Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Page 12
472 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS fyrir hvem klyfjahest sem fluttur var. Einnig fengu þeir menn sem þá voru, af sama heimili, frían flutning, ef mennirnir voru ekki fleiri en áburðarhestarnir. Fyrir að skipleggja stórgrip voru borg- aðar 2 álnir (1 króna), fyrir lamb- ið 5 aurar, fullorðna kind 7 aur- ar. Þetta var ekki hátt gjald bor- ið saman við vinnulaun nútímans, en á þeim árum, sem þetta var, þeg- ar daglaun karlmannsins voru 1—2 kr., var þetta talin góð atvinna. Það hefði hún líka verið, þótt til- kostnaðurinn væri mikill, hefðu ferjutollarnir allir goldist ,en það bar út af því, meira vegna fátækt- ar flestra, en viljaleysis Nokkrir borguðu á ferjustaðnum samstund- is, en öðrum varð að lána, sem drógst að borga eða greiddist aldrei. Ferjuhamar er lágur klettarani, sem skagar út í Þjórsá austan meg- in. í hamrinum er hvylft með mjóu undirlendi, sem hægt var að láta farangurinn á þegar flutt var. Þar er svo aðdjúpt að skipin flutu vel að landi, þótt þau væru fullhlaðin. Á vorin og sumrin þegar hest- arnir voru reknir í ána að vestan og þeir komu upp úr henni kaldir og hungraðir, veltu þeir sér og voru fegnir að fá sér tuggu á ár- bökkunum, meðan lestamennirnir fengu sér matarbita og hressingu. Þá voru opnaðir nestispokar og kassar. Þeir voru æði mismunandi að fyrirferð og gæðum. Sumir fyr- irferðarlitlir með fábrotnum mat, aðrir fyrirferðarmeiri með mikl- um, kjarngóðum og fjölbreyttum mat. Þar var pottbrauð flatbrauð, soðnar kökur, harðfiskur, rikling- ur, smjör, reykt, saltað og vind- þurrkað kjöt, hleyptur, yztur, veld- ur ostur og mysuostur o. fl. En til að skerpa lystina og auka á- nægjuna var dreypt á Eyrarbakka kornbrennivíninu þjóðfræga, sum- ir með skyrhákarl, sem mörgum þótti eiga vel saman og fannst það bezta og nauðsynlegasta hressing ferðamanna. í Ferjuhamri var oft glatt á hjalla, þegar margir ferðamenn voru þar samtímis og gamlir og nýir kunningjar hittust. Þá var rabbað um daginn og veginn, hver sagði öðrum það sem við hafði bor- ið frá síðustu samfundum, talað var um tíðarfarið, skepnuhöldin, aflabrögð, vöruverð og almenn dægurmál. Höfð voru hestakaup og ýms önnur viðskipti. Það var þrasað, kveðnar rímur og sungið, sérstaklega þegar menn höfðu hresst sig á ferðapelanum. Þetta minnti á gleðskap í réttum á haustin. Ferjumennirnir íslenzku, sem fluttu yfir jökulvötnin breiðu og straumþungu og alltaf urðu að vera viðbúnir, þegar kallað var, hvernig sem veður eða aðrar að- stæður voru, hafa vissulega þurft að vera ólatir, vaskir og hugrakk- ir. Til þessa starfa voru valdir hraustir og harðsnúnir dugnaðar- menn, sem alizt höfðu upp við svip- uð vinnubrögð, svo sem sjóróðra, og vanizt þar áraburði, erfiði og misjafnri aðbúð. Það var góður skóli fyrir þá, sem tóku þetta erf- iða starf að sér. Þar höfðu þeir stælt og þjálfað þrek sitt og þol sem kom þeim vel við að hagræða þungum klyf jum í og úr skipunum, milli þess að þeir reru þeim hlöðn- um á móti straumi og stormi, oft með fleiri eða færri hesta á eftir, í 10—12 eða 18 klst. hvíldarlítið eða hvíldarlaust, oftast meira eða minna votir. Þá var ekkert til að skýla sér með nema það sem búið var til heima. Úr ull voru búin til góð skjólföt fyrir kulda, en þau voru ónóg fyrir vatni. Úr skinn- um voru búin til skinnklæði: skinn- sokkar, skinnhöld, brækur og skinnstakkar. Þau voru sæmileg ef ekki þurfti að nota þau lengi í senn, svo tími ynnist til að þurrka þau og bera á. Enn væru þau not- uð daglega entust þau illa, slæpt- ust, drógu vatn og urðu ónýt. Þeir menn, sem fyrrum unnu það þýðingarmikla starf að ferja yfir stóru árnar, sýndu oft í því fram- úrskarandi vaskleik og þraut- seigju í þeirri hörðu baráttu, sem þeir urðu að heyja, við hina dutl- ungafullu íslenzku veðráttu. Nú eru allir ferjumennirnir hér sunn- anlands horfnir yfir móðuna miklu. En nöfn þeirra og afrek lifa enn í þakklátum hugum mannanna, sem á ungdómsárum sínum nutu hjálp- semi þeirra og góðvildar. Hjálp- semi þeirra var kærkomin liðfáum ferðamönnum með langar lestir og mikinn flutning, sem flytja þurfti yfir ána á Sandhólaferju. Þessir ferðamenn þekkja bezt mismuninn á því að ferðast núna eða var fyr- ir 60—70 árum. Á síðustu áratugum ferjuhalds- ins á Sandhólaferju unnu þessir menn mest við flutninginn: Bjarni Filippusson bóndi þar og vinnu- mennirnir Magnús Magnússon, Pálmi Einarsson og Ólafur Guð- mundsson. Þeir voru mestu vask- leika- og dugnaðarmenn, skyldu- ræknir og hjálpfúsir og áunnu sér traust og hylli vegfarenda. Þekktastur þessara manna var Ólafur Guðmundsson (dáinn 1947) fyrir óvanalegt þrek og karl- mennsku, meðan heilsan leyfði, samfara sérstakri góðvild, greind, glaðværð og lífsfjöri, sem entist honum alla ævi, þrátt fyrir langa og mikla vanheilsu. Með brúnum á vatnsmiklu jökul- árnar hefur ferjustarfið horfið úr atvinnulífi þjóðarinnar. Þetta sér- stæða og þýðingarmikla starf, sem

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.