Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Qupperneq 1
11. tbl. Sunnudagur 5. apríl 1959 XXXIV. árg. Sigurður J. Árrtess: Ekki verður feigum forðað Náhljóðin 1910 SUMARIÐ 1910 stundaði eg sjó- róðra í Borgarfirði austur, og gerði þar út róðrarbát í félagi við Arnór Árnason lausamann í Garði. Hann var í landi, tók á móti aflanum og beitti sitt eigið bjóð. Við vorum oftast.þrír á, meðan róið var með línu, en það var um miðsumarið. Með mér voru valdir drengir og dugnaðarmenn, Guðmundur Vest- mann og Guðmundur Eyólfsson, báðir á bezta aldri. Stundum feng- um við fjórða manninn, Bjarna Jónsson á Gilsárvöllum, hann var afbragðs ræðari. Þetta sumar var ágætur afli, oft- ast nær hleðsluróðrar, og stundum urðum við að afhausa þann gula, svo að báturinn bæri aflann. Seinasta dag ágústmánaðar rer- um við þrír um miðnætti. Var þá kolsvarta myrkur og sá ekki neitt, nema hvað aðeins glórði í maur- ildið af árunum. Hvítalagn var á og ládauður sjór. Þegar við vorum komnir miðja vega út að Hafnarhólma, bárust okkur að eyrum undarleg og sker- Sigurður J. Árness andi hljóð innan fá hafnarlegunni. Þetta heyrðum við tvívegis. Eg lét sem ekkert væri, en mér virtist Guðmundi Eyólfssyni bregða mjög, en þó þagði hann. En Guðmundur Vestmann mælti: „Þetta eru fáheyrð læti og ömur- leg!“ Guðmundi Vestmann bregður ekki við allt, hann er einarður mað- ur og hetja, hverju sem mæta skal. Eg hafði tvisvar áður heyrt svip- uð hljóð og urðu þau fyrir mann- tapa í bæði skiptin. Þóttist eg því vita að þetta væri fyrirboði. Óðinn ferst. Sumarið eftir gerði eg út bát í félagi við annan mann. Hásetar mínir voru bræður tveir, ágætir drengir og duglegir, Magnús og Grímur Ásgrímssynir, bónda í Gljúfurárholti í Ölfusi, Sigurðsson- ar, Jónassonar. Þeir bræður áttu þá heima í Reykjavík. Þriðji mað- ur var Jón Bergsteinsson, Bjarna- sonar og átti líka heima í Reykja- vík. Annar bátur reri úr sömu vör og við. Formaður á honum var Sigvaldi Guðmundsson, ungur maður og gjörfulegur á velli, en virtist heldur fljótfærinn og ekki vel gætinn um sjósókn Var hann kappsamur um að afla sem mest. En bátur hans var lélegur og varla sjófær nema 1 sæmilegu veðri. Þegar nokkuð leið á ágústmán- uð, vildi Sigvaldi því skipta um bát. i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.