Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Qupperneq 5
r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
489
Ifugao-fjölskylda á rísakri
jafn ógurlegir í útliti og þeir eru í
raun og veru.
í Manila er fólk af öllum teg-
undum og kynflokkum, eins og í
flestum stórborgum heimsins. Þar
er töluverður fjöldi af Vesturlanda-
búum og Ameríkönum. Borgarbúar
eru mjög blandaðir í útliti og þar
eru bæði Spánverjar og „mestisar“
þ. e. blöndun af Filippseyingi og
Spánverja eða öðrum hvítum
manni og dökkum.
flokkur, sem býr í og í nágrenni
Bentoc, höfuðborgar fjallahéraðs
þessa. Þeir eru duglegir, sjálfum
sér nógir að öllu leyti og búa í
smákofum úr hlöðnu grjóti og
mold með stráþaki eða reistir á
staurum. Þeir hafa rísakra og vinna
mikið í sameiningu. Gömlu menn-
irnir stjórna verkinu, en þótt und-
arlegt sé, stjórna konurnar þó
mestu og þær vinna mikilvægustu
störfin. Alls matar er aflað innan
heimilisins, hvort sem það er rís,
sætar kartöflur (camete) eða hæps
og svín. Dýrin eru þó oftast étin í
sambandi við trúarlegar athafnir,
sem fara fram er einhvern við-
burð ber að höndum, sem gæti
haí’a orsakazt af yfirnáttúrlegum
völdum, t. d. í sambandi við veik-
indi, dauðsfall, giftingu, við sán-
ingu og uppskeru. Fórnardýrið er
etið eitir athöfnina, og í sambandi
við fórnir þessar er einnig drukkfð
rísbrennivín, sem brug^að er á
staðnum.
Er ég og nokkrir Svíar vorum
á ferð um héruð þessi síðastliðna
páska, vorum við boðin með í slíka
fórnarveizlu, er við komum í þorp
eitt lítið. Lítill bolli var látinn
ganga milli fólksins með rísbrenni-
víni í og flestir af öldungunum lágu
í einhvers konar móki og ofurölvi
á jörðinni. Ég átti erfitt með að
súpa úr bolla þessum, því að allt
var þarna heldur óhreint og lyktin
óbærileg. Höfuðið af fórnardýrinu
var hengt upp á blótstöngina úti
í sólskininu og innyfli lágu á jörð-
inni, en öldungarnir höfðu áður
rannsakað þau og spáð um góða
uppskeru eftir þeim.
Fjallabúar
AF GÖMLUM menningarkynflokk
-um Filippseyinga eru þeir, sem
búa í fjöllóttum héruðum nyrðri
hluta Luzon, án efa markverðastir.
Há fjöll með djúpum árdölum hafa
skift fjallabúum þessum í flokka,
sem eru mjög ólíkir að tungu, venj-
um og menningu. Helztir af þess-
um kynflokkum eru: Bontoc-Igor-
ots, Ifugao-búar, Kalinga-búar
o. m. fl.
Þeir sem ég þekki bezt og ég hef
haft mest kynni af, eru Igorot-
menn frá Bentoc. Þeir leggja oft
leið sína til Baguio og ég hef heim-
sótt hin afskekktu héruð þeirra í
norðri. Bentoc-Igorotar eru þjóð-
Borgin Baguio er inai i landi og stendur hátt.