Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1954, Blaðsíða 14
| 66 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS f hann þá frétt, að Paulhan væri ^ þegar kominn til Lichfield. — Þá taldi hann sér ekki til setunnar boðið. Hann afréð að leggja á stað þegar um nóttina. Fjöldi blaða- manna var kominn þangað til þess að fylgjast með ferðum hans, og þeir reyndu á allan hátt að telja honum hughvarf. Það var ekkert vit í því að ætla sér að fljúga í niðamyrkri. Þá voru ekki til upp- lýstir flugvellir, þá voru engar j miðunarstöðvar og engin loft- f skeyti að leiðbeina flugmönnum. f Þeir sögðu blaðamennirnir að hann mundi blátt áfram drepa sig, fljúga á tré eða hús, eða nauðlenda í myrkri þar sem hann vissi ekk- ert hvað tæki við. En flugmann- inum varð eigi talið hughvarf. Þetta var eina úrræðið til þess að sigra keppinautinn. Og kl. 2 um nóttina var hann kominn á flug- völlinn. Hann var með skriðljós og byrjaði á því að rannsaka vand- lega það svæði, sem flugvélin varð f að renna eftir, áður en hún gæti r hafizt til flugs. Og svo ætlaði hann sér að hafa Ijósin meðfram járn- brautinni að leiðarvísi. Loft var skýjað og við og við duttu dropar úr lofti. Það benti til þess að rign- ing væri í aðsigi. Móðir hans var komin þarna til þess að kveðja hann. Hún reyndi ekki að telja honum hughvarf. a,Guð varðveiti þig, sonur minn“, úgmanTÍi símalína og há tré rétt handan við , ílugbrautina. En flugvélin komát Jjlaklaust yfir og hv'arf 'út ' í ínyrkrið. r vat *r’ Þessa sömu nótt hafði Paulhan látið vekja sig kl. 2.30 og síðan lagt á stað fyrir birtingu. Hann hraðaði ^pér svo mjög vegna þess, að þeir, sem höfðu fylgt honum út á flug- völlinn, sáu Ijós í lofti og kölluðu: „Þarna kemur White“. En þetta var aðeins morgunstjarnan. Vegna myrkursins lenti Paulhan á trjá- topp, en var svo heppinn að flug- vélin skemmdist ekki. Það lá og nærri að hann rækist á hús, því að eitthvert ólag var á hreyflinum og hann komst ekki eins hátt og hann vildi. Á flugvellinum í Manchester hafði fjöldi fólks safnast saman. Það beið og beið og var farið að óttast um að Paulhan hefði hent eitthvert slys. En allt í einu heyrð- ust drunur í hreyfli. Þar kom Paulhan og flaug lágt, ekki nema í 450 feta hæð. Hann renndi fcér glæsilega niður á flugbrautina og múgurinn ætlaði að ganga af göfl- unum af fagnaðarlátum. Paulhan hafði unnið glæsilegan sigur. Hann hafði flogið frá London til Man- chester, 185 enskar mílur, og ekki verið nema 4 klukkustundir og 2 mínútur á flugi. Það var frábært afrek á þeim árum. (Þessi vegar- lengd er tæpir 300 km. og hefir flughraðinn því verið um 75 km á klukkustund). Enn einu sinni hafði óheppnin steðjað að Graham White. Hann hafði neyðst til að nauðlenda hjá Polesworth, vegna smábilunar. Viðgerðin drógst meir á langinn, en hann hafði búizt við, og áður henni var lokið frétti hann að Man- ósigri a voru stg,d^ir hrópa húrra fyrir Paulhan. Graham White vissi manna bezt frvílik't afrek hinn franski flug- maður hafði af hendi leyst, — Kor.an mín getur þvælt um sáma efni klijikkustundum saman. — Mín þarf ekkert efni. arnciL liiaí Tveir drengir hittast. — Ég hef séð framan í þig annars staðar, segir annar. — Það getur ekki verið, ég hef andlitið alltaf á sama stað. Kennarinn: Hér er talað um hundagras. Getur nokkurt ykkar nefnt mér aðra jurt, sem kennd er við hunda? __^ Stjáni litli: Hundapest. *A Júlli kom heim úr skólanum og var gramur: — Kennarinn sagði okkur að einhver spekingur hefði sagt, að það serh væri vel gert þyrfti ekki að gerast nema einu sinni. — Heldurðu að það sé ekki rétt? spurði mamma. — Nei, hann hefur aldrei reitt arfa úr garði. Mamma og pabbi voru á skemmtigöngu með litlu dóttur sina. Rétt hjá veginum voru kindur í ullu. — Hvaða dýr eru þetta? spurði sú litla. — Þetta eru kindur. Nokkru seinna sáu þau gris og þá hrópaði telpan: — Nei, sjáið þið, þarna er kind sem er búin að þvo sér og greiða sér. Skólastjóri nokkur fann upp á ýmsu til þess að glæða athygl- isgáfu barnanna. Meðal annars sagði hann þeim einu sinni, að þau skyldu teikna myndir af því sem þau vildu verða þegar þau væri orðin stór, svo sem mynd af bílstjóra, lögregluþjóni, skip- stjóra, leikara, eða hvað þeim nú !) sýndist. Öll börnin skiluðu 3 myndum nema Dísa litla. | — Gaztu ekki teiknað mynd? ' spurði kennarinn. Hvað langar ? þig til þegar þú ért orðin stór? ) — Að giftast, en ég veit ekki hvermg a að feúa til mynd af því.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.