Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
493
Formenn norrænu
menningarmála-
neindarinnar:
Erik Lönnroth
(Finnland), Ólaf-
ur Björnsson próf.
(Island), II. M.
Hansen (Dan-
mörk), Ragnar
Edeman (Sví-
þjóð), Helge
Sivertsen (Nor-
egi).
það úr, að hækkað var verð á öllu
tóbaki um 10—15%, og verður því fé
varið til að bæta halla á útgerðinni,
ef hann verður, en nauðsyn var á að
þessar veiðar legðist ekki niður, því
að þegar hefir verið samið um sölu
á talsverðu magni af Faxasíld. Hófst
svo síldarsöltun syðra upp úr miðjum
mánuði, en afli varð fremur tregur
framan af.
Veiðarnar stöðvuðust og á Akranesi
og Keflavík vegna þess að verka-
kvennafélögin á þeim stöðum gerðu
verkfall og var því ekki lokið um
mánaðamói
Fyrstu togararnir fóru, til veiða
fyrir Þýzkalandsmarkað laust fyrir
mánaðarlok.
Fiskaflinn. á öllu landinu í lok júlí-
mánaðar nam 285.646 lestum, og er það
12.000 lestum meira en á sama tíma
í fyrra.
ÍMtÓTTIR
Meistaraflokkur KR fór utan til
þess að keppa í knattspyrnu í Sví-
þjóð (3.)
Handknattleiksflokkur norskra
stúlkna úr Grefsens ídrætslag í Ósló
kom hingað og keppti nokkrum sinn-
um og varð sigursæll.
Fimleikaflokkar frá Noregi komu
hingað og sýndu listir sínar (14.)
Skákmót Norðurlanda var háð í
Ósló og kepptu þar þrír íslendingar
í landsliðsflokki, en fjórir í meistara-
flokki, og stóðu sig ágætlega. Friðrik
Ólafsson og Bernt Larsen (Danmörk)
urðu efstir og jafnir í landsliðsflokki
og ætla að keppa um meistaratitilinn
í janúar í vetur. Ingi R. Jóhannsson
varð þriðji í þeim flokki. í meistara-
flokki var keppt í tveimur riðlum og
varð Lárus Johnsen efstur í sínum
riðli, en Ingvar Ásmundsson annar í
hinum riðlinum (25., 26.)
Friðrik Ólafssyni hefir verið boðið
Fulltrúar á fundi
Norrænu félaganna.
Myndin er tekin í
garði Alþingishúss-
ins.