Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Side 1
Svona vnr lífið fyrir einum mannsaldri Það eru mörg spor milli Hvalsness og Fljótshverfis. ÞAÐ VAR einn sunnudag að Stefán Filippusson kom heim tíl mín og var ræðinn og skemmtilégur að vanda. Þá sagði hann mér frá fyrstu langferð sinni, er hann fór 18 ára gamall úr Fljótshverfi vestur að Höfnum á Reykjanesi. Síðan eru nú 65 ár. Ég hefi fært þessa frásögn hans í letur, vegna þess að hún er merkilegur vitnisburður um hve miklar breytingar hafa orðið á högum manna hér á landi á einum mannsaldri. Á. Ó. Þetta gerðist árið 1888. Þá hafði foreldrum mínum enn eigi tekizt að koma sér upp nægilegum bú- stofni eftir felliveturinn mikla 1882. Var oft þröngt í búi á þess- um árum, því að börnin voru mörg og sjaldnast færra en 12 manns í heimili. Það var því afráðið að senda mig suður í Hafnir til Sig- urðar Benediktssonar í Merkinesi, sem var hálfbróðir móður minnar. Skyldi ég vera hjá honum á ver- tíðinni sem matvinnungur. Nú var ég út búinn með nesti og nýa skó. Var mér fenginn reiðskjóti og svo lagði ég á stað með þorra- komu ásamt Stefáni Þorvaldssyni, er síðar varð póstur. Segir ekki af för okkar fyr en við komum vestur undir Eyafjöll. Þar bar okkur að bæ seint um kvöld og beiddumst gistingar. Var okkur alúðlega tek- ið, borinn fyrir okkur mikill og góður matur og hestar okkar látn- ir fá nóg hey. Var þarna risnu- heimili og bóndinn talinn efnaður. ÓRÓLEG NÓTT Það var þá venja að láta gesti fá eitthvert verkefni á kvöldvök- unni og man ég ekki betur en okk- ur væri fenginn sinn sokkurinn hvorum til að þæfa. Var þar fjós- baðstofa og vel hlýtt. Þarna svaf vinnufólkið og í vökulok var okk- ur boðið að ganga þar tii hvílu og skyldum við sofa saman í innsta rúmi annars vegar undir súð. Við vorum þreyttir og hvíldinni fegnir og hlökkuðum til að sofna. En um leið og við höfðum breitt ofan á okkur, kom á okkur slíkur flóa- vaður úr rúminu, að við höfðum ekkert viðþol. Ekki vildum við láta á því bera meðan ljós var í baðstofunni og fólk á fótum. En um leið og slökkt var, spyrndum við sængurfötunum ofan af okkur og heldum að það mundi duga. En það var nú eitthvað annað. Við vorum eins cg í eldi. Það var engu líkara en versta mýbiti, sem ég hefi komist í við Mývatn. Við klædd- umst því og laumuðumst út, án þess að vekja fólkið, náðum í hesta okkar og lögðum á stað. Heldum síðan rakleitt að Skála. Þar bjó náfrænka Stefáns. Þar vöktum við upp og sögðum okkar farir ekki sléttar. Fengum við að fara þar úr hverri spjör og svo var farið með fötin út og þau dustuð og hreins- uð rækilega.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.