Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1959, Page 12
180 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS sýki fá menn og skepnur af biti tsetse-flugunnar. Venjulegar hús- flugur geta borið taugasótt, lífsýki, blóðkreppusótt, kóleru, Yaws, tra- kóma og berkla. Þær bera einnig með sér sníkjudýr, og sumir halda að þær útbreiði lömunarveiki. Svartidauði berst með flórn,, og rauðidauði, eða dílataugaveiki, berst með lúsum. Auk þess að vera hættulegir smitberar, valda skordýrin mönn- unum óskaplegu tjóni á hverju ári. Af öllu því, sem maðurinn ræktar, fer tíundi hlutinn í skordýr. Og á ári hverju valda skordýrin meiri skemmdum á skógum heldur en skógareldar og fúasveppar samtals. Sum skordýr hafa tekið sér bú- staði í vistarverum mannanna, og eru orðin að nokkurs konar „hús- dýrum“. Svo er um mölinn. Hann hefir fylgt mannkyninu frá alda öðli. Sennilega hefir hann borizt inn á heimilin með skinnum þeirra dýra, sem steinaldarmenn drógu í búið. Nú þekkist ekki viltur möl- ur, en heimilismölurinn eyðileggur á hverju ári fatnað, sem kostar hundruð miljóna króna. Frá því maðurinn kom fram hér á jörð og fram á þennan dag, hefir hann átt í látlausu stríði við skor- dýrin. Maðurinn komst snemma að því, að reykur fældi skordýr. Hann kynnti því bál fyrir framan hellis- munna sinn. Enginn var þá til að vara hann við því, að þetta gæti hefnt sín geipilega. En svo fór. Reykinn lagði inn í hellinn og hann fældi þaðan leðurblökurnar, er þar höfðu hafst við. En eftir varð í hellinum skordýr, sem lifað hafði á leðurblökunum. Og nú lagð -ist það á mennina þegar leður- blökurnar voru farnar, og hefir fylgt þeim síðan. Það er veggja- lúsin. Á ÞESSARI ÖLD hefir mikið ver- ið gert til þess að verjast skordýr- um. Menn nota flugnanet til að hlífa sér, og menn nota net fyrir glugga og dyr, til þess að varna skordýrum að komast inn. Og flugnapappír hefir átt sinn þátt í að eyða flugum, sem komast inn í ‘húsin. Meira er þó um hitt vert, hvað þrifnaður hefir aukizt mikið, því að hann heftir mjög viðkomu flugnanna. Þá segja og sumir að flugum hafi fækkað stórlega um leið og hestum fækkaði, en bílar komu í staðinn. Moskító-flugum var og víða útrýmt með því að hella steinolíu í fenin, 'þar sem þær hafast við. Á seinni árum hafa menn eink- um reynt að útrýma skordýrum með eitri. Um 1930 kom meðalið „pyrethreum“ og reyndist ágæt- lega sem flugnaeitur. Eins var um meðalið „rotenone“. Þessi meðul drápu flugurnar unnvörpum en voru óskaðleg mönnum. En smám saman vöndust flugurnar þessu, þær urðu ónæmar fyrir eitrinu og það beit ekki á þær. Fjölgaði þeim þá óðfluga aftur. Svo var það 1942 að hið fræga „DDT“ kom til sögunnar, og nú virtist svo sem menn mundu geta útrýmt flestum hættulegum skor- dýrum á nokkrum árum. Það var svo baneitrað fyrir flugur, að þær strádrápust ef þær komu inn í hús þar sem „DDT“ hafði verið stráð. Meðalið var einnig ágætt gegn lúsum, og í seinni heimsstyrjöld- inni tókst að koma í veg fyrir að hermenn sýktust af þeim plágum, sem lýs bera. En afturkippurinn kom fljótlega. Árið 1947 veittu menn því athygli í Ítalíu að meðal- ið hreif ekki lengur gagnvart flug- um, og árið eftir varð hins sama vart í Kaliforníu. Rannsóknir, sem þá voru gerðar sýndu, að flugurn- ar voru nú ekki aðeins orðnar ónæmar fyrir „DDT“, heldur alls- konar skordýraeitri sem áður hafði verið reynt með góðum ár- angri. Afkomendur þeirra flugna, sem höfðu þolað eitrið, voru alveg ónæmir fyrir því. Sama máli var að gegna um moskítóflugur, sem meðalið hafði verið reynt við. Þær urðu ónæmar fyrir því og öðrum eiturtegundum líka. Og nú þjóta þær að nýu upp í Ítalíu, Indlandi, Fiorida og Kaliforníu. Og svo urðu menn þess varir í Kóreustríðinu, að „DDT“ var ekki lengur einhlítt gegn lúsum. Ekki tókst betur til á öðru sviði. Menn fóru að nota „DDT“ til þess að útrýma þeim skordýrum er leggjast á ávexti og spilla þeim. Það gekk vel fyrst. En svo urðu þessi skordýr ónæm fyrir eitrinu og einnig fyrir öðrum eiturtegund- um, sem áður höfðu verið notaðar með góðum árangri til þess að halda skordýraplágunni í skefjum. Og nú stóðu menn berskjaldaðir fyrir varginum og fjöldi manna ’ Bandaríkjunum gafst alveg upp á ávaxtarækt. HÉR hafði skeð furðuleg breyting, en hún var auðskilin. Hér hafði ekki gerzt annað en það, að skor- dýrin höfðu vanið sig á að þola eitrið og afkomendur þeirra erfðu þann eiginleika. Og þar sem við- koman er svo óskapleg, þá var eng- in furða þótt skordýrunum fjölg- aði fljótt aftur. Nú er það svo alls staðar þar sem samfarir ráða tímgun, að þá erfa afkomendurnir sérstaka eiginleika frá hvoru foreldri, og nýir eigin- leikar koma fram við það. En svo getur líka verið um stökkbreyting- ar að ræða, þessar einkennilegu kenjar náttúrunnar. Og þeir ein- staklingar, sem hafa fengið þann eiginleika í arf,. eða með stökk- breytingu, að þola eitur, eru miklu hæfari í lífsbaráttunni heldur en forfeðurnir. Það eru þeir sem bera sigur af hólmi og auka kyn sitt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.