Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.1956, Page 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
/* —
11
tefli við þýzka meistarann Darga og í
þriðju skákinni sigraði hann Spánverj-
ann Delcorrel (30. og 31.) Seinast gerði
hann jafntefli við enska meistarann
Penrose. Stóð svo um áramótin að
hann var annar í röðinni.
safnað hálfri milljón króna til björg-
unarstarfs (15).
Ríkisútvarpið 25 ára. Var afmælis-
ins minnzt með sérstakri dagskrá þrjú
kvöld í röð (18.)
Landspítalinn 25 ára. Á þessum ald-
arfjórðungi hefur hánn tekið á móti
50 þús. sjúklingum. Nú starfar spítar-
inn í 5 deildum (20.)
MENN OG MÁLEFNI
Stúdentar í Reykjavík minntust full-
veldisdagsins með hátíðahöldum eftir
vanda (1.)
Brezkur þingmaður, Mr. George
Darling, flutti tvo fyrirlestra i Revkja-
vík uin nýlendutnál og kjarnofku (3.)
Sýning var höfð á handavinnu sjúk-
linga á Kleppi. Voru þar margir fagi ir
munir og seldist allt á sýningunni (3.)
Danir ætla að fara að koma upp
betra húsnæði fyrir Árnasafn (4.)
Dr. Páll ísólfsson var kjörinn heið-
ursforseti Tónskáldafélags íslands ævi-
langt (6.)
Suomi, finnsk-íslenzka félagið i
Reykjavík, minntist þjóðhátíðardags
Finna á veglegan hátt (8.)
Efnt var til samkeppni um leikþátt
til að sýna á Skálholtshátiðinni að
sumri, og hlaut séra Sveinn Víkingur
fyrstu verðlaun, sem voru 10.000 kr.
(9.)
Halldór Kiljan Laxness tók á móti
Nóbelsverðlaununum í Stokkhólmi og
helt snjalla ræðu við það tækifæri (11.)
Ólafur Lárusson prófessor var kjör-
inn helðursdoktor við háskólann í
Helsinki (15.) i
-sJ SáfáíS zVj i
liáfeSi a.
LISTIR
Sally White, 14 ára gömul bandarísk
stúlka og píanósnillingur, lék á hljóm-
leikum í Reykjavík, sem haldnir voru
til stuðnings Krabbameinsfélaginu (2.)
Örlygur Sigurðsson hafði málverka-
sýningu í Reykjavík (3.)
Bandarísk hljómsveit kom hingað og
lék tvívegis opinberlega til stuðnings
Flugbjörgunarsveit íslands (14.)
Jólaleikrit Þjóðleikhússins var Jóns-
messudraumur eftir Shakespeare, í
þýðingu Helga Halfdanarsonar lyfsala.
Kom hingað enskur leikstjóri, Walther
Hudd, til að setja leikinn á svið (20.
og 28.)
AFMÆLI
Sjómannafélag Reykjavíkur 40 ára
(8.)
Þjóðleikhúsið átti 5 ára afmæli og
minntist þess með útgáfu afmælisrits.
Um hálf milljón manna hefur sótt sýn-
ingar þess á þassum fimm árum (23.)
Slysavarnadeildln Hraunprýði í
Hafnarfirðí 25 ára. >mm detld hefur
Bruninn á
bókhlððustíg
i Reykjavík