Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Qupperneq 2
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ■ 318 rópu-sögu 19. aldarinnar: Lýðræðishugsjónarinnar — hug- sjónarinnar um rétt fólksins til að vera óháð og ákveða fyrir sig sjálft. Þegar litið er á hina almennu þró- un sögunnar út frá atburðunum í Noregi 1905, kemur skýrt í ljós, að sambandsslitin voru í samræmi við hina ráðandi stefnu í Evrópu á undanfarinni öld — sigur lýðræðis- hugsjónarinnar yfir pólitískum erfðavenjum hins einvalda konung- dæmis. Bakgrunnur hinnar þjóðlegu sameiningarviðleitni og frelsisbar- áttu í hinum ýmsu löndum Evrópu á þessu tímabili sýnir einnig mörg sameiginleg kennimerki. Alls stað- ar grundvallast hin þjóðlega end- urreisn á stórbrotnu brautryðjenda -starfi á hinu menningarlega sviði. Með því að kynna sér hina fornu sögu lands síns og þjóðar, tungu og menningaar, gera þjóðirnar sér ljósari grein en áður fyrir sérein- kennum sínum, hinni sameiginlegu sögu og sérstökum menningarverð- mætum, sem tengir fólkið saman og gerir það að þjóð. — í Noregi er þetta brautryðjendastarf borið uppi af mönnum eins og Henrik Wergeland, Welhaven, talsmanni hinnar þjóðlegu-rómantísku hreyf- ingar, ævintýrasöfnurunum As- bjömsen og Moe, þjóðvísnasafnar- anum Landstad, málfræðingnum og skáldinu Ivar Aasen og svo sjálfu ævintýrinu í norsku andans lífi — Björnstjerne Björnson sem í orði og á borði er óaðskiljanlega tengdur hinni þjóðlegu viðreisn Noregs — bæði á hinu andlega sviði og því stjómmálalega. Samhengið í sögu landsins aftur til hinna fornu hetjutíma, sem geymzt höfðu í minningunni í Heimskringlu Snorra Sturlusonar, var nú endurnýjað og stuðlaði meira en nokkuð annað að því að styrkja sjalfsmeðvitund þjóðarinn- ar. _ .. . . Með stjórnarskránni frá 1814 og þj óðarsamkundunni, „Stórþinginu" var norska þjóðin á ný sjálfri sér ráðandi í innanríkismálum. Sam- bandið við Svíþjóð, sem var afleið- ing hins pólitíska umróts eftir fall Napoleons og ákvarðana stórveld- anna hafði það í för með sér að úr varð ríkjasamband milli Noregs og Svíþjóðar. Hið sænsk-norska sam- band var konungssamband milli tveggja ríkja með eigin stjórn, sem út á við komu fram sem eitt með hinn sameiginlega konung sem fulltrúa. Sambandið var þannig túlkað gegnum utanríkisstjórnina og utanríkisstörf erlendis. Konung- urinn fór með forystu utanríkis- mála sambandsins með fulltingi sænsks ríkisþings. Sænski utanríkis ráðherrann var utanríkisráðherra sambandsins og öll fulltrúa störf út á við voru í höndum sænskra erindreka og ræðismanna. Það er sérstaklega mikilvægt að benda á þessi atriði, því að það var einmitt ósamkomulag út af hinni sameig- inlegu utanríkisstjórn — eða nán- ara tiltekið „ræðismanna-málinu“, sem varð óbeinlínis orsök sam- bandsslitanna 1905. Frá 1814 og allt fram til loka aldarinnar var stjórnmálaþróunin í Noregi fyrst og fremst mörkuð af baráttunni milli norska „Stórþings- ins“ og konungsveldisins sænska. Afleiðingin af þessum árekstrum var hrörnun hinnar gömlu embætt- ismannastjórnar og þróun þing- ræðisins, þ. e. a. s. stjórnskipunar, þar sem hin ráðandi öfl ríkisins báru ekki lengur merki konung- legra embættismanna, heldur báru ábyrgð gagnvart þjóðkjörnu þingi, sem hafði traust þjóðarinnar. Sem sagt — stjórn ríkisins var valin úr meirihluta þjóðþingsins. — Þess- ari baráttu lauk 1884. Meðan á henni stóð höfðu fáar raddir kveðið upp úr með ákveðnum sambands- slitum, enda þótt átökin beindust ' ‘ i 1 ■ ’Z* óbeint gegn hinni sænsku yfirráða- viðleitni. Á síðustu áratugum sambandsins breyttist afstaðan. Stríðið stóð nú fyrst og fremst um skipun hinnar sameiginlegu utanríkisstjórnar og frá Noregs hálfu kom nú fram krafa um eiginn utanríkisráðherra. Vegna mótstöðu Svía var slakað til og farið fram á að Noregur fengi að hafa norska ræðismenn erlendis. Þessi uppástunga Norðmanna var sprottin af kröfu þeirra um jafn- rétti innan sambandsins, en það var einmitt á sviði utanríkismál- anna, sem misréttisins gætti. Á hinn bóginn var krafan um norska ræðismenn einnig runnin af raun- verulegri hagsmunabaráttu milli landanna. Þróun norskra siglinga- og verslunarmála gerði nauðsyn- ina fyrir sérstaka norska ræðis- mannsþjónustu enn brýnni en fyrr, ekki sízt vegna þess, að Svíar fóru aðrar leiðir í toll- og verslunarmál- um en þær, sem samrýmdust norskum hagsmunum. Við lok ald- arinnar var aðstaða Noregs í menn- ingarlegu, stjórnarfarslegu og fjár- hagslegu tilliti orðin slík, að grund- völlur var fenginn að fullkomnu sjálfstæði landsins. Hinir hörðu árekstrar, sem urðu út af utanríkisráðherra- og ræðis- mannamálinu á síðasta áratug ald- arinnar, gerðu Norðmönnum það æ betur ljóst, að lífdagar sam- bandsins hlutu að vera á enda og að það var aðeins tímaatriði, hve- nær kæmi til sambandsslitanna. Fyrsti stóráreksturinn varð árið 1895, þegar Óskar konungur II. neitaði að viðurkenna fjárveitingu Stórþingsins til að setja á laggirnar sjálfstæða norska ræðismannsþjón- ustu. Norski forsætisráðherrann neitaði að standa opinberlega gegn ákvörðun konungs og lagði fram lausnarbeiðni stjórnarinnar. Þar með var svo illa komið, að konung- inum var gert ómögulegt að mynda

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.