Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1960, Blaðsíða 16
476 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS BRIDGE 3 A G V ÁKG84 ♦ G 8 7 5 *D64 6 5 3 Báðir voru utan hættu. N gaf og sagnir voru þessar: N A s V 1 lauf lhj. 1 sp. pass 1 gr. pass 4 sp. pass pass pass V sló út H 10, A drap með gosa og sló svo út kóng og ás. S drap ás- inn með S 6, V drap ekki en fleygði af sér tigli, og það var alveg rétt. S sló nú út trompi ,og eftir það gat hann ekki unnið spilið. Hanr. hefði átt að slá út laufi undir ásinn og trompa svo lauf Þá gat hann komið borðinu inn á S K og trompað lauf aftur. Og svo kemur hann borðinu inn á T Á og trompar enn lauf. Þar næst lætur hann T K og TD, en V drepur seinni slag- inn, og þá verður hann að slá út trompi svo að S fær báða slagina. A K V D 9 7 2 ♦ A 9 3 + A 10 8 7 A D 8 4 2 V 10 3 ♦ 10 4 2 * K G 9 5 A A 10 9 7 V 6 5 ♦ K D 6 ♦ 2 S V A N Ákvæðavísa tíyolfur Pétursson bjó á Rein 1 Hetranesi um og eftir 1800 við fátæki mikið, en var vitur maður og vel hag- mæ'tur. Um aldamótin rak hval að Fe.ii í Sléttuhlíð. Fóru flestir bændur úr Skagafirði á hvalfjöru þar á með- al Éyolfur frá Rein £n hann var svo snauður að hann gat ekkert keypt. Skurðarmenn leyfðu honum þá að reyta sér bita og bita er skornir voru utan af beinum, og fyilti Eyolfur belg BRÚARÁ HJÁ REYKJUM. — Á þessum stað á nú að koma ný brú á Brúará, og opnast þá vegur úr Laugardalnum austur að Geysi. Þegar svo komin verður sæmilegur akvegur frá Þingvöllum austur í Laugardal, um Gjábakkahraun, Reyðarbarm og Laugardalsvelli, opnast hér einhver hin fegursta og skemmti- legasta ferðamannaleið á landinu, en auk þess styttist leiðin frá Reykjavík að Geysi um mun. (Ljósm. vig) af hvalbitum. Þegar hann gekk upp úr Ijörunni mætti hann presti og réð- ist prestur að honum með illum orðum og kvað hann hafa stolið hvalnum. Lauk viðskiftum þeirra svo, að Eyolf- ur varð að hella hvalnum úr belgnum og fara með hann tóman. Var hann þá bæði hryggur og reiður og kvað vísu þessa til prests: Á þér hrína ósk mín skal, allir kraftar styðji, að gefi þér aldrei guð mirm hval, grátandi þótt biðjir. Þetta varð þannig að áhrínsorðum, að síðan hefir aldrei rekið hval á Felli (Sögn Pálma Jónssonar) Hofmóðugir gikkir Éinhverju sinni kom Látra-Björg að Moðruvöllum í Hörgárdal og var Stefán Thorarensen þar þá amtmaður. Honum var mjög illa Við aila umferð snauðra manna. Þegar hann frétti að Björg væri komin, hljóp hann út og vi'di hafa tal af henm, en hún heilsaði honum eins og hverjum óbrotnum al- þýðumanni og sagði: „Sæll vertu, Stefán minn“ Amtmaður reiddist og tók að ávíta Björgu bæði fyrir ókurt- eisi hennar og flakk, og hótaði henni hörðu, ef hún heldi slíku fram. Þá kvað Björg vísu þessa: Þó að gæfan mér sé mót og mig í saurinn þrykki, get eg ekki heiðrað hót hofmóðuga gikki. Að svo mæltu helt Björg leiðar sinnar, en amtmaður kallaði til hennar þegar hun var komin nokkuð út á túnið. Björg gegndi því engu. Amtmaður hljóp þá á eftir henni og skipaði henni að bíða .Nam hún þá staðar og sett- ust þau amtmaður niður. Þau ræddu san- an um hríð, og vissu menn ekki hvoð þeim fór á milli. Loksins hljóp anitmaður heim aftur og lét gefa Björgu ull og smjör allríflega (Eftir sögn gamalla Hörgdæla). Hallgerðarleiði í Laugarnesi er leiði Hallgerðar langbrókar. Það er sagt að tiún hafi beðið þess, að hún væri grafin þar, af því að hún hefði átt að sjá það fyrir að þar mundi siðar verða reist kirkja. Ekki er það satt að leiði hennar sé jafngrænt vetur og sumar þó sögur segi svo, en seinna fölnar þar gras á haustin en annars staðar á Laugames- túnum. (Jón Árnason) 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.