Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1956, Blaðsíða 16
212
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
A Á 9 8 3
V G 10 5
r ♦ 10 4 2
* K G 9
A 7 4
V K 8 2
♦ Á K 9 f>
A Á 8 4 3
A K 6
V 7 4
♦ D G 8 7
6 3
A D 10 7
A D G 10 5 2
V Á D 9 6 3
♦ —
* 6 5 2
S fiaf og sagði spaða. V tvöfaldaði
op N tvöfaldnði aftur, en A sagði 2
tígla. Nú sagði S 2 hj., en V 3 tígla.
Sögnum lauk með 4 sp.
V sló út T K, en hann var tromoað-
ur á hendi. Út kom S D og A fékk
slaginn. Hann sló út tígli og S tromp-
aði, og svo kom tromp og var dreoið
með és í borði. Nú áttu andstæðingar
ekki fleiri tromp. og út kom H G, og
þann slag fékk V á kóng og sló út
tigli. Kn S átti enn tromp, og þar sem
hiartað var nú frítt, þá var spilið
unnið.
En svo þurfti ekki að fara ef A spil-
aði rétt. Þegar hann drap með S K
átti hann að slá út láglaufi. V tekur
með ásnum og slær út laufi aftur og
nú hlýtur A að fá slag á L D, vegna
þess að V hefir enn HK.
ÞÚFOI FTJw, JÓHAWSSON
hét bóndi. sem bjó á Óspakseyri
snemma á 19 öld og hafa margar
skrítnar sögur gengið um hann. —
Eitt sinn sem oftar varð hann heylaus.
Fór hann þá með uppáhaldshryssu sína
út á Bitrufjörð, sem var ísi lagður, og
batt hana þar við hafísjaka og mælti
þegar hann fór á stað með hryssuna:
„Hún er of lengi búin að þióna Þór-
olfi, til þess að hann láti hana deya
DANSKA KONUNGSFJÖLSKYLDAN — Hér á myndinni sjást þau Ingiriður
drottning og Friðrik konungur 9., ásamt dætrum sínum, en þær eru: Mar-
grethe ríkiserfingi (f. 1940), Benedikte (f. 1944) og Anne-Marie (f. 1946). Öll
eru þau í skrautlegum grænlenzkum búningum, sem Grænlendingar hafa gefið
þeim. Margrethe ríkiserfingi verður 16 ára inn 16. þ. mán.
úr hungri í húsum sínum“. — Hryssan
sást frá Þambárvöllum og var sótt og
fóðruð það sem eftir var vetrarins. —
(Finnur á Kjörseyri).
PARADlS
Með hverju vori hefst sá útileikur
barna, er þau kalla paradís eða parís,
og er alltaf jafn vinsæll. En hitt munu
færri vita, að það var Knud Zimsen
borgarstjóri, er fyrstur hóf þennan leik
hér á landi. Faðir hans hafði pantað
leikabækyr handa börnunum, aðra fyr-
ir stúlkur og hina fyrir drengi. í
drengjabókinni var lýst þassum leik.
Og svo var það einn haustdag 1883,
að Knud labbaði með krít niður á
Knudzonsbryggju í Hafnarfirði og
teiknaði þar fyrstu reitana. Bauð hann
öðrum drengjum í leikinn með sér, og
þótti þeim svo gaman, að „næstu daga
jörmuðu allir strákar í Firðinum um
krít, og það þótti enginn maður með
mönnum, hvorki fyrir sunnan læk né
vestan, sem ekki gat hoppað í para-
dís“.