magnús Helgason væri allt í öllu í Kennaraskólanum, setti sinn svip á skólann, réði öllu og réði vel, má þó ekki skilja orð mín svo, að hann einn gerði garðinn frægan, en hann hafði manna bezt lag; á að gera garð sinn frægan. KennaraSkólinn hafði miklu og ágætu kennaraliði á að skipa. Mátti segja, þar sem kennarahð skólans var samankomið, að þar færu menn sem væru konungar eða hefðu öll skilýrði andleg og líkamleg, til að vera koriungar, enda þótt þeir væru ekki börnir til ríkiserfða. 'Má þar fyrstan nefna dr. phil. Björn Bjarnason frá Víðfirði. — Kenndi*hánn íslenzku og dönsku x skólanum. Var hann ágætlega að ■sér * í ;þessum málum og afburða kennari. Gekk hann hreint, kalt og 4kVeðfð kennslunni, með af- burða hæfileikum til þess að gera kennslustundirnar arðbærar fyrir nemendurna. Hann var mikill íþróttamaður, lipur í öllum hreyf- ingum, prúður í göngulagi, kurteis í viðmóti, en kröfuharður um, að sér væri sýnd virðing og öll hirð- kurteisi væri við höfð, þar sem hann kom fram. Hann var líka kröfuharður við nemendur sína um að þeir stund- uðu námið vel. Taldi hann það móðgun við sig, ef nemendurnir komu í tíma til hans illa lesnir eða sýndu tómlæti um lestur hans kennslugreina. Var hann þeim nemendum óhollur, enda fýsti engan að móðga hann. Árangurinn varð sá, að flestir lærðu mikið í hans kennslugreinum og öllum kom hann nokkuð til manns. Þegar til prófsins kom, var dr. Björn mildur, blíður og lék við hvern sinn fingur. Var það hin bezta hátíð að ganga undir próf Vjá honum, enda þótt hann væri fremur spar á háar einkunnir. — Því miður nutu nemendur Kennaraskólans hans skamma stund. Hann kenndi sjúk- leika vorið 1912. Hvarf frá skólan- um og kom þangað aldrei aftur. Hann andaðist 1918. Sökum sinna ágæta er dr. Björn öllum nemend- um sínum ógleymanlegur maður. Einn af upphafskennurum Kenn- araskólans var dr- phil. Ólafur Daníelsson. Eins og þjóðinni er kunnugt, er hann að öllum líkind- um mesti stærðfræðingurinn, sem landið hefur nokkurn tíma átt. Hann er gæddur svo óvenjulegum skilningi á meðferð talna, að til stórra yfirburða verður að teljast. Hítt er svo annað mál, hvort það var rétt meðhöndlun á honum, hvort það var rétt aðferð til hag- nýtingar hans yfirburða hæfileik- um, að skipa hann stærðfræði- kennara við svo lágan skóla sem Kennaraskólann. Enda þótt hann á ýmsa lund reyndist okkur hinn ágætasti lærifaðir, gengum við þess þó ekki dulin, að hann taldi starf sitt við skólann neðar sinni þekkingu og við gengum þess held- ur ekki dulin, nemendur hans, að það var neðar hans miklu þekkingu og lærdómsheiðri að kenna okkur óþroskuðum unglingum stærð- fræði, sem hann af guðs náð og miklum lærdómi var afburða- maður í. Sama árið og ég kom í Kennara- skólann, gerðist Jónas Jónsson frá Hriflu kennari þar. Var hann

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.