Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Page 11
ZZF f LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 63 -------íihii J »» mu ' • Ung stúlka á Iljaltlandi gefur heimalningnum að drekka. / Þeir á Papa Stour hafa enn varð- veitt sverðdansinn, sem sennilega er upp runninn í Noregi. En nú eru þeir, sem dansa hann, látnir tákna „sjö forvígishetjur kristindómsins“. Annar forn siður á Hjaltlandi er hin svonefnda „Up Helly A“ hátíð, sem haldin er í Leirvík seinasta þriðjudag í janúar ár hvert. Þetta er blysför, þar sem „Gissur jarl“, eða víkingahöfðinginn kemur á dreka sínum. Sennilega á þessi siður upp- runa sinn aftur í heiðni og stendur í sambandi við miðsvetrarblót hinna heiðnu manna, er hinni hækkandi sól var fagnað. Agætir vegir eru frá Leirvík í all- ar áttir um Hjaltland, en það er um 100 km á lengd og 40 á breidd, þar sem það er breiðast, en aðeins 50 metra þar sem það er mjóst, en það er á eiðinu hjá Mavis Grind. Þar er hægt að kasta steini frá Norðursjó út í Atlantshaf, eða frá Atlantshafi yfir í Norðursjó. — Svo skammt er milli stærstu eyanna, að daglegar bátferðir eru frá Hjaltlandi til ey- anna Yell og Unst. Við systir mín skruppum frá Leir- vík til Unst og er það 5 stunda ferð. Ókum við fyrst í bíl yfir öldumyndað mýrlendi og skerast þar inn langir og mjóir firðir eða sund. Á bæunum, sem við ókum fram hjá, var góð bygging, ýmist timburhús, múrhús eða steinsteypuhús, en gömlu bæirnir eru að hverfa úr sögunni. Móhlaðar voru víða fyrir dyrum úti, en hestar og kindur á beit úti í móum. Vatns- leiðsla og rafmagn er nú víða komið á bændabýli á Hjaltlandi og Orkn- eyum, en þó hafa margir bændur vindrafstöðvar. FARIÐ TIL UNST / Við stigum á ferjubát í Mossbank til þess að skreppa yfir sundið til Yell. Þetta er stór ey og er mikið hrossastóð þar. Þeir, sem ætla til Unst, fara á bíl yfir Yell og svo með annari ferju yfir næsta sund. Örnefnin hér, sem eru af norræn- um uppruna, láta einkennilega í eyr- um aðkomumanna. Yell, eða Jala er t. d. komið af sömu rót og danska nafnið Jellinge (Jalangur). Við komum til Bluemull Sound. Þar eru straumar miklir og þar rísa krappar bárur þegar Norðursjór og Atlantshaf takast fangbögðum hér við Hjaltlandseyar. Við fórum þar yfir á ferju og komum svo íil Unsc, sem er nyrzt af öllum brezku eyuu- um. Það er ekki ónýtt fyxn rw------------------------------ fræðinga að koma til Unst. Fugla- fræðingum þykir líka fróðlegt að sjá fuglalífið hjá Herma-nesi, og grasa- fræðingar geta fengið ao sjá þar margar sjaldséðar plöntur. Ungur grasafræðingur frá Unst samdi fyrstu „Flóru Hjaltlands“ og kom hún út 1845. Hann hét Thomas Edmondston. Hann hafði vakið athygli á sér þegar er hann var 11 ára, því þá fann hann hjá Baltasundi plöntu sem ekki hafði fyr fundizt á Bretlandseyum (aren- aria norvegica). Lady Franklin kom til Unst þegar hún var að leita manns síns, Sir John Franklin, sem hvarf ásamt leiðangri sínum. Hann hafði seinast lagt úr höfn að Straumnesi í Orkneyum. Það er einnig sagt að Lady Franklin hafi farið út í Ytri Stakk, sem er handan við vitann á Muckla Flugga, og leit- að þar. Við dvöldumst vikutíma á bónda- bæ hjá Eyasundi (Uyea-sundi) á sunnanverðri Unst. Hjónin þarna höfðu nýlega átt gullbrúðkaup. Hús- bóndinn var orðinn örvasa og lá í rúminu. Konan varð því að sjá um allt, sjá um gestina, halda húsinu þrifalegu, hugsa um skepnumar og gaioinn, eida mat og þvo þvott. Alit vatn varð’ hún að sækja í fötum til • -i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.