Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Blaðsíða 5
- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 57 sveiflaði honum til og frá á því þangað til farið var að blæða úr kjálkabörðunum. En þá skárust aðrir í leikinn og skildu þá eins og grimma hunda. Þetta gerðist úti á hlaði. Ég fékk nóg af að horfa á þetta og flýtti mér í bæinn. Var mér þar vel tekið og gisti ég þar um nóttina. Heim kom ég svo daginn eftir til Merkiness. Þar var aldrei haft mikið vín um hönd og var það sér- stakt, þar sem rúmlega 40 röskir sjómenn voru saman komnir. Ég var ekki fyrr kominn heim en ég varð að fara að draga í eldinn fyr- ir hana Gerðu mína og hjálpa Siggu til að mala. Sigga var niður- setningur og átti altaf að vera að mala rúg og bankabygg, því að mjöl fluttist þá ekki til landsins. Ég malaði oft fyrir Siggu, því að amma mín bað mig að létta undir með henni, veslingnum. Amma vorkenndi henni, því að á hverj- um degi þurfti að mala hálfan fjórðung svo dygði í brauð og út á grauta handa 25 manns. Oft varð ég að fara upp í heiði til þess að rífa lyng handa kúnni og kindunum. Kúnni einni var ætl- að hey, en í harðindum vildi slæð- ast nokkuð af því í hesta og kindur, og varð því að rífa lyng líka handa kúnni. Mér þótti þetta leið atvinna, enda var það sú mesta rányrkja, sem hugsast gat, að rífa lyngið þangað til svart flag var eftir. Það er ekki von að Reykjanesskagi sé gróðurríkur, þar sem lyngið hef- ir verið rifið öldum saman jafn- skjótt og það reyndi að festa ræt- ur og skapa gróðrarmold. AUMK VUN ARVERÐ AR SKEPNUR Nú er ekki meira að segja af veru minni í Merkisnesi. Ég fór þaðan á lokadaginn og lagði land undir fót. Ég gekk yfir túnin í Staðarhverfinu og þótti mér þar ljótt um að litast. Vetur gamli hafði haft gripageymsluna fyrir bændur. Þar voru grindhoruð hross og eitt fallið úr megurð eða sandsótt. Strigi var saumaður utan um töglin á hrossunum svo að fé skyldi ekki naga allt hár af stert- unum á þeim vegna hungurs. Þar sá ég líka fé, sem klætt var í striga, því að það hefði etið ullina hvað af öðru. Síðan hélt ég að Hrauni í Grinda- vík til þess að hitta Pál félaga minn, því að við vorum sammælt- ir á leiðinni austur. En þegar ég kem þar hafði hann ráðið sig til sjóróðra og landvinnu á vorver- tíð. Þarna var ég um nóttina og svaf hjá Páli. Sagði hann mér þá að þar hefði gengið mikið á um daginn, áflog og ryskingar og hefði endað með því að einum hefði ver- ið skotið á hausinn niður í hland- forina. Sá hefði ekki verið frýni- legur, er hann var dreginn upp, en mesti vígamóðurinn var þá úr honum. Þetta voru lokin. LÖNG DAGLEIÐ Nú ætlaði ég að ná í Jón Benó- nýsson á Þorkötlustöðum og flýtti mér þangað í býtið morgun- inn eftir. Hann var þá farinn, en ég fékk þó samfylgd, þrjá karl- menn og sjóbúðar ráðskonu, sem ætluðu austur í Fljótshlíð. Hýrn- aði þá heldur yfir mér. Þetta var röskleika fólk að sjá og sýndist mér á ráðskonunni að hún mundi ekki verða eftir af okkur. En svo vorum við beðin fyrir 4 tryppi að rek^þau upp í heiði. Þau voru svo horuð og lúsug að við gátum ekki látið þau bera pokana okkar og losuðum okkur því fljótt við þau. Nú var sólskin og breiskjuhiti og tók okkur brátt að þyrsta. Ekki fundum við Drykkjarstein, því að nú var landið allt öðruvísi en um veturinn þegar hann stóð einn upp úr gaddinum og benti a sig. Þegar austur í Ögmundarhraun kom voru þar djúpar sporholur í klappirnar eftir hestafætur og líkt og þrep sums staðar, eins og stendur í gamalli vísu: Eru í hrauni Ögmundar ótal margir þröskuldar, sem fáka reyna fæturnar og fyrir þeim brjóta skeifurnar. í tveimur af þessum holum var mjög gruggugt vatn, en svo vorum við þyrst að við þurtæmdum þær og fengum þó ekki nóg. Ekkert gátum við talað saman fyrir þorsta, en þegar við komum til Krýsivík- ur fengum við sýrublöndu, — og mikill himnaríkisdrykkur var það. Síðan var haldið áfram austur í Herdísarvík. Þar ætiuðum við að matast, en það var ekki hægt fyrir mývargi og enginn maður heima, svo ekki komumst við í bæinn. Við héldum svo fyrir ofan vatn, til þess að losna við Vogsósana og komum að Stakkahlíð. Þar hvíldum við og átum. Þar lá í hlaðvarpan- um tryppi svo horað að það gat ekki staðið á fótunum, en annað skjögraði þar í kring um það. Svo var haldið austur að Ölfusá í sama steikjandi hitanum, og var ekkert lát á ráðskonunni og var þetta þó orðinn all langur og erfiður á- fangi. Hún gerði að gamni sínu og lét fjúka í kviðlingum, en heldur voru þeir grómkenndir. Við feng- um ferju í Óseyrarnesi og svo skildust leiðir á Eyrarbakka. Þakk- aði þar hver öðrum fyrir sam- fylgdina. Og mér fannst það vel af sér vikið af kvenmanni að hafa gengið á einum degi í óþolandi hita alla leið frá Grindavík til Eyrar- bakka. MAÐUR VERÐUR AÐ BJARGA SÉR SEM BEZT GENGUR Síðumenn, sem ég atti að verða samferða, voru famir fra Eyrar-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.