Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1955, Síða 14
f 530 " LESBÖK MORGUNBLAÐSINS Betlararnir í Moskvu eru ekki r með á þeirri mynd, sem útlend- ingum er sýnd. En þeir eru þarna og þeir virðast draga fram lífið á ölmusum við kirkjudyr. Þeir eru ekki hraktir þaðan, og þeir mega leita þar á náðir meðbræðra sinna. En listamenn nútímans eru ekki að festa hörmungarsvip þeirra á lér- eft. Þeir eru utanveltu í „raunsæi t Bocialismans“. Kirkjan var dimm, en hún var ► troðfull af fólki og þar var sterk r angan af reykelsi. Þarna voru að- r allega saman komnar gamlar og hrukkóttar konur, með skýluklúta yfir sér. Sumar voru með börn í fanginu og þær létu börnin kyssa myndirnar af Maríu mey og Kristi, r eins og þær væntu þess að þaðan mundi streyma hjálpræði til sín. En þarna voru líka nokkrir karl- menn og ungar stúlkur, og ég sá f óbifanlega von í augum þeirra. W Söngurinn hófst og hann var eins F ög sambland af kveini og fögnuði. t Skyndilega opnuðust dymar að r hinu allra helgasta, og prestur r gekk fram með yfirbreiddan bikar í hönd. Allir féllu á kné og þrýstu enni niður á steini lagt kirkju- gólfið. Ég var lengi þarna, altekinn af því andrúmslofti er þar var. Aldrei hefi ég verið við slíka guðsþjón- f ustu, aldrei orðið var við svo f brennandi, sára og örvæntingar- r fulla tilbeiðslu. Það var eins og kirkjan, með öllum sínum grísk- r kaþólsku launhelgum, væri orðin að katakombu, er menn hefði flúið til frá hinum kalda veruleika. Hún er einn hlutinn af Moskvu, l eins og borgin er í dag, en það mun f ekki þykja vert að sýna hana góð- r um gestum, sem komnir eru til J þess að efla menningartengsl við F Sovjetríkin. Hvaða hlutverki gegnir kirkjan í Rússlandi? Það er víst ekki stórt ^ Og hverfandi hjá því hlutverki, sem musterið á rauða torginu gegnir. Þar á ég við grafhýsi Lenins og Stalins. Á hverjum einasta degi er þar kílómetra löng þyrping manna, er sígur hægt og seint inn um hliðið. Þúsundir manna ganga á hverjum degi fram hjá smyrl- ingum þessara tveggja þjóðardýrð- linga, er sofa þarna í skuggahúsi, þar sem aðeins glerkistur þeirra eru lýstar upp með rauðum ljós- um. En þegar ég horfði á hin hörkulegu andlit þeirra, fór um mig líkt og kuldahrollur eilífs dauða. En þetta er hin helga gröf Sovjet, tilbeiðslustaður milljóna manna. CKAMMT frá kirkjunni er neð- ^ enjarðarstöð. Ég fór þar niður í svala marmarahallanna. Þegar ég kom upp aftur skammt frá Sovjetskaja, kom hitinn yfir mig sem reiðarslag. En allar götur voru fullar af fólki. Allar búðir voru opnar þótt sunnudagur væri, og fólk stóð þarna þohnmótt í löngum biðröðum. Ég gekk inn í matvælabúð, þar sem ösin var minnst, enda var þetta ein af sæl- kera-búðum stjórnarinnar. Hún var í gömlum borgaralegum stíl, með dökka veggi og rósmálað loft. Það er ekkert áhlaupaverk að versla þarna. Maður verður að bíða lengi þangað til afgreiðslu- maður kemur. Þá skýrir maður frá því hvað maður ætlar að kaupa. Hann skrifar það á blað og afhend- ir gjaldkera. Svo verður maður að bíða lengi til þess að komast að hjá gjaldkeranum. Harm reiknar út hvað maður á að borga, tekur við gjaldinu og afhendir manni reikn- inginn. Og svo verður maður enn að ganga í biðröð til þess að ná í afgreiðslumann og fá vörurnar af- hentar. Sænskar konur kaupa í slump- um til vikunnar. Efnahagur kyn- systra þeirra í Rússlandi leyfir ekki slíkt, því að matvörur eru þar dýrar, máske að undanteknu rúg- brauði, kartöflum og hvítkáli, en þetta er aðalfæða fólksins. Eitt kíló af rúgbrauði kostar 2 sænskar krónur, og það er ódýrt borið sam- an við verð á öðrum vörum í Rúss- landi. Mjólk kostar 2.85 s. kr. lítr- inn, sykur kostar 13,90 s. kr. kíló, kaffi 65, flesk 21, norsk síld 21.80, smjör 34.70, ostur 48.00. Þetta les maður á verðmiðum í gluggunum, og það sýnir að alþýða hlýtur að hfa við mjög bágborinn kost, mið- að við það sem er í Svíþjóð. En rússneska konan gengur þol- inmóð frá einni biðröðinni til ann- arar til þess að ná sér í svolitla klípu af smjöri, kartöflur og rúg- brauð, og hún heldur að hún lifi í því landi, sem bezt sé undir sól- inni, vegna þess að hún sé laus við fjárdrátt og atvinnuleysi, sem alls staðar fylgi auðvaldsskipulagi. Það, sem fyrir okkar augum er sárasta fátækt og vesaldómur, er í hennar augum árangur af yfir- lagðri framfaraviðleitni. Eða — getur skeð að í brjósti hennar leyn- ist, þrátt fyrir allt, einhver nag- andi órói út af því að svona eigi hið fyrirheitna land ekki að vera? EGAR ég kom aftur heim til gistihússins, rakst ég á eina af kanadisku stúlkunum þar í anddyr- inu. Þær voru nýkomnar úr skoð- unarferð. Ég spurði hvernig þeim hefði gengið um daginn. „Dásamlega", sagði hún. „Þetta er eins og ....“ Hún hikaði andartak til þess að finna hin réttu orð: „Allt er eins og draumur".

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.