Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1955, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBL'ADSINS
503
hvemig hann skyldi með mál sitt
fara.
Fyrst er nú það, að séra Þorgeir
skrifar amtmanni 9. ágúst og bið-
ur um að mega stefna til lögþings
Þorsteini Hákonarsyni, meðdóms-
mönnum hans og Brynjólfi Sig-
urðssyni sýslumanni fyrir það að
hafa dæmt sig í ígjalds og tvígjalds
bætur til Keflavíkurkaupmanns.
Var honum leyft það og kora málið
fyrir Alþingi næsta sumar. Kom
Jón Árnason, sem þá var nýbak-
aður sýslumaður Snæfellinga, þar .
fram sem verjandi lögsagnarans og
meðdómsmanna,, en Brynjólfur
sýslumaður Sigurðsson kom þar
fram fyrir sína hönd. Krafðist hann
þess, að málinu væri vísað frá,
vegna þess að höfuðaðili þess, Jo-
hannes Haagen kaupmaður væri
ekki stefndur. Út af þessu felldi
lögmaður og meðdómendur þann
úrskurð, að Brynjólfur væri aðeins
þangað stefndur til þess að verja
gerðir sínar sem sækjandi málsins
í héraði, og skifti það engu máli
þótt Haagen kaupmaður væri þar
ekki nær staddur.
Þá kröfðust þeir þess sýslu-
mennirnir Jón og Brynjólfur, að
sektirnar til kaupmanns væri
þyngdar, eða að héraðsdómurinn
yrði að minnsta kosti staðfestur.
Meðal dómsmanna á Alþingi var
Þorgrímur Sigurðsson sýslumaður
Mýramanna. Hann var sonur Sig-
urðar lögsagnara Sigurðssonar á
Brjánslæk og bróðir Guðmundar
sýslumanns, sem var á Ingjalds-
hóli. En sonur Þorgríms sýslu-
manns var séra Guðmundur Thor-
grimsson á Lambastöðum. dóm-
kirkjuprestur í Reykjavík. Það er
sagt um Þorgrím sýslumann, að
hann hafi verið dugandi maður, en
grunaður um græzku. Hann tók nú
til mals og benti á, að Byarskerja-
dómur væri sjálfum sér ósam-
hljóða. Hefði dómendur fyrst
dæmt alía buslóð sera Þorgerrs
undir konung, en síðan hefði þeir
gert séra Þorgeiri að greiða Kefla-
víkurkaupmanni háar skaðabætur.
Gæti allir séð að ekki kæmi til
mála að taka af því fé, er konungi
hafði verið tildæmt og fá það kaup-
manninum.
Lögmaður fann og aðra skekkju
í dóminum. Ekki mætti dæma í-
gjald og tvígjald nema í stuldar-
málum, og væri dómurinn því ó-
löglegur að þessu leyti og yrði það
ákvæði hans því að dæmast ógilt.
NÁÐUNARBEIÐNI
Nú er að segja frá þvi, að hiíin
11. ágúst 1753 skrifar séra Þorgeir
konungi og biður hann að. náða
sig, svo að hann missi ekki hönd
sína og æru. Bréfið er á dönsku og
svo hátíðlegt að ekki er gott að
þýða það á íslenzku. Þ.ó skal þess
freistað, bæði vegna þess að í því
eru ýmsar upplýsingar og svo ,vita
fæstir hvernig slíkar náðunar-
beiðnir voru stílaðar:.
— Eg undirritaður, Yðar kon-
unglegu Hátignar allra undirgefn-
asti, óverðugasti og stórlega nauð-
staddur þegn, Þorgeir Markússon,
sem seinustu sex árin hefi, með
Herrans náðugri hjálp, verið þjón-
andi prestur við Útskálaprestakall
í Gullbringusýslu, kem nú beygður
af smán og krýp að yðar konung-
legu Hátignar háloflegrar náðar-
tróni, harmandi og játandi það
stóra afbrot, sem ég framdi hinn
2. júlí s. L af fullkominni glópsku,
sem sé að stæla rithönd kaup-
mannsins í Keflavík og gerast
þannig falsari, og með því mdti
að hafa fengið úr búðinni kaup-
mannsvörur, sem metnar eru á 27
vættir 20 fiska, en fyrir þessa jrfir-
sjón var ég þegar eftir dæmdur af
hinum veraldlega rétti til ígjalds
og tvígjalds bóta, sem sé 73 rdl, en
fyrir þeim bótum hrekkur mitt
fátaeka bú alls ekki. Siðan var ég
hinn 7. þ. mán. dæmdur af hinnm
Reykingar
og krabbamein
AMERÍSKA krabbameinsfélagið
hefír nú um hálfs annars érs
skeið haft eftirlit með 18.000 full-
orðnum mönnum, sem reykja
mikið. Niðurstöður þessara at-
hugana eru nú þegar þær, að
af þeim mönnum, sem reykja tvo
pakka af sígarettum á dag eða
meira, hafa 90 sinnum fleiri dáið
heldur en meðal jafnaldra þeirra,
j sem reykja ekki.
Lungnakrabbi er þrisvar sinn-
um tíðari hjá þeim, sem reykja
tvo pakka af sígarettum á dag,
heldur en hjá hinum, sem reykja
einn pakka á dag eða minna
Hlutfallið ' er hið sama, hvort
heldur menn eiga heima i bórg,
bæ eða sveit.
Engar sannanir hafa fengizt
| fyrir þvi, að vindlar valdi
lutrgnakrabba. Pípureykingar
geta valdið lungnakrabba, en
langt um síður heldur en sígar-
ettureykingar.
Félagið segir, að aldrei sé of
seint að hætta að reykja, Enda
þótt menn hafi reykt lengi, geti
þeir forðað sér frá því að fá
lungnakrabba, ef þeir hætta að
reykja.
Vísindamenn við Sloan-Kett-
ering Institute í New York hafa
lýst yfir því, að krabbameinum
í hálsi muni fækka um 80%, e£
allir hættu að reykja. Þeir benda
einnig á, að áfengisneyzla auki
mjög hættuna á krabbameini í
hálsi.
Á fundi berklavarnafélagsins
ameríska (National Tuberculosis
Association) lýsti dr. David H.
■Waterman frá Knoxville yfir.því,
að læknar ætti að' harðbanna
sjúklingum með „bronchitis" að
reykja.
kírkjulega rétti frá kalli og em
bætti, og prestsetrið ásamt kirkju
og öllum gripum af mér tekið. Og
svo er ég þar að auki dæmdur til
þess að missa mína hönd og æru og
það lítið, sem eftir kynni að vera af
búslóð minni þegar sakarkostnað-
ur er greiddui’, ef yðar hátignar
allrahæsta Náð kemur ekki .í yeg
fyrtr þarra dóm og refsingu, sem