Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1954, Síða 11
% LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
471
frá Almennum tryggingum í tilefni af
10 ára lýðveldisafmælinu (19.)
i Almennar tryggiVigar gáfu >J5valarheim-
ili aldraðra sjómánna 10.000 kr. (20.)
ÝMISLEGT
Varðskipið Þór tók enskan togara að
veiðum í landhelgi á Þistilfirði eftir
nokkurn eltingaleik. Skipstjórinn neitaði
stöðugt sekt sinni, en var dæmdur í 74.000
kr. sekt og afli og veiðarfæri gert upp-
tækt (4.)
Bæarstjómin í Helsingfors hefur sent
bæarfulltrúum Reykjavíkur heimboð og
var því tekið (4.)
Viðskiptajöfnuður í apríl var hagstæð-
ur um 6,4 millj. kr. En frá áramótum var
viðskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 20,1
millj. kr. á móts við 112,5 millj. kr. í fyrra
(9.1
Visitala framfærslukostnaðar var 1.
júní 159 stig, eða einu stigi hærri en ver-
ið hefur (17.)
Kúadauði allmikill varð í Vcstur-Húna-
vatnssýslu og kenna menn um kjarr.alitlu
fóðri (20,1
Srrjörskammturinn var lækkaður um
helming. úr 500 gr. á mann í 250 gr. (20.)
Tvívegis í þessum mánuði var manns-
lífi bjargað vegna þess að nærstaddir
höfðu lært lífgun úr dauðadni. í fvrra
skifti var það barn. sem hafði kæft sig i
sængurfötum. en í hitt skiÞið skipstjóri,
sem varð fvrir kolsýrlings eitrun.
í Listamannaskálanum var hald>n al-
þjóðleg sýning á ævintýramyndum eftir
börn (20.)
Brezku út-
varpsmenn-
irnir taka á
stálþráð lýs-
ingu á há-
tiðahöldun-
um 17. júní
í Reykja-
vik.
ing, kom hingað og hafði hér hljómleika
(23.)
Jerauld Wright, yfirflotaforingi At-
lantshafsbandalagsins, kom hingað í op-
inbera heimsókn (24.)
Séra Jakob Jónsson var kosinn for-
maður Prestafélags íslands (25.)
Eggert Kristjánsson stórkaupmaður, var
kosinn formaður Verslunarráðs íslands
(26.)
Bandarískur orgelsnillingur, E. Power
Biggs, kom hingað og lék á orgel dóm-
kirkjunnar (27.)
íbúar Reykjavíkur reyndust vera
62.030 við seinasta manntal (27.)
Barnakór Akureyrar kom heim úr vel
heppnaðri söngför til Noregs (29.)
Haraldur Björnsson hlaut verðlaun is-
lenzkra leikdómenda fyrir beztan leik á
árinu (29.)
AFMÆLI
Vinnuheimili S. í. B. S. á Reykjalundi
átti 10 ára afmæli.. Á þessum áratug hef-
ur félagið með aðstoð alþjóðar unnið
kraftaverk — komið upp stærra og full-
komnara hressingar- og vinnuhæli fyrir
berklasjúklinga heldur en þekkist í
nokkru öðru landi (4.)
GJAFIR
Blindravinafélagið fékk tvær stórgjaf-
ir, 10.000 kr. frá Guðrúnu Þorsteinsdótt-
ur (sem greiðast að henni látinni) og
15.528.30 kr. dánargjöf frá Hermínu
Björnsdóttur í Minneapolis (2.)
íslendingar í Bandaríkjunum gáfu
Bessastöðum brjóstmynd úr eiri af Sveini
Björnssyni forseta (17.)
Landgræðslusjóði barst 10.000 kr. gjöf
SÓLMYRKVI
varð 30. júní, almyrkvi á suðurströnd-
inni og í Vestmannaeyjum, en deildar-
myrkvi annars staðar á landinu. Eru nú
liðin 121 ár síðan almyrkvi á sólu sást hér,
en um 200 ár þangað til næsti almyrkvi
kemur. Myrkvi þessi fór yfir frá Ne-
braska í Bandaríkjunum austur yfir haf
um Norðurlönd, Lithaugaland, Rússland,
Iran og endaði í Indlandi. Víðs vegar á
þessu svæði var komið upp rannsókna-
stöðvum þar sem vísindamenn margra
þjóða athuguðu myrkvann. Rannsókna-
stöðin hér á landi var í Austur Landeyj-
um. Myrkvinn sást vel hér syðra því að
veður var bjart.
Skólaskipið
„Þórarinn"
lætur úr
höfn með
fyrstu sjó-
manna-
efnin.