Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Síða 14
474 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Núllið-sem TALIÐ er, að einhver merkileg- asta uppgötvun í stærðfræði sé sú, er menn fundu upp á því að hafa tölutákn fyrir „ekkert“. Sú upp- götvun hefir átt sinn stórkostlega þátt í að koma nútímatækninni á það stig sem hún er. Langt er síðan menn fundu upp á því að nota talnatákn, til þess að auðvelda sér reikning. Grikkir hin- ir fornu notuðu sérstaka stafi úr stafrófinu til þess að tákna tölurn- ar frá 1—10, og síðan sérstakan staf fyrir hvern tug. Ef þeir vildu t. d. skrifa töluna 238, þá byrjuðu þeir á tákni sem merkti 200, síðan kom tákn sem merkti 30 og seinast tákn fyrir 8. Þarmig gátu þeir skrifað þessa tölu með þremur táknum. En það var mikil minnis- raun að muna hvaða tölu hvert tákn þýddi, og vera viss um að nota rétt tákn. Því að alltaf bætt- ist við táknin eftir því sem tölur hækkuðu, og þegar gríska stafrófið hrökk ekki til, var bætt við öðrum táknum. Rómverjar fundu upp aðra að- ferð, og komust af með 7 tákn, svo að enginn vandi var að muna þau. Þeir létu vissa bókstafi merkja tölurnar 1, 5, 10, 50, 100, 500 og 1000. Töluna 238 skrifuðu þeir til dæmis þannig: CCXXXVIII. Það var auðvitað miklu auðveldara að því á milli vegarins heim að Sand- hólaferju og Hamarsins er 6-þætt gaddavírsgirðing með einu hliði, sem er um 600 metra frá Ferju- hamri. Þessa sögu hefi eg skráð eftir frásögn Ingvars Halldórssonar sjálfs. Guðjón Jónsson. táknar ekkert muna þessi tákn, en þegar um há- ar tölur var að ræða, voru þau ó- handhæg, og táknin reyndust mjög erfið í öllum reikningi. Þess vegna var fundin upp hin svonefnda talnagrind (abakus). Hún var þannig gerð, að í hana voru festir nokkrir vírar og á hverjum vír- streng voru 9 perlur, sem hægt var að færa fram og aftur. Hver perla hafði sitt sérstaka gildi, alveg eins og í talnadálkum nú, þar var ein- ing, tugur, hundrað o. s. frv. Talið er að Babylóníumenn hafi verið farnir að nota núll í sínum útreikningum 500 árum f. Kr., en þessi þekking breiddist ekki út til nágrannalanda, og hún féll í gleymsku þegar babylónska ríkið leið undir lok. Indverjar fundu upp núllið um 500 árum e. Kr. Þaðan breiddist þessi þekking út og um 800 var hún komin til Bagdad. Þaðan breiddist hún svo út með Múha- medsmönnum og varð kunnug í Evrópu um 1000. En hún átti þar erfitt uppdráttar, því að allir not- uðu þá hinar rómversku tölur og vildu ekki sleppa þeim. Það var því ekki fyr en um 1400, að vest- rænar þjóðir voru farnar að nota núllið. En það eru fleiri þjóðir, sem hafa heiðurinn af því að hafa fundið upp núllið. Maya-Indíánar í Miðameríku voru farnir að nota það fyrir nær 2000 árum, og að þessu leyti voru þeir þúsund árum á undan menningarþjóðinni Spán- verjum, þegar hún kom og lagði undir sig landið. Á seinni árum hafa fjölmargar merkilegar uppgötvanir verið gerðar vegna þess að menn höfðu núll í útreikningum sínum. Þær uppgötvanir hefði alls eigi verið hægt að gera, ef menn hefði aðeins haft rómverskar tölur til umráða. Hin örsmáu brot, sem nauðsynleg eru við útreikninga við smíði hinna nákvæmustu véla og áhalda, byggjast einnig á því að núll sé notað. Þar gildir ekki lengur kenning íslenzka skáldsins: Þótt núllin í þúsundum þyrpist í eitt og þar stæði einn ekki hjá, það gagnaði lítið, þau gæti ekki neitt, því að gildið af einum þau fá. En það er skrítið, þegar um það er hugsað, að öll vor menning skuli hafa verið svo mjög háð tákni, sem merkir „ekki neitt". Gunnarshólar og Fuglatjörn V E G N A getgátu minnar um Gunnarshóla í seinustu Lesbók, hafa margir hringt til mín og sagt að þeir muni vel eftir þessum hól- um. Þeir voru margir saman, vest- an við veginn, sem nú liggur niður í grjótnámu bæarins, og um það bil sem nú eru Balbobúðir eða þar rétt fyrir neðan. Hólar þessir voru brotnir niður þegar grjótnám hófst á þessum stað, svo að nú er aðeins einn þeirra eftir. Er það sá hóll, sem nú er nefndur Grjóthóll. Hól- ar þessir munu hafa verið merki- legir því að Guðmundur G. Bárð- arson fór stundum þangað með nemendur Menntaskólans í jarð- fræðitímum. — Ýmsir hafa sagt mér, að Líkatorfa heiti framan í Köllunarkletti. — Þetta styður enn að því, að landamerkin milli Laug- arness og Klepps hafi verið á þess-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.