Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Side 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 473 Og nú er komin ný öld. Nú fara menn á vélbátum upp og niður Þjórsá til þess að veiða sel. Myndin tekin á gamla ferjustaðnum. um aldaraðir var stærsti og sterk- asti þátturinn í samgöngumálum þjóðarinnar. Það gerði mönnum mögulegt að ferðast landsfjórð- unganna á milli, sækja sér björg í bú og reka hin margvíslegu og örlagaríku málefni sín. Það tilheyr- ir liðna tímanum og verður aldrei endurvakið. En saga þess er svo einstæð og merkileg að hún má ekki gleymast. Hún verður að varð- veitast. VERNDARVÆTTUR FERJUNNAR Þau ummæli hafa fylgt ferju- staðnum að þar þyrfti ekki að ótt- ast um ferjubáta eða skip af völd- um vinda eða veðra, því ósýnileg ur verndarvættur verndaði þau frá því að fjúka, fljóta burt eða brotna af þeim sökum. Ekki er vitað hve- nær eða hvernig þessi ummæli eru orðin til. Líklegt má telja að ábúendurnir á Sandhólaferju og aðrir er að ferjustarfinu unnu hafi verið mis- trúaðir á ummæli þessi, og vegna þess og skyldu þeirrar og ábyrgð- ar er hvíldi á þeim við vinnu þessa hafi þeir gætt þess að treysta ekki á þau og ávallt gengið svo frá skip- um og bátum að þeim væri ekki hætta búin. Þessa varúð og aðgæzlu munu allir ferjumenn viljað við hafa. Þeir vissu hvað í húfi var ef út af bar, skipin flytu á burtu eða fykju og brotnuðu í spón. Þrátt fyrir það kom það oft fyrir að ferjubátar og skip fóru í árnar eða fuku í spón. Veðrabrigði landsins eru svo snögg og breytileg að oft er ómögulegt að sjá þau fyrir. Engin veit hvort eða hve oft bát- ar og skip hafi farið í ána eða fokið á Sandhólaferju í allar þær aldir, sem ferja var þar. Hins má geta að fullyrt er að þar hafi aldrei bátur eða skip fokið eða flotið burt í full 200 ár. Sömu ættmennin hafa búið þar í rúm 180 ár og fylgzt vel með helztu atburðum sem þar hafa gerzt allan þann tíma. Haustið 1893 eða 1894, þegar um- ferðin og ferjustarfið var í fullum gangi, var það einhvem dag að það hvessti mjög snögglega og gerði ofsarok. Allir karlmenn af báðum heimilunum (þar var tví- býli lengi) fóru vestur á Ferju- hamar til þess að hvolfa skipi, sem þar var og illa var gengið frá. Þeg- ar mennirnir komu að skipinu urðu þeir undrandi því skipið var á hvolfi óbrotið, óskaddað og ó- skrámað. Enginn skildi í atburði þessum og var oft um hann talað. Enginn heimamanna hafði hvolft skipinu. Leið um Ferjuhamar áttu ekki aðrir en þeir sem þurftu að fá flutning yfir ána. Það var held- ur engin barnaleikur að hvolfa skipunum þar. Þau voru tvö, bæði nokkuð stór og breiðbotna, bar annað 1100 kg. hitt 1500 kg. Þurfti því marga menn til þess að hvolfa hvoru þeirra svo þau skemmdust ekki, og það því fremur að mjög var grýtt þar sem þau voru. Þó að flutningurinn legðist niður á Sandhólaferju hafa bændurnir þar alltaf átt bát sem þeir nota við selkópaveiði á vorin og til að skreppa á út yfir Þjórsá. Þegar mikla rokið skall á hinn 24. október 1948 var Ingvar Hall- dórsson bóndi á Sandhólaferju staddur í Hala í Háfshverfi, sem er um 4—5 km. frá heimili hans. Á leiðinni heim í veðurofsanum var hann að hugsa um bát, sem hann átti, liggjandi á síðunni, í grjót- urðinni í Ferjuhamri, að hann hlyti að fjúka og brotna í spón. Ingvar stanzaði ekki heima, fer strax vestur í Hamar til að vita hvort hann sæi nokkuð eftir af bátnum. Þegar hann kemur þang- að sem báturinn var, þykir honum einkennilega við bregða, — bát- urinn er þar á hvolfi, óbrotinn og óskemmdur, í grjóturðinni. Þarna eiga engir leið um. Þeir sem vilja fara í Ferjuhamar þurfa að fara alllangan krók, fram og til baka,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.