Lesbók Morgunblaðsins - 16.08.1953, Side 6
460
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
j ^Jrehla 194 7
Hauðrið drynur, hafið stynur,
Hekla gýs, en mökkvar rísa.
Hátt i loft úr heitum hvofti
< hendast björg með firnum mörgum.
J Grjótið rennur, grasrót brennur,
J gína flög við eldalögum.
4 Elds- hjá -dýki dauðinn ríkir,
4 drynja skot frá jarðarbrotum.
J Hekla, íslands byrjar risa
J hæst frá þér. Um landsins héruð
þúsund lampa-ljós þín glampa,
4 lýsa jörð og glita fjörðu,
< krýna jökla kalda hökla
J kvikum ljósa-undrarósum.
Þegar kveldar þínir eldar
4 þrýsta sál frá dægurmálum.
< Þú ert allra frægust fjalla.
J — Frúin jökla elds í hökli,
J aldrei þeim um ævi gleymist,
4 er réð sjá og fegurð dáir. —
4 Grimm sem dauðinn, dimm sem nauðin,
J dökk sem njóla, björt lík sólu
J þú í vitund þjóðar situr
J þjóðarnorn á slóðum fornum.
« HELGA HALLDÓRSDÓTTIR.
4
4
lét af því starfi, en við tók séra Jó-
hann Hannesson (21.)
Vestur-íslendingarnir, sem hér
hafa verið ó kynnisferð, heldu heim-
leiðis. Var þeim haldið kveðjusam-
sæti. Þar lýsti Gisli Jónsson, formað-
ur Þingvallanefndar yfir því, að á-
kveðið hefði verið að gróðursetja
skógarlund í þjóðgarðinum til minn-
ingar um Vestur-íslendinga (25.)
Ingvar Emilsson haffræðingur hef-
ir verið ráðinn til háskólans í Sao
Paulo í Brazilíu að koma þar upp
haffræðideild (26.)
MANNALÁT
2. Bertha Lindal (ekkja Björns
Lindals fv. alþm.)
2. Halldór Benediktsson, fyrrv.
póstur.
5. Guðbrandur Jónsson prófessor,
Reykjavík.
10. Kristinn Danielsson, prop. hon.,
Reykjavík.
10. Nikulás Einarsson, skattstjóri.
13. Jón Hannesson bóndi í Deildar-
tungu.
14. Pétur Bernburg hljóðfæraleik-
ari, Reykjavík.
17. Frú Helga Skúladóttir frá
Kálfafellsstað.
20. Ólöf Jónsdóttir húsfrú, Segl-
búðum.
24. Jón Sigmundsson, bygginga-
meistari, ísafirði.
25. Systurnar Halldóra Brands-
dóttir, Álafossi og Katrín Brands-
dóttir, Hafnarfirði.
25. Stefania Hannesdóttir ljós-
móðir, Reykjavík.
SLYSFARIF
Bílaárekstur varð í Kópavogi.
Amerískur maður, Albert Mainolfi,
búsettur hér, var farþegi í öðrum
bílnum og beið bana við áreksturinn.
Þrír menn slösuðust þar að auki (7.)
Fjögurra ára drengur varð fyrir
bíl á Þórshöfn á Langanesi og beið
bana (11.)
Finnur Ólafsson frá Bergvík á
Kjalarnesi, druknaði í Hvítá skammt
frá Ferjukoti.
Þrettán ára drengur, Oddur Guð-
mundsson, hrapaði til bana í Vest-
manneyum (15.)
Tveggja ára barn varð undir bíl
í Siglufirði og beið bana (16.)
Egill Sigurðsson skrifstofumaður á
Akranesi drukknaði við laxveiðar í
Gljúfurá í Borgarfirði (21.)
Magni Kjartansson frá Miklagarði
í Eyafirði, féll af hestbaki og stór-
slasaðist (28.)
ELDSVOÐAR
Danskur maður í Siglufirði, Nörre-
gaard að nafni, brendi hús sitt,
hænsnahús og skúr, vegna þess að
hann hafði viljað selja en ekki feng-
ið nógu hátt verð fyrir húsin (2.)
Eldur kom upp í hlöðu í Höfn í
Melasveit og var talið að kviknað
hefði í út frá rafmagni. Hlaðan var
full atf nýu heyi, en miklu af þvi
tókst að bjarga (25.)
FJÁRMÁL
Starfsári Þjóðleikhússins lauk.
Sýnd höfðu verið 15 leikrit, sýning-
ar í Reykjavík 208 (og 44 úti á landi),
leikhúsgestir í Reykjavík 98.225 (6249
úti á landi), tekjur 3.639.0000 kr.
(3.)
Bæarreikningur Reykjavíkur lagð-
ur fram. Eignaaukning á árinu nam
35,5 millj. kr. Fjárhagsáætlun hafði
staðizt vel og varð tekjuafgangur 13
millj. kr. þegar fyrning og afskrift-
ir hafði verið dregið frá (3.) '
Útsvarsskrá Akureyrar lögð fram.
Alls jafnað niður 8,641,340 kr. (3.)
í Hafnarfirði var jafnað niður
7.600.000 kr. Útsvarsstigi þar er um
20% hærri en í Reykjavík (9.).
Fyrra helming ársins var vöru-
skiftajöfnuður óhagstæður um 201
milljón króna (19.)
Vísitala framfærslukostnaðar var
157 stig í mánuðinum (21.)
Niðurjöínun útsvara á Sauðar-
króki lauk og var þar jafnað niður
1.018,400 kr. (25.)
RANNSÓKNIR
Rannsóknarleiðangur undir forustu
Sigurðar Þórarinssonar, jarðfræðings,