Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Síða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 325 hvað eð skeði á þennan hátt: Þegar hún, ásamt lestinni, var komin fram að ferjustaðnum, var það stærsta af ferjunarskipum þar til reiðu, sem í einum hasti allan far- angurinn tók (af 18 hestum) ásamt öllum mönnum, sem lestinni fyigdu (11 að tölu). Þessu fékk ráðið, ei án mótmæla þeirra, sem báru á skipið, óframsýni ferjumannanna, er ei litu til þess, að vindur stóð hvass frá útnorðri móti innfalli í ánni, sem örfaði vindbylgjurnar, hvers vegna vonum bráðar fór að gefa á skipið, þegar frá landi dró, er ei varð ausið, bæði vegna rúm- leysis og óaðgætni ferjumannanna að hafa ei til reiðu austurtrog. Gekk því á skipið meir og meir, þar til það loksins á miðri á sökk með mönnum og farangri, við hver atvik vor sæla systir innilega fól sig guði með hjartnæmum and- vörpunum, eftir sögn þeirra, sem nærstaddir voru og fyrir guðs að- dáanlega hlífð lifandi af komust, hverjir voru hennar hjartkær eig- inmaður, ásamt þremur öðrum, sem bjargað varð fyrir róggsama og mannkærlega tilhlutan Guðna nokkurs frá Geldingalæk á Rang- árvöilum, er með nokkrum mönn- um var að taka upp lest sína hinu- megin árinnar. Bak eftir komu menn á öðrum bát, er náðu til and- vana líks vorrar eftir þreyðu syst- ur, og jafnvel þó hún með fyrstu virtist ekki að öllu örend, þá var það meir ætlan en raun, sem sú nákvæma viðleitni síðar sannaði, er forgefins sýnd var til viðlífg- unar hennar þá ei nákulnaða lík- ama, sem meir og meir lét í ljósi þekkjanleg dauðans kenniteikn, er tóku af allan vafa um hennar við- skilnað undir kvöld þess 11. þessa mánaðar á hennar 47. aldurs ári. Á þriðja degi þar frá var hún kistu- lögð í viðurvist herra sýslumanns- ins Lýðs Guðmundssonar, samt hennar eigin skriftaföðurs síra Odds Jónssonar og þriggja presta annarra hennar tengdamanna, hverjir að síðan fylgdu hennar and- vana líki hingað austur að Reyni.“ ★ Þessi líkræðukafli þarfnast ekki margra skýringa. Eftirtektarvert er, að höfundur hans miðar við hin fornu fjórðungaskifti um Jökulsá á Sólheimasandi, er hann talar um Suðurland. Skriítafaðir Sigríðar, sem um ræðir var séra Oddur Jóns- son á Felli (f. 1734, d. 1814). Varnagli sá, sem séra Jón slær til að festa það, að allir félagar Sigríðar hafi verið með réttu ráði, bendir á, að margrætt hafi orðið um slys þetta þegar í upphafi og ýmsum getum leitt að orsök þess. Virðast leifar slíks orðróms hafa haldizt fram á þennan dag í mæltu máli. Eðhlegasta skýring þess for- sjárleysis, sem hratt ferjunni á flot 11. júlí 1800 mun mörgum virðasí liggja í hinum fornkveðnu orðum: „Ekki verður feigum forðað, né ófeigum í hel komið“. Guðni frá Geldingalæk, sem bar gæfu til að bjarga séra Markúsi og þremur félögum hans, mun hafa verið Sigurðsson, fæddur að Sand- gili á Rangárvöllum 1760. Margir núhfandi menn eiga ætt sína að rekja til Sigríðar Jónsdótt- ur. Fyrri maður hennar var séra Sigurður Jónsson á Heiði í Mýrdal, bróðir séra Jóns á Mýrum. Börn þeirra voru: 1. Sigríður, átti Jón hospitalshaldara á Hörgslandi á Síðu, Jónsson bónda í Varmahlíð undir Eyafjöllum Vigfússonar; 2. Ragnhildur, átti Einar Högnason stúdent í Ytri-Skógum; 3. séra Sig- urður í Guttormshaga 1 Holtum, átti Sigríði dóttur séra Jóns á Mýr- um. Með séra Markúsi átti Sigríð- ur eina dóttur, Sigríði konu séra Þorláks Loftssonar að Móum á Kjaiarnesi. Fáir prestar 18. aldar hafa orðið þjóðinni jafn hugstæðir og séra Jón Steingrímsson. — Nokkuð af frægð hans hefur fallið í hlut dætra hans. Með vissum hætti segja þau áhrif til sín, er hugurinn reikar til konunnar, sem fól anda sinn guði í bárum Ölfusár árið 1800. Þórður Tómasson. (T^S®®<sX2>^ Um hjortasjúkdóma í ungbörnum jyjÖGULEIKARNIR til að bjarga ungbörnum, sem fædd eru með hjartasjúkdómi hafa aukizt verulega upp á síðkastið. Á barna- spítala Louise drottningar í Dan- mörku hafa farið fram nákvæmar rannsóknir á þessu sviði að undan- förnu og í nýu hefti af „Vikuriti lækna“ er kveðið upp með árang- urinn: Óhætt er að segja, að náðst hef- ur meira öryggi en hingað til hefur verið fyrir hendi í greiningu með- fædds hjartasjúkdóms í ungbörn- um. Þessi góði árangur hefur náðst með nýrri tækni, sem læknarnir hafa notað, sem fólgin er í mörg- um sameinuðum rannsóknaraðferð- um. M. a. er nýu mótefni sprautað inn í hjarta barnanna. Börnin þola ágætlega þessa rannsókn. En hún er því miður mjög kostnaðarsöm, þar sem hún bæði krefst mjög dýrra tækja og þar að auki feyki mikils tíma frá hendi læknanna. Til hinna dönsku rannsókna hefur verið fengið að láni mjög dýrt og fullkomið tæki frá Svíþjóð. En árangurinn af þessu átaki hef- ur orðið sá, að mögulegt er að framkvæma uppskurð á miklu fleiri ungbörnum en áður sem fædd eru með hjartasjúkdómi — og mörgum barnslífum hefur þann- ig verið bjargað.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.