Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1954, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1954, Qupperneq 16
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS f «76 r miðjan dag sáum við tvennt, sem hughreysti okkur. Annað var kind, fyrsta lifandi veran sem við höfð- um séð síðan við urðum að nauð- lenda, og vitnisburður um að ekki mundi ýkjalangt til mannabyggða. Hitt var vörðubrot. „Willy,“ sagði ég, „þetta vörðu- brot er sjálfsagt eitt af mörgum meðfram vegi, eins og sýnt er á r kortinu. Við ættum því að rekast r á annað vörðubrot bráðum og svo r hvert af öðru þangað til við kom- r um til bæa.“ Þetta reyndist rétt og r við fundum einnig götur þarna. r En það var nú samt einmitt í r þennan mund, að Willy settist og kvaðst ekki komast lengra. „Ég er þér aðeins til trafala,“ sagði hann, „því að ég get ekki lengur stigið í ólukkans fótinn. Ég ætla að bíða hér á meðan þú nærð í hjálp.“ Þetta var óðs manns æði, og það vissum við báðir. Willy mundi ekki lifa af að liggja úti þriðju nóttina. Við vorum enn langt frá manna- byggðum, og þótt ég kæmist þang- að þá voru litlar líkur til þess að hægt væri að sækia Willy fyrir kvöldið. Við þráttuðum um þetta nokkra stund. Seinast varð ég reið- ur og tók af skarið og sagði honum að ef hann gæti ekki gengið, þá yrði ég að bera hann. Þegar hann sá að mér var alvara, stóð hann þegjandi á fætur og staulaðist áfram, en það var auðséð að hann var að þrotum kominn. r r AJTÐ stauluðumst áfram nokkur r hundruð fet og hvíldum okkur r svo, og þannig gekk þetta koll af ' kolli. Ég var nú líka að verða upp- gefinn af því að bera baggann og styðja Willy. Sól var tekin að lækka á lofti og farið að kólna mjög. Við komum fram á háls nokkum, og þá sáum við hóp ríðandi manna koma á r móti okkur. Flugvélin okkar á sandinum, ljós- mynduð úr lofti af leitarflugvél. Flugvélin okkar hafði sézt og þessi flokkur var svo sendur á stað til að sækja okkur. Ég minnist þess enn að ég saup drjúgan teyg af óblönduðu rommi úr flösku, sem foringi leitarmanna rétti mér. Það logaði uppi í mér og svo færðist eldurinn niður í magann og alla leið niður í helkalda fætur. Við vorum nú settir á íslenzka hesta og svo var snúið við til byggða. Um nóttina gistum við í sæluhúsi. Þá nótt byrjaði að snjóa. Það mátti ekki seinna vera að okkur væri bjargað. Þegar við fórum að athuga landa- bréfið komumst við að raun um að við mundum hafa gengið allt að 70 km yfir fjöll og firnindi. Þá hafði verið mikið frost um land allt, jafnvel í Reykjavík, þar sem þó er tiltölulega hlý veðrátta. Uppi á öræfunum hefur frostið verið mörgum sinnum meira.Við höfðum vaðið þrjár jökulár og margar smærri ár. Willy var fluttur í sjúkrahús og lá þar um hríð, því að hapn fekk lungnabólgu upp úr þessum hrakn- ingum. Flugvélin okkar liggur enn þar sem við skildum við hana skammt frá Hofsjökli, og mig lang- ar að skreppa þangað til þess að skoða hana. En þá skal ég fara ríðandi. ----- Myrkvar Tunglmyrkvi í þessari viku SÓLMYRKVI getur ekki orðið nema því aðeins að jörðin, tunglið og sólin sé í beinni línu. Þetta kemur örsjaldan fyrir, vegna þess að gangur jarðar um- hverfis sól er breytilegur og eins gang- ur tungls umhverfis jörðina. Ef sólin, jörðin og tunglið gengi öll eftir hring- brautum á sama sviði og með sama hraða, þá mundu sólmyrkvar verða með jöfnu millibili og ýmist verða deildarmyrkvar eða almyrkvar eftir því hvar skuggi tunglsins fellur á jörð- ina. Þótt stjörnufræðingar hafi af mikilli nákvæmni reiknað út gang himin- hnattanna, þá eru þeir þó ekki enn alveg vissir um að geta, reiknað rétt upp á sekúndu hvenær almyrkvi á sól hefst og hve lengi hann stendur. Það er vegna þess að tunglið er sá kenja- gripur, að ekki hefur enn tekizt að vita með fullri vissu hver er braut þess. Er þetta ein hin torráðnasta gáta fyrir stjörnufræðingana. — Stundum nær skuggi tunglsins 25.000 km út fyrir jörðina, en stundum vantar allt að 32.000 km á að hann nái til jarðar- innar. En skugginn, sem tunglið kastar á jörðina getur verið svo breytilegur, að stundum sé hann ekki nema ör- mjótt stryk, en stundum getur hann orðið um 260 km á breidd. Skugginn verður mestur þegar tungl er næst jörðu en sólin fjærst. En væri nú tungl- ið dálítið minna en það er, ef þvermál þess væri rúmum 200 km minna, þá mundi aldrei koma almyrkvi, því að þá væri tunglið ekki nógu stórt til þess að skyggja algjörlega á sólina. En nú kemur það einnig fyrir að jörðin er stödd milli tungls og sólar og kastar þá skugga sínum á tunglið. Það er kallaður tunglmyrkvi. Og á fimmtudaginn kemur verður tungl- myrkvi. Þann dag er fullt tungl og myrkvinn hefst kl. 23.09 og lýkur hon- um ekki fyr en kl. 1.31 um nóttina (sumartími). Tungl er um þær mundir í hásuðri frá Reykjavík, en mjög lágt á lofti, og er því hætt við að myrkvans gæti lítt. ------------? Ef æskan er óstýrilát, þá er það vegna þess að fullorðna fólkið er alltaf að siða hana í stað þess að gefa henni gott fordæmi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.