Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1955, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
335
KáðbúsiA i Ósló
forstjóri „Reisetrafikkforeningen
for Oslo og omegn“ á móti okkur.
Það er kona og heitir Alfhildur
Hovdan, hinn mesti kvenskörung-
ur og alþekkt meðal borgarbúa
ekki síður en frægustu menn þar,
eins og sjá má á því, að í vetur
var þar lengi sýnd „revý“ þar sem
hún var aðal söguhetjan. Hún hafði
gert áætlun um dvöl okkar í CMó,
en þessi áætlun ruglaðist nú n<Pk-
uð vegna þess að við vorum á eftir
tímanum. En ekki lét hún sér það
fyrir brjósti brenna og gerði allt
sem í hennar valdi stóð til þess að
dvölin í Ósló yrði okkur sem á-
nægjulegust og við hefðum sem
mest gagn af henni.
Ógló er merkileg borg og ef til
vill merkilegasta höfuðborgin í
álfunni. Talið er að þar sé nú um
450 þúsundir íbúa, en borgin er svo
stór að menn vita ógjörla um flat-
armál hennar síðan Akurhéraðið
var samefnað henni 1948, en gizka
þó á að það muni vera rúmlega 450
ferkílómetrar. Aðalborgin er niður
við höfnina, en svo teygist hún
óravegu í þrjár áttir og hverfur
i slcógum, og mætti þvi vel kallast
skógarborgin, enda eru % aí borg-
arlandinu skógur. Hún er hjarta
landsins og þaðan liggja slagæðar
menningar og þjóðlífsþroska út um
allan byggðir. Þarna er aðseturs-
staður allra æðstu yfirvalda lands-
ins og þar eru hinar mestu mennta-
stofnanir. Þar er verslun mest og
iðnaður og þangað er mest sigl-
ing. Þar er höfuðmiðstöð sam-
gangna innan lands, þvi að þaðan
liggja vegir og járnbrautir í allar
áttir. Svo stór er Ósló, að ríkis-
jámbrautirnar hafa Bjö járnbraut-
arstöðvar innan borgar. En Ósló er
einnig merkileg að því leyti, að þar
er búskapur blónilegri en í nokkru
öðru héraði í iandinu. Hundruð
búgarða eru þar, mjólkurfram-
leiðsla mikil og ávaxtaframleiðsla
meiri nú en í Harðangri, þax sem
hún var mest áður. Þarna er og
m}kið skógarhögg. Ná saman hin-
ir miklu skógar borgarinnar og
skógar Mathiesens á Eiðsvelli. Hét
þar áður Vinguimörk og Eiðaskóg-
ur, sem kunnur er úr Egilssögu.
Landslag í borginni er afar fjöl-
breytt. Hún liggur að sjó, en þar
upp af eru hálsar og dalir með
hundruðum smávatna, er spegla
byggð og dökkgrænan skóg. Nokkr-
ar ár renna um borgina og eru
þeirra kunnastar Akurselfur og
Ló, sem borgin er við kennd. —. I
Ósló eru stærstu blöð landsins, þar
eru stærstu leikhúsin og stærstu
bankarnir.
Á landnámstíð hefir Ósló aðeins
verið bóndabær, en þess er getið í
sögu Haraldar konungs Sigurðson-
ar hins harðráða, að hann hafi efnt
til kaupstaðar austur i Ósló árið
1050. Var þessi kaupstaður fyrst
við ós árinnar Ló undir Eikibergs-
ásnum. Árið 1624 brann borgin til
kaldra kola og Kristján 4. Dana-
konungur, sem þá ríkti yfir Nor-
egi, ákvað að borgin skyldi byggj-
agt upp á öðrum stað, á bakka Ak»
urselfar undfr vernd Akurshús-
vígisms. Jafníramt ákvað hann að
þessi nýa borg skyldi heita
Kristianía og því nafni hét hún
fram á þessa öld.
VEGLEG MÓTTAKA
Frá flugvellinum var okkur ekíð
rakleitt upp í Hevtybyen á Frogn-
erseter, frægasta útsýnisstað borg-
arinnar. Þar hafði borgarstjórn
búið okkur kvöldverð. Þangað
komu þrír borgarstjórar Óslóar,
rektor háskólans og margt annað
stórmenni, auk i'jölda margra
norskra blaðamanna. Er það eins
dæmi að erlendum blaðamönnum
sé sýnd slík virðing, og bar það
ótvíræðan vott um vinsemd Norð-
manna í vorn garð.
Daginn eftir var farið með okkur
i ráðhúsið og þar tók Brynjolf Bull
borgarstjóri og forseti bæarstjórn-
ar á móti okkur. Hann er góður
vinur Gunnars Thoroddsens borg-
arstjóra í Reykjavík og sýndi okk-
ur alla alúð. Ráðhúsið er mikil
bygging með tveimur stórum turn-
um, er gnæfa yfir borgina. Það
var fullsmiðað árið 1950, á 900
ára afmæli borgarinnar, og eru
Óslóbúar mjög hreyknir af því.
Aðalsalurinn er gríðarlega stór og