Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
59
hálfur lítri á dag. En árið 1952
kom fram í þinginu tillaga um að
hækka þennan skamt um helming.
En þá greip læknaráð hersins í
taumana og tillagan féll niður.
í þriðja lagi er hægt að auka
útflutning áfengis til nýlendnanna.
Árið 1950 var útflutningur áfengis
til Camerons t. d. sextíu sinnum
meiri heldur en hann var 1938.
En þegar almenningur heima í
Frakklandi, hermenn og nýlendu-
búar, hafa fengið eins mikið áfengi
og þeir geta torgað, og allt hefir
verið gert til þess að koma sem
mestu áfengi til annara landa, þá
eru þó enn eftir miklar birgðir af
áfengi í landinu, bæði hreinn vín-
andi og þrúguvín. Og um margra
ára skeið hefir stjórnin haft þann
sið, að kaupa þetta allt fyrir mark-
aðsverð.
Og henni hugkvæmdist snjall-
ræði til þess að losna við vínand-
ann. Það var ákveðið að bíleig-
endur skyldi kaupa hann, ekki til
drykkjar, heldur í stað bensíns á
bílana. En bílhreyflúnum varð
óglatt þegar þeir fengu vínanda
blandaðan olíu. Og svo varð þetta
eldsneyti dýrara en bensín. Það
reið þessari nýbreytni að fullu.
Enn getur stjórnin ekki losnað
við nema svo sem helming af
þeim vínanda, sem hún kaupir, og
verður þó að selja hann með lægra
verði en hún kaupir, til framleiðslu
á líkjörum og ilmvötnum.
Fram til skamms tíma var það
reglan, að stjórnin keypti allt það
vín, sem afgangs var á hverju ári,
og helti því niður. Þetta kostaði
franska skattgreiðendur um 20
milljónir franka á ári, og er sjálf-
sagt einhver sú hæpnasta fjár-
málapólitík, sem nokkur stjórn
hefir framkvæmt.
Þegar stjórn Laniels ákvað í
sumar sem leið að hætta að kaupa
það vín, sem ekki var markaður
fyrir, urðu vínframleiðendur ham-
stola. í Suður-Frakklandi svöruðu
þeir með því að koma með þús-
undir verkamanna sinna og láta
þá gera hindranir á öllum vegum
til þess að stöðva umferð, skrif-
stofum bæarstjórna var lokað og
franski fáninn dreginn á hálfa
stöng. Með þessu vildu þeir sýna
hvern hug þeir bæri til stjórnar-
innar.
Stjórnin hefir fram að þessu ekki
gert aðrar ráðstafanir en þær, að
fyrirskipa geymslu vínbirgðanna og
svo hefir hún veitt framleiðendum
lán, svo að þeir standist sölubrest-
inn. En jafnframt lætur hún vinna
að því að kappi í kyrþey að reyna
að finna einhver ráð út úr þessum
ógöngum þegar stundir líða.
En sá er hængur á þessu, að
vínframleiðendur eru mjög öflugir
innan franska þingsins. Þeir hafa
alltaf ráðið þar lögum og lofum og
engri stjórn hefir enn tekizt að
hnekkja valdi þeirra. Og svo halda
Frakkar áfram að framleiða meira
af áfengi en hægt er að selja, og
láta ríkið borga afganginn.
Það væri hægðarleikur að vinna
mikinn sykur úr uppskerunni, en
það dettur engum í hug, enda þótt
sykurskortur sé í Frakklandi og
þeir verði að flytja inn mikið af
sykri. Framleiðendur kjósa heldur
að framleiða iðnspiritus úr því, af
því að stjórnin kaupir alla þá fram-
leiðslu og lætur hella henni niður
að mestu leyti.
En svo vér hverfum aftur að
drykkjuskapnum, þá er hann þjóð-
arböl. Stjórnin þykist þó þurfa að
treysta á hann vegna ríkistekn-
anna. Áfengistollarnir nema nú
53—55 billjónum franka á ári. En
á hinn bóginn kostar þetta ríkis-
sjóð 130—135 billjónir franka á ári
í útgjöldum til sjúkrahúsa, fram-
færslu þurfamanna út af slysum og
vinnutjóni vegna dfykkjuskapar.
Og það er von að menn spyrji þá,
hvernig á því standi að þjóðin skuli
líða slíka vitleysu.
Hvers vegna hefjast blöðin ekki
handa? Meiri hluti þeirra þorir það
ekki, vegna þess að þau eru hrædd
um að missa þá áfengisauglýsing-
arnar. Og það þarf einnig hug-
rekki til þess að ganga í berhögg
við áfengisframleiðendur. Þeir eru
sterkir og hafa komið ár sinni vel
fyrir borð. Þó hafa nokkur blöð nú
þegar hafið harða baráttu fyrir
því að stjórnin taki rögg á sig í
þessu máli, einkum vegna þess að,
heilbrigði allra landsmanna sé
hætta búin. En þó er ástandið
þannig, að einn af ráðherrunum
varð nýlega að fara frá embætti,
vegna þess að hann hafði dirfzt
að standa uppi í hárinu á áfengis-
burgeisunum.
(Útdráttur úr grein í New York
Times Magazine).
v ' if.
HiamaL
'onV
Lognið gistir Litlatorg
langt írá hkfsins str: "i.
Reist er fögur barnaiorg
byggð í æsku-glaumi.
Lýsir glatt um Ljósatorg.
Lýtur tímans straumi
veik en fögur barnaborg
byggð í æsku-glaumi.
Út um mannlífs Miklatorg
mitt í hröðum straumi,
hrynur fögur barnaborg
byggð í æskuglaumi.
? TRYGGVI Á TINDUM.
!) . ...=r ■ iti*
5
Unga stúlkan var að læra söng og
hún sagði við kennarann:
— Segið mér nú hréinskilnislega,
haldið þér að hljóðin mín sé svo að þau
verði mér að gagni?
— Já, ef þér þurfið að hrópa á hjálp.