Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1958, Page 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
247
þeir menn, sem hafa aflað sér þekk-
ingar, verða sammála um, að tvær
frumstæðustu skipategundirnar, eru
einhverjar hinar beztu í sjó að leggja;
þeim mun einnig finnast það senni-
legt, að á slíkum skipum hafi verið
farið yfir öll heimsins höf og fundin
öll þau lönd, er byggð voru, eða báru
þess vott að byggð hefði verið, áður en
fyrstu kunnir Norðurálfumenn komu
þangað. Slík skip eru útleggjara- kæn-
ur Suðurhafseyja-búa og húðbátar íra
og Eskimóa . . . Þegar vér höfum fyrst
sagnir af írum, voru þeir siglingaþjóð,
og O’Kelly hefir fundið nægar sann-
anir fyrir því, að meðan írar voru
meiri menningarþjóð en Bretar og
þeim fremri í siglingum, þá treystu
þeir mest á „curragh", enda þótt þeir
ætti einnig tréskip. Og samkvæmt
írskum sögnum hafa þeir allt fram á
6. öld treyst nær eingöngu á húðskip-
in til langferða . . . Nokkuð er á reiki
um hve margir menn hafi verið á
hverju skipi. Hornell segir að á ein-
um stað sé nefnd þrjú húðskip og 20
menn á hverju; á öðrum stað sé talað
um húðskip sem á voru 30 menn. . .
Þessi skip voru gerð úr nautshúðum,
sem sútaðar höfðu verið í barkar-
legi. . . Sagt er að St. Comgall hafi
sent Beoe á húðskipi til Rómaborgar
frá Bangor, til þess að ræða kirkjumál
við Gregoríus páfa. .. Maeldur, sem
unpi var á 7. öld eða í byrjun 8. aldar.
fór í langferð á „curragh" og hafði
með sér 63 menn“ (Greenland).
{ annari bók (Great Adventures and
Explorations) segir: „Um það leyti er
íslands er fyrst getið i írskum heimild-
um, var húðskipið, eða „curragh" tal'ð
bezt allra til langra sjóferða. — En
sagnir íra og rit geta ekki um það
hvort allar ferðir þeirra um norðan-
vert Atlantshaf voru farnar i „curr-
aghs“, en líklegast er það þó. því að
flest bendir til þess að húðskipin sé
bezt í sjó að legga allra þeirra skipa
er menn hafa fundið upp“.
T. C. Lethbridge segir 1 bók sinni
„Herdsman and Hermits":
„Curragh" er ótrúlega létt skip, svo
létt að það lyftist á bárum, sem mundu
færa stærri skip í kaf. Og vegna þess
hve létt það er, er það mjög hrað-
skreytt^ Það er alls ekki ótrúlegt að
slík skip hafi getað farið milli Skot-
lands og fslands á sex dögum. . . Það
hefir verið sjón að sjá er kristnu
munkarnir (Papar) sigldu norður í höf.
Húðskipið rann eins og stormfugl á
bárum hafsins. . . . Stýrimaður miðaði
stefnuna við það úr hvaða átt bárurn-
ar komu, og endrum og eins gat hann
stuðst við sól á daginn, eða stjörnur
um nætur. Gæti hann haldið þannig
stefnunni nokkurn veginn í norðurátt,
gat hann ekki farið fram hjá íslandi,
því að fjöllin þar eru svo há, að þau
sjást langar leiðir utan af hafi“.
Hér er því haldið fram, að Papar
hafi komið hingað á húðskipum, og þá
er líklegt að írskir landnámsmenn, er
hingað fluttust, hafi komið á slíkum
farkosti, enda þótt þess sé hvergi get-
ið.
í ritgerð sinni um siglingar á sögu-
öld (Safn IV.) getur Bogi Th. Mel-
sted um Ávang og skipasmíð hans í
Botni. Er hann ekki frá þvj að sagan
geti verið sönn, en segir að þess beri
gæta, að inn í Landnámsbók sé skotið
„ýmsum sögnum og þjóðsögum, sem
eigi eru allar jafnáreiðanlegar". Um
skipasmíðina þarf ekki að efast. Bónd-
inn í Hvalfjarðarbotni hefir smíðað
þar „curragh" og haft til kaupferða,
líklega til írlands. En um nafn bónd-
ans mætti frekar efast að rétt væri,
en hefði skolast í munni og meðferð,
nema um kenningarnafn sé að ræða.
Líklegt er, að í Botni hafi frá land-
námstíð verið hvíldarstaður ferða-
manna, eða áfangastaður. sem nú er
kallað. Slíkan stað kölluðu fornmenn
áívang. Því svipar furðanlega mikið
til nafns bóndans írska, Ávangur.
Getur ekki skeð að hann hafi fengið
það kenningarnafn af staðnum? Slíkar
nafngiftir voru til, sbr. Þórarinn
Króksfjörður.
Á.
Gerfitunglin
SPUTNIK I., sem Rússar skutu upp í
háloftin, vóg 184 pund, og komst í
nær 900 km. hæð. Hann lenti inn í
gufuhvel jarðar 4. janúar s. 1. og brann
þar upp til agna. Sputnik II., sem skot-
ið var á loft mánuði seinna vóg 1118
pund og í honum var lifandi hundur.
Hann komst í nær 1600 km. hæð. Nú
er hann einnig úr sögunni, brann ný-
lega upp til agna er hann barst inn
í gufuhvolfið. En nú eru tvö gerfitungl
Bandaríkjanna á lofti.
Fyrra gerfitunglið, sem nefnist
Explorer, vegur aðeins 30,8 pund. Því
var skotið á loft með 70 feta langri
þrefaldri rákettu af Júpítergerð. Sjálft
er það aflangt, 6 fet og 8 þuml. á lengd,
en 5 þuml. að þvermáli. Það fer um-
hverfis jörðina eftir sporbaug og
kemst í 2900 km. hæð. Búist er við
að það geti haldist á lofti allt að 10
árum, en þó getur verið að það komi
fyr inn í gufuhvel jarðar og eyðist
þá.
Seinna gerfitunglið, sem Bandaríkja-
menn settu á loft, heitir Vanguard og
vegur 21 pund, og getur verið árum
saman á lofti. Það er útbúið alls konar
rannsóknatækjum. Og bráðlega er von
á þriðja bandaríska gerfitunglinu, sem
vegur um 100 pund. Þetta eru tilrauna-
hnettir. Seinna á þessu ári gera Banda-
ríkjamenn ráð fyrir að senda á loft
gerfitungl, sem vegur nokkrar smá-
lestir.
Sputnikarnir gengu umhverfis jörð-
ina frá norðri til suðurs og lá braut
þeirra yfir Bandaríkin. En bandarísku
gerfitunglin ganga umhverfis jörðina
frá austri til vesturs og fara aldrei yfir
Rússland.
Hugvit Edisons
THOMAS A. EDISON er enn talinn
meðal fremstu hugvitsmanna heims-
ins. Hann lét sér ekki nægja að fást
við stórar uppgötvanir, ekkert var svo
fánýtt að hann reyndi ekki að endur-
bæta það á einhvern hátt. Þar á meðal
voru ýmis heimilisáhöld. Og sumarbú-
staður hans varð frægur fyrir þau
áhöld er hann hafði fundið upp til
þess að létta heimilisstörfin. Einu sinni
bauð hann nokkrum vinum sínum
þangað til að skoða þetta, og dáðust
þeir mjög að öllu. En einn sagði þó að
hann skildi ekkert í því að hugvits-
maðurinn skyldi ekki hafa betri grind
í hliðinu heldur en krosstré það, sem
þar var.
— Eg varð að taka á öllu afli til
þess að geta snúið krosstrénu, sagði
hann.
Þá brosti Edison glettnislega og
mælti:
— Þú gerðir annað meira — þú
dældir 30 lítrum af vatni upp í vatns-
geymi hérna á þakinu um leið og pú
snerir krosstrénu.