Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 469 væri vel aðsótt. Það var þeirra hagur. Til flutningsins voru höfð tvö skip, bar annað þeirra 11 hestb., hitt 15 hestb. (1500 kg.) Ennfrem- ur einn minni bátur tit smærri flutnings og við snúninga. arbakka og Stokkseyri óx umferð mjög yfir Þjórsá á Sandhólaferju, því viðskipti sín sóttu þangað allir Rangæingar og Vestur-Skaftfell- ingar, þar til farið var að versla í Vík í Mýrdal um 1895. Flestir þeir er þessa leið þurftu að fara fóru yfir Þjórsá á Sandhólaferju. Ferjuhaldið var kostnaðarsamt og ónæðissamt, ef fullnægt var skyldum þeim, sem á því hvíldi: — Útvega varð góð og sterk skip og halda þeim vel við, því þau vildu ganga úr sér og liðast sundur af þeim mikla og margbreytta flutningi, sem fluttur var, auk þess sem það varð að draga þau á ísi, sandi og grjóti. Líka varð að gæta þeirra vel fyrir vatnavöxtum og ofviðrum. Hvað mikið sem var að gera og hvernig sem á stóð varð karlmaður að vera tilbúinn að sinna flutningnum, því iila var það liðið, ef lengi þurfti að bíða eftir ferjunni. Að sögn elztu manna sem nú lifa og sjálfir fóru oft á ferju yfir Þjórsá á Sandhólaferju og heyrðu talað um ferjuhaldið sem einn meiri háttar atvinnurekstur þeirra tíma, ber öllum saman um að við Sandhólaferju hafi yfirleitt verið mestu þrek- og dugnaðarmenn, ár- vakrir, skylduræknir og úrræða- góðir. Eigendum ferjunnar var það líka metnaðar- og hagsmunamál að ferjuhaldið hefði gott orð á sér, og Vor og haust var umferðin mest. Þá var hún oft óslitin allan dag- inn, sérstaklega um lestirnar, seinni hluta júní og allan júlímán- uð, þegar allir sveitabændur fóru með ull sína (sem þá var aðal kaup- eyrir þeirra) og aðrar búsafurðir, í kaupstaðinn. — Skaftfellingar voru alltaf í stórum hópum og þeir efnuðustu með marga áburðarhesta í lest, er þeir fóru sína einu að- dráttarferð ársins til Eyrarbakka. Því fæstir fóru nema þessa einu kaupstaðarferð á árinu og tóku þá alla kaupstaðarvöru sem þeir þurftu eða gátu keypt til heimilis- ins það árið. — Það var ekki und- ur þótt lestir stóru og mannmörgu heimilanna væru nokkuð langar. Um lestirnar voru alltaf 5 valdir karlmenn við ferjuna. Þeir unnu oft hvíldarlaust frá kl. 6 að morgni Ferjuhumar austan Þjórsár. Lendingarstaðurinn var í vík þeirri, þar sem bátur- Inn er.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.