Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1954, Page 10
470
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
VINNTTDEILUR
Allmiklar vinnudeil - nrfl'i í ]-essum
mánuði. en leystust alle>' "p™ h'’að verk-
fræðingar hjá bæ og nki geró. verkfall
og var því ekki lokið.
VIDSKIFTASAMNINC \IL
Viðskiftasamningurin.i við C /ia, sem
gilt hefur að undanför.. 1, \ ;r í.. mlengd-
ur um eitt ár (2.)
Viðskiftasamningur var C:.ó.. Dani
og er hann mjög svipað ; ' samningi
er gilti seinasta ár U£ >
Þá var gerður viðskiitasainningur við
Rússa. Kaupa þeir aðallega fisk og síld,
en selja ýmsar nauðsynjavörur (22.)
SJÓMANNADAGURINN
var 13. júní. Þá lagði forseti íslands
hornstein að Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna í Laugarási og var mikil viðhöfn.
Var farið þangað í fylkingu og fremst fór
víkingaskip, mannað gömlum sjómönn-
um. Margar gjafir bárust Dvalarheimil-
inu við þetta tækifæri. — Sjómannadags-
ráð sæmdi Ólaf Thors forsætisráðherra
æðsta heiðursmerki sjómanna fyrir
drengilega liðveizlu hans við áhugamál
þeirra (15.)
LANDHELGISMÁLIÐ
Á fundi Evrópuráðsins báru fulltrúar
Eelga. Hollendinga. Frakka og Breta fram
tillögu um, að landhelgismál íslendinga
skyldi tekið fyrir á fundi ráðsins í haust.
íslenzku fulltrúarnir höfðu ekkert á móti
því, ef jafnframt yrði þá rætt um lönd-
unarbann Breta (3.)
HÆSTARÉTTARDÓMUR
í verkskiftingu íslenzkra ráðherra, sem
staðfest var með forsetaúrskurði, var svo
fyrir mælt að utanrikisráðherra skyldi
fara með öll mál varðandi setuliðið og
Keflavíkurflugvöll, og þar með ákæru-
vald hins opinbera á Keflavíkurflugvelli.
Út af máli, sem þar kom fyrir. og áfrýjað
var til Hæstaréttar, féll dómur svo, að
gildandi lögum væri ekki hægt að breyta
með forsetaúrskurði. En í lögum væri svo
ákveðið, að dómsmálaráðherra eigi einn
að fara með ákæruvaldið í landinu, og
þá einnig á Keflavíkurflugvelli (26.)
183 STÚDENTAR
útskrifuðust í þessum mánuði. 10 frá
Menntaskólanum á Laugarvatni (þeir
fyrstu frá þeim skóla), 21 frá Verslunar-
skólanum, 117 frá Menntaskólanum í
Reykjavík og 35 frá Menntaskólanum á
Akureyri.
HEIÐURSMERKI
Hinn 17. júní sæmdi forseti íslands
heiðursmerki Fálkaorðunnar: Árna Kristj-
ánsson píanóleikara. Ásmund Sveinsson
myndhöggvara, frú Guðrúnu Pétursdótt-
ur biskupsekkju, Hákon Bjarr.ason skóg-
ræktarstjóra, Lárus Pálsson leikstjóra,
Ólaf Lárusson prófessor og Tómas Guð-
mundsson skáld (26.)
STOFNANIR
Aðalfundur Verslunarráðs íslands var
haldinn í Reykjavík. Þar kom fram að
nauðsyn væri hér á fríhöfn, greiðari
skipafeiðum umhverfis landið og hraðari
tollskoðun (12.)
Aðalfundur Iðnaðarbankans var hald-
inn í Reykjavík. Bankaráð var endur-
kosið. Starfsemi bankans hefur gengið
ágætlega fyrsta áfangann (15.)
Aðalfundur Eimskipafélags íslands var
haldinn í Reykjavík. Samþykkt var
heimild handa félagsstjórn að láta smíða
þrjú ný skip og selja eldri skip ef hún
teldi það hagkvæmt. Bjarni Benedikts-
son ráðherra var kosinn formaður félags-
stjórnar. Samþykkt var að minnast 40
ára afmælis félagsins með því að gefa
50.000 krónur til menningar eða mannúð-
armála (15.)
Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna var haldinn i Reykjavík. Út-
fluttningur á frystum fiski árið sem leið
nam 36.431 smálest og var verðmæti hans
207Vi milljón króna (16.)
Prestastefna íslands, hin fjölmennasta
er haldin hefur verið, var háð í Háskólan-
um. í skýrslu sinni gat biskup þess, að 5
prestar hefði látist, 4 fengið lausn frá
embætti og 7 tekið vígslu á þessu synodus-
ári. Ellefu prestaköll eru nú óveitt. Aðal-
umræðuefni prestastefnunnar var af-
staða kirkjunnar til líknarmála (23.)
FRAMKVÆMDIR
Lokið er smíði á brú á Skaftafellsá í
Öræfum (1.)
Bæjarstjórn Reykjavíkur ákvað að láta
reisa tvo smábarnaskóla í sumar (4.)
Skógræktarfélag Árnessýslu hefur
keypt jörðina Snæfuglsstaði í Grímsnesi
til þess að koma þar upp trjárækt (9.)
Vinnuskóli Reykjavíkur leigði vb. Þór-
arinn, 45 smál., til þess að kenna ungum
piltum sjómennsku. Báturinn lét úr höfn
með 12 pilta (10.)
Nýu flutningaskipi Sambands ísl. sam-
vinnufélaga var hleypt af stokkunum í
Oscarshamn í Svíþjóð. Það hlaut nafnið
Helgafell (11.)
Hópur manna fór á Vatnajökul og hafð-
ist þar við í 10 daga við rannsóknir (25.)
íslenzkt félag tók við framkvæmdum á
Keflavíkurflugvelli í stað Hamiltonfélags-
ins, sem þar var áður. Formaður hins
nýja félags er Helgi Bergs verkfræðing-
ur (29.)
Kvikmyndatökumenn frá Bandaríkjun-
um, Svíþjóð, Þýzkalandi og Englandi voru
hér í þessum mánuði og tóku fræðslu-
myndir.
MENN OG MÁLEFNI
Margrét Ólafsdóttir í Vestmannaeyj-
um átti 100 ára afmæli (1.)
Dr. Richard Beek, prófessor í Grand
Forks og ræðismaður íslands í Norður-
Dakota, kom hingað til lands. Með hon-
um var kona hans. Þau ætla að ferðast
nokkuð um landið og síðan til Noregs (3.)
Thora (Gunnardóttiri Matthíasson, son-
ardóttir Matthíasar skálds, kom hingað
í söngför (5.)
Háskólinn opnaði merkilega bókasýn-
ingu í Þjóðminjasafni í tilefni af 1Q ára
afmæli lýðveldisins. Hlaut hún nafnið
„íslenzk fræði 1911—1954“ og má þar sjá
hve miklar eru að vexti bókmenntir um
þau fræði á þessum tíma (16.)
Halldór Halldórsson docent varði dokt-
orsritgerð um íslenzk orðtök við Há-
skóla íslands (17.)
Tónlistarhátíð Norðurlanda var sett
í Reykjavík. í sambandi við hana voru
nokkrir hljómleikar (13.)
Samúel Jónsson aldraður bóndi í Sel-
árdal í Arnarfirði, hafði sýningu í Rvík á
málverkum og listmunum eftir sig (17.)
Þýzkur prófessor, dr. Mai, kom hingað
til að kynnast beinkröm og berklavörn-
um (17.)
Fyrsta verk hins nýja biskups var að
vígja sex guðfræðinga og voru þeir þess-
ir: Bjarni Sigurðsson vígður til Mosfells
í Mosfellssveit, Grímur Grímsson til Sauð-
lauksdals, Kári Valsson til Rafnseyrar,
Óskar Finnbogason til Staðarhrauns, Þór-
ir Stephensen til Staðarhóls og Örn Frið-
riksson til Skútusatða. Vígslan fór fram
í dómkirkjunni 21. júní.
Stokkseyringar heiðruðu dr. Pál ísólfs-
son í tilefni af sextugsafmæli hans, með
því að gefa honum sumarbústað (22.)
Tveir starfsmenn brezka útvarpsins,
B.B.C. komu hingað til að taka á stál-
þráð „íslands lag“ líkt og Grímur Thom-
sen lýsir því, og fella það síðan við
fræðsluerindi um ísland (22.)
Séra Haraldur Sigmar frá Blaine og
kona hans komu í kynnisför og ferðuð-
ust um landið (23.)
Norskur píanósnillingur, Robert Riefl-