Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1960, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 633 15. Sigfús H. Bergmann, fyrr. kaup- félagsstjóri frá Flatey. 15. María Danivalsdóttir, Laufás- vegi 6, Rvík. 16. Pétur Pétursson, fyrrv. vitavörður á Malarrifi. 16. Sigurður Ág. Sigurðsson, Freyju- götu 9, Rvík. 16. Eyjólfur Magnússon frá Eskifirði. 16. Jón Sigurðsson, Hringbraut 82, Reykjavík 17. Sína Ingimundardóttir, Skafta- hlíð 12, Rvík. 18. Jakobína Jakobsdóttir, kennari, Reykjavík. 18. Þórarinn Björnsson, Ljósvalla- götu 12, Rvík. 19. Jóhann P. Jónsson, fyrrum skip- herra. 19. Helga Sigurðardóttir. 19. Arndís Þorsteinsdóttir, Tómasar- haga 55, Rvík. 20. Bjarni Magnússon frá Búðardal. 21. Valborg Elisabet Tærgesen, Flókagötu 27, Rvík. 24. Brynjólfur Stefánsson, fyrrv. forstjóri, Reykjavík. 24. Loftur Loftsson, útgerðarmaður. 27. Sigurður Sigurðsson frá Arnar- hvoli, Breiðdalsvík. 26. Ludvig Petersen, kaupmaður, Víðimel 45, Rvík. 28. Anna Sigfúsdóttir, Freyjugötu 8, Reykjavík. 29. Karólína Kristjánsdóttir frá Brimilsvöllum, Snæf. Englendingur fór að heimsækja hjón, sem hann hafði ekki séð lengi. Konan kom til dyra. — Sæl, Magga. gaman að sjá þig, sagði gestur. — Hvernig líður Jim? — Jim? endurtók hún Veiztu það þá ekki að hann er dáinn. Hann fór út og ætlaði að ná hv'tkál, en datt dauður niður einmitt þar sem þú stendur. — Það var hræðilegt, Magga. Hvað gerðir þú? — Hvað átti eg svo sem að gera? Eg varð að taka ipp niðursuðudós í mat- inn þann daginn. — • — Mæður sem segja að sér hafi a'ldrei dottið í hug að gera það, sem dætur þeirra leyfa sér, eru sárar út af því að sér skyldi aldrei hafa dottið það i hug. Jurtir hafa NÚ ER það sannað, að jurtir hafa tilfinningu, og sá sem hefir sann- að þetta er bandarískur kjarn- orkufræðingur, sem nú starfar í Bretlandi. Hann heitir L. Ron Hubbard, og við rannsóknir sínar hefir hann notað áhald það, sem nefnist „ósannindamælir“. Þessi mælir er notaður til þess að mæla geðshæringar manna og andleg viðbrögð og hefir því stundum komið upp um menn þegar þeir segja ósatt. Af því er nafnið dregið. Þegar dr. Hubbard kynnti vís- indamönnum uppgötvun sína, byrjaði hann á því að sýna hvern- ig áhaldið gæti sýnt hugarhrær- ingar manna og skapbrigði. Síðan tengdi hann það við tómat, sem hekk á grein í gróðurhúsi. Svo var prjóni stungið inn í tómat- inn, og um leið tók mælirinn við- bragð, nálin á honum byrjaði að skjálfa og titra og tók svo stökk upp á við. Þarna lýsir mælirinn hinum sömu viðbrögðum sem mundu verða hjá manni, er skyndilega væri gripinn dauðans angist, sagði dr. Hubbard. Þetta sýnir að jurtin hefir tilfinningu og kveinkar sér við sársauka. Eg hygg að vér verðum að komast í miklu nán- ara samband við gróður jarðar, en verið hefir fram að þessu, vér verðum að skilja líf jurtanna ef vér eigum að hafa þeirra full not. Þess vegna hóf eg rannsóknir mínar á sálfræðilegum grundvelli, alveg eins og gert er við menn þegar skilja skal viðbrögð þeirra. Jurtirnar eru mjög mismunandi, eins og mennirnir. Sumar jurtir eru góðar, aðrar vondar. Meðal tilfmningu Dr. Hubbard gerir tilraun á tómötum. vondu jurtanna eru eiturjurtir og dráptrén hjá Amazon, sem sitja um að vefja greinum sínum um háls manna og kyrkja þá. Og svo eru líka til kaktusar í Arizona sem skyndilega beygja sig og gefa manni högg. Þessar iurtir eru grimmar og illvígar. En svo eru góðu jurtirnar — þær eru ákaf- lega viðkvæmar og tilfinninga- næmar. Mig rak í rogastanz er eg uppgötvaði það. Þótt tilraunir dr. Hubbards sé enn á byrjunarstigi, telur hann að þær geti orðið mjög mikils virði fyrir mannkynið. Nú verði hægt að velja úr nýgræðingum þær jurtir, sem vænlegastar eru til þroska og geta borið mestan ávöxt. Með því að skilja tilfinn- ingalíf jurtanna geti menn vitað nákvæmlega hvort þeim líður vel

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.