Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Page 1
32. tbl.
JltiirpmMiiMjM
Sunnudagur 25. september 1960 XXXV. árgi
Sólskinsdagar á Búðum
á Snæfellsnesi
Gististaðurinn á Búðum.
ÞAÐ mun hafa verið seint á árinu
1926 að lögfræðingur í Reykjavík
kom að máli við mig og spurði
hvort eg vildi gera félag við sig að
kaupa Hraunhöfn á Snæfellsnesi.
— Finnbogi Lárusson á Búðum
vill selja Hraunhafnarland og Búð-
ir með öllum húsum og inannvirkj-
um. Þetta eru kjarakaup og engin
útborgun, sagði hann.
í fávizku minni spurði eg hvað
staðurinn hefði til síns ágætis.
— Þú manst sjálfsagt eftir því að
þarna hefir verið höfn frá land-
námstíð. Hraunhafnaróss er getið
hvað eftir annað í sögum og að
skip komu þangað. Þarna er enn
höfn. Og svo eru landkostir ágætir.
Fé gengur þar svo að segja sjálfala
allan ársins hring. silungsveiði er
í ánni og kola- og silungsveiði í
ósnum. Þarna hefir verið verslun
frá upphafi og að staðnum liggja
tvær frjóvsömustu sveitir landsins,
Staðarsveit á aðra hönd, en Breiða-
vík á hina. Og svo er þarna ver-
stöð og fiskur gengur alveg upp
undir landið.
Þannig helt hann áfram um
stund að gylla kosti staðarms.
Ef eg hefði verið ríkur um þær
mundir, ef eg hefði átt eitthvað
meira en fötin sem eg stóð í, þá
getur vel verið að eg hefði orðið
eigandi að Búðum.
Þetta atvik rifjaðist upp fyrir
mér í sumar, er eg var að velta því
fyrir mér hvert fara skyldi í sum-
arleyfinu, og hugurinn hafði helzt
staðnæmst við Búðir. Þar er nú
gististaður, sem hefir fengið á sig
almenningsorð fyrir góðan greiða.
Og á Snæfellsnesinu er annáluð
náttúrufegurð og margt furðulegt
að sjá. Það var því ákveðið að fara
vestur að Búðum og kynnast þess-
um stað, sem gekk mér úr greipum
fyrir 34 árum.
— ★ —
Það er eitt af táknum hins nýa
tíma, að nú eru bændur farnir að
gera út á landi. Helgi bóndi í Gröf
í Miklaholtshreppi og synir hana