Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Blaðsíða 1
21. tbl. Sunnudagur 12. júní 1955 XXX. árg.
Sambandsslit Noregs og
Svíþjóðar fyrir fimmtíu árum
JJINN 7. júní 1955 voru 50 ár liðin
síðan sambandinu milli Noregs
og Svíþjóðar var slitið.
Við hliðina á 17. maí 1814, þegar
norska stjórnarskráin var staðfest
að Eiðsvelli, er 7. júní 1905 merk-
asta ártalið í nútímasögu Noregs.
Með sambandsslitunum við Sví-
þjóð endurheimti landið sitt fulla
frelsi og sjálfstæði, og endir var
bundinn á hið aldagamla ósjálf-
stæði þess gagnvart öðrum ríkjum,
fyrst gagnvart Danmörku á tíma-
bilinu 1536—1814, síðan gagnvart
Svíþjóð frá 1814—1905.
Árið 1905 var hin þjóðlega end-
urreisn, sem hafin var að Eiðsvelli
1814, fullkomið á sama hátt og
árið 1944 táknar fullkomnun hinn-
ar stjórnmálalegu þróunar, sem
hafin var árið 1918 á Islandi.
17. maí stjórnarskráin frá 1814
kveður svo á í 1. grein:
„Konungsríkið Noregur er frjálst,
sjálfstætt, óskiptanlegt og óháð
ríki“. —
í ákvæði þessu kom fram tján-
ing hinnar pólitísku hugsjónar, sem Hákon VII.
átti eftir að marka spor sín í Ev- (1953)