Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1953, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1953, Blaðsíða 6
364 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4 með skipstjóraprófi á varðskipum (14.) — Úr Kvennaskóla Reykjavíkur útskrifuðust 22 stúlkur (23.) — Mennta skólinn á Laugarvatni útskrifaði 51 nemanda (29.) — Úr Kennaraskólanum útskrifuðust 61 kennaraefni (30.) ÍÞRÚTTIR íslandsmeistaramóti í badminton lauk með sigri Reykvíkinga (5.) Hnefaleikamót íslands fór fram. Þar keppti norskur maður, Bjarnc Lyngás og sigraði með yfirburð- um (8.) Reykjavikurmótinu í knattspyrnu lauk með sigri Vals og er það félag því Reykjavíkurmeistari þetta ár (22.) írskt knattspyrnulið, Waterford, kom hingað og keppti nokkrum sinn- um við íslenzk félög 27.) Kappreiðar Fáks fóru fram 2. Hvíta- sunnudag, eftir venju. Þar urðu hestar Þorgeirs í Gufunesi siguvsselir eins og oft áður (27.) Einstaklingskeppni í fimleikum var háð innan ÍR og varð Halldór Magnús- son fimleikameistari (28.) ELDSVOÐAR "Eldur kom upp I kjallara í Reykja- vík þar sem geymd voru efni til ut- rýmingar meindýrum. Varð af allmikið bál, en fljótt slökkt (7.) Brann glersteypa í Reykjavík og varð af mikið tjón (9.) Eldur kom upp í húsinu Laugalandi við Reykjavík og skemmdist það all- mikið (10.) Eldur kom upp í húsinu Frakkastíg 9 í Reykjavík og brann hæðin að miklu leyti. Eldsupptök ókunn (16.) Eftir áreksturinn á Halamiðum. Á efri myndinni sést hvernig kinnungur þýzka togarans brotnaði, en á neðri myndinni sést laskað stefni Hafliða. Kviknaði i búslóð, sem vörubíll átti að flytja norður í land. Varð bílstjór- inn ekki var við það og var kominn upp i Mosfellssveit er honum var gert aðvart um eldinn, en þá var búslóðin eyðilögð (19.) LANDIIELGISBROT Belgiskur togari, sem flugvél sá að veiðum í landhelgi 30. jan., og seinna var tekinn fyrir annað landhelgisbrot, var dæmdur í Vestmanneyum í 100.000 kr. sekt. Brezkur togari var dæmdur í 74.000 króna sekt fyrir veiðar í landhelgi. Skipstjórinn áfrýaði dómnum (12.) Færeyskt skip var tekið fyrir minni háttar landhelgisbrot og sektað um 7490 kronur (14.) VIÐSKIFTASAMNINGAP. Viðskiftasan ringur var gerður milli íslands og ísracl. Kaupa ísraelsmenn af oss frystan l'isk, en íslendingar mega fá hjá þeim hvaða vörur sem þeir vilja upp í andvirðið (20.) Sovjet-ríkin tiildu sig nú reiðuhúin til þess að liefja sainnniga við lslarul um vc rslimarviðskilti. Var svo ' alin samninganefnd og send til Moskva. 1 henni eru þeir Pétur Thorsteinsson, Bergur G. Gíslason stórkaupm., Helgi Pétursson framkvstj. og Ólafur Jóns- son framkv.stj. Sandgerði (30.) GJAFIR Hjónin Árni Pálsson og Ragnheiður Erlendsdóttir, Lundar, Kanada, gáfu Skálholtsstað 500 dollara (2.) Árni Helgason ræðismaður í Chicago og kona hans gáfu Hafnarfjarðarkirkju tvo vandaða ljósastjaka (5.) Verslunarráði íslands var tilkynnt að Páll heitinn Stefánsson frá Þverá og ekkja hans, frú Friða Stefánsson, hefði arfleitt Verslunarráðið að öllum eign. um sínum eftir sinn dag (29.) LISTIR Jón Engilberts listmálari hafði sýn- ingu í Reykjavik (5.) Frá finnsku óperunni komu hingað 40 söngvarar og starfsmenn og sýndu óperuna Austurbotnverjar nokkrum sinnum í Þjóðleikhúsinu við mikla að- sókn og góða dóma (6.) Þjóðleikhúsið hóf sýningar á ópcr- unni „La Traviata“ og fór sænska söng- konan Hjördís Schymberg fyrst með aðalhlutverkið, en síðan danska söng- konan Dora Lindgren (28.) Eggert Guðmundsson listmálari hafði sýningu í Reykjavik (22.) SKÓGRÆKTIN Seinni hluta mánaðarins var hafin að nýu skóggræðsla í Heiðmörk og er gert ráð fyrir að 130 þúsund plöntur verði gróðursettar þar í vor, en voru 128 þús. í fyrra. Skógræktarstöðin í Fossvogi er mjög að færa út kvíarnar. í fyrra seldi hún 157 þús. plöntur, en brátt verður hægt að dreifsetja þar 500.000 —1 milljón planta á ári. Á aðal- fundi Skógræktarfélags Reykjavíkur var Guðmundur Marteinsson endur- kjörinn formaður þess.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.