Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1955, Page 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 497 Sigurður A. Magnússon Njdla í nýrri enskri útgdfu „The American-Scandinavian Fundation“ er, eins og kunnugt er, sú stofnun amerísk, sem mest og bezt vinnur að kynnum Bandaríkj- anna og Norðurlanda. Hefur hún haft forgöngu um mörg menning- armál í þessu augnamiði, gefið út norrænar bækur, séð um skipti námsmanna og staðið fyrir alls konar námskeiðum. Þannig var í fyrsta skipti á síðast liðnum vetri stofnað til námskeiðs í íslenzku við einn háskólann hér, og stóð þessi stofnun að því. Var þetta námskeið ætlað almenningi, og sóttu það menn af ýmsum sviðum amerísks menningarlífs, þeirra á meðal hinn Minkaplágan magnast óðum hér á landi. Carlsen minkabani hefir verið á ferðinni víða um land í þessum mán- uði og veitt minka. Víða hafa þeir valdið tjóni á veiðum, flæmt burt fugla og lagzt á hæns heima við bæi. Einn maður, Jakob Jónsson bóndi í Rifgirðingum á Breiðafirði, hefir ban- að 72 minkum í sumar. Enskt ferðafólk, karlmaður og tvær konur, ætlaði að fara á hjólum frá Tungnaá norður Sprengisand, fékk ó- veður á öræfum, viltist og náði við illan leik byggð í Skaftafellssýslu (23.) Prestafundur ins forna Hólastiftis var haldinn á Hólum og sátu hann 22 prestar (24.) Búnaðarblaðið Freyr átti 50 ára af- mæli (26.) Dönsk bókasýning var opnuð í Reykjavík (31.) Fimmtán verkamenn frá Akureyri hafa farið til Meistaravíkur í Græn- landi og stunda þar daglaunavinnu 4—5 vikur (28.) Markarfljót braut stíflugarð hjá Neðra Dal og flæddi yfir engjar (28.) I ' j kunni fræðimaður Henry Goddard Leach, heiðursforseti stofnunarinn- ar og Erik J. Friis, ritstjóri „The American-Scandinavian Review“, sem kemur út á hverju misseri. Er í ráði að halda íslenzku-námskeið- inu áfram á vetri komanda, ef nægileg þátttaka fæst. Skipti námsmanna hafa og verið snar þáttur í kynningarstarfi stofn- unarinnar, og hafa ýmsir íslend- ingar notið þar góðs af. Fjölmörg- um amerískum stúdentum og fræði -mönnum hefur á þennan hátt ver- ið gert kleift að nema á Norður- löndum og kynna sér norrænt menningarlíf. Merkasta starf sitt hefur þó stofnunin unnið á bókmenntasvið- inu, þar sem hún hefur gefið út fjöldann allan af norrænum ritum, annað hvort sjálfstætt eða í sam- vinnu við háskóla eða bókaforlög. Hefur hún þannig komið út álit- legu safni af íslenzkum fornbók- menntum í enskri þýðingu jafn- framt ýmsum merkum fræðiritum um þau, bæði eftir norræna og enskumælandi höfunda. Má af ís- lenzkum ritum nefna: báðar Edd- urnar, Vatnsdælu, Völsunga sögu, Hrafnkels sögu Freysgoða, Þor- steins sögu hvíta og Vopnfirðinga sögu. Er hér um mikilsvert starf að ræða, og ekki víst að íslend- ingum sé það ljóst sem skyldi,, hvað gert hefur verið á þessum vettvangi. Síðasta stórvirkið er ný og vönd- uð útgáfa af Njálu. Er hér um að ræða hið glæsilegasta verk að öll- um ytra frágangi, og hefur sýnilega ekkert verið til sparað að gera bók- ina sem eigulegasta, enda kostár hún fimm dali. Þetta er ný þýðing á Njáls sögu og gerð af tveimur kunnum fræðimönnum, Carl F. Bayerschmidt. sem veitir forstöðu deild germanskra mála við Colum- bia-háskólann í New York, og Lee M. Hollander, sem er prófessor í germönskum málum við Texas- háskólann. Hefur inn síðarnefndi gefið út þýðingar á forníslenzkum kveðskap, svo og rit um fornskáld- in, sem kom út á vegum stofnunar- innar árið 1945. Einnig hefur hann fengizt við þýðingar á nýrri ís- lenzkum bókmenntum, m. a. þýtt „Sverð og bagal“ Indriða Einars- sonar. Hollander ritar stuttan og greinargóðan inngang að inni nýu útgáfu Njálu, þar sem hann lýsir yfir þeirri áður alkunnu staðreynd, að málið á íslenzkum fornsögum sé dáð af öllum og ofurefli hver jum þýðanda. Verður það og snemma ljóst, þegar in nýja þýðing er les- in, en við nánari athugun verður það jafnljóst, að þýðendurnir hafa lagt sig í framkróka um að vanda verk sitt sem þeir máttu. Yfirlýst ætlun þeirra er að gera málið svo skrúðlaust og blátt áfram, að það nái blæ daglegs máls. Hefur þetta tekizt að nokkru — með þeim af- leiðingum þó, að tilþrif ins lak- ónska frumtexta hverfa að mestu. En bókin er læsileg hverjum, sem hafa vill, því þýðingin er þjál og eðlileg, og ekki er til þess ætlazt, að kjarnyrðum Njálu-manna verði snarað á erlendar tungur. Að mínu áliti tekur þessi þýðing fram hinni kunnu þýðingu G. W. Dasents, sem fyrst kom út í Edin- borg árið 1861 og síðar j Every- man’s Library 1911* Þar gætir mjög hástemmdrar orðgnóttar og tepru- háttar Viktoríu-tímabilsins, enda lét sá þýðandi sér sæma að breiða yfir eða hreinlega falsa sumar ber- söglustu lýsingar Njálu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.