Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Blaðsíða 16
1M LESBÓK MORGUNBLAÐSINS BRIDGE 4t D 10 7 2 ¥ 9 6 ♦ A K 2 ♦ 10 8 7 4 * 9 ¥ K G 10 7 3 2 * 985 * G 9 2 ♦ A K 8 5 3 ¥ D 8 5 ♦ G 7 4 ♦ A K N V A S m u o * ¥ A 4 ♦ D 10 6 4 * D 6 5 3 Suður sagði 4 spaða og HG kemur út. A drepur með ás og slær út hjarta aftur. Þann slag fær V á tíuna og slær svo út fyK. Nú má ekki freistast til þess að trompa í borði, því að þá drep- ur A með hærra trompi, og síðan hljóta A—V að fá slag á tigul. Ekki er heldur rétt að drepa með S D og „svína“ svo S 10. Það getur verið hættulegt. Rétt- ast er að fleygja T 2 1 hjartaslaginn, því að þá er S viss um að eiga alla slagina, sem eftir eru, þar sem hann getur trompað einn tigulhund í borði. Þessa spilamennsku kalla menn að fórna slag til þess að losa sig við tap- slag. SÖGUFRÆGUR STADUR — Reynistaður í Skagafirði var upphaflega nefnd- ur Staður í Reynisnesi. Samkvæmt Eiríks sögu rauða bjó Þorfinnur karlsefni þar eftir að hann kom frá Vínlandi. Þar bjó og Gissur jarl Þorvaldsson sjö seinustu ár ævi sinnar, þar andaðist hann 1268 og var grafinn þar að kirkju. Áður en hann dó, gaf hann staðinn til klausturs, en það var ekki fyr en 1295 að Jörundur biskup stofnaði þar systraklaustur, og var það Benedikts- regla. Klaustrið var afnumið 1551 og eignir þess lagðar undir konung. Höfðu þá verið þar 12 abbadísir. Merkust þeirra var hin seinasta, Sólveig dóttir Hrafns lögmanns Brandssonar. Frá Reynistað voru þeir bræðurnir Bjarni og Einar Halldórssynir, sem úti urðu á Kjalvegl 1780. — Reynistaður er enn höfuðból og nú býr þar við mikla rausn Jón Sigurðsson alþingismaður. (Ljósm. Gunnar Rúnar). HERNAÐARTÆKI í ÓDÁÐAHRAUNI Sumarið 1944 voru þeir Ólafur Jónsson og Jón Sigurgeirsson á Akur- eyri á leið úr Herðubreiðarlindum til Öskju, og auðvitað gangandi. Sáu þeir þá glampa á eitthvað ljóst suður í hrauninu, er þeir vissu ekki hvað ver- ið gæti, og tóku stefnu á það. „Rétt á eftir sé eg útundan mér vírstreng, n liggur út og suður hraunið skammt -*u»tan við okkur, og fer okkur þá að gruna að hvíta skellan sé eitthvert mannvirki. Þetta reyndist líka loft- varnabelgur, og er vírinn, sem nær um 500 metra frá belgnum norður í hraun- ið, strengur sá, sem hann hefir verið festur með í sínu heimalandi. Hann hefir tekið niðri hér inni í Ódáða- hrauni og fest sig í þröngri hraungjótu. Þar með hefir lokið stefnulausri ferð belgsins yfir útsæ og öræfi og hermd- arverkum hans á síma- og rafmagns- lögnum. Enginn maður veit, hversu lengi hann kann að hafa svifið hér yfir úfnum hraunöldunum suðaustur af Herðubreið, þar til burðarmagn hans þvarr, svo að hann lagðist til hvíldar milli hraunhólanna. Belgurinn er nú nokkuð sandorpinn, en þó útþaninn af gasi á köflum“. — (Ódáðahraun). HELFREGN KOM SJALFKRAFA Haustið 1748 fór fimm manna hóp- ur frá Fjöllum í Kelduhverfi og lagði á Reykjaheiði. Þar var Þorsteinn Þor- steinsson skrifari hjá Jóni sýslumanni í Rauðaskriðu, og festarkona hans Guð- rún dóttir Bjarna Péturssonar sýslu- manns á Burstarfelli í Vopnafirði. Þor- steinn var bróðir Guðleifar húsfreyu á Fjöllum. Stórhríð brast á fólkið og varð það allt úti um nóttina. Fyr*t í stað átti að leyna Guðleifu á Fjöll- um hvernig komið var. Sagði hún þá að þess þyrfti ekki, því að hún vissi vel að fólkið hefði orðið úti. Kvað hún á hverju kvöldi Þorstein bróður sinn og fólk það, er með honum var, koma alklökugt þar inn í baðstofuna. STIGAHLÍÐ Utan við þorpið í Bolungavík gnæf- ir Traðarhyrna, en utan við hana heitir Stigahlíð, með snarbröttum skriðum og hamrabeltum. Var það mælt fyrrum að þar væri mjög reimt. A Stigahlíð er svonefndur ölvershaugur. Um hann eru þau ummæli, að þar hafi búið mað- ur að nafni Ölver, og sé hann heygður í haugi þessum. Skal hann vera einn þriggja bræðra, er þannig létu sig heygja að sá milli þeirra tveggja. Eru hinir þeir bræðurnir Flosi, sem heygð- ur er í Floshól á Hamarsfjalli á Langa- dalsströnd og Straumur, sem heygður er í Straumnesi norður. — (Frá Djúpi dg Strandum).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.