Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1961, Blaðsíða 10
293 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS er fest, og fer 50 faðma, eðia net- lengdina. Haldið er svo áfram að kippa í strenginn þar til hinn veiðimaðurinn hefir heyrt ná- kvæmlega hvar „jiggerinn" er undir ísnum. Þar er þá brotin vök á ísinn og netið dregið á milli vakanna, og þannig gengur þetta koll af kolli. Flestir hafa dráttarvélar við veiðarnar. Sumir hafa búið sér til ísbor, sem er í sambandi við hreyfilinn, og bora með honum göt á ísinn á nokkrum sekúndum. Það er annað en áður var, þegar menn urðu að höggva vakir á ís- inn, sem oft var orðinn 4 fet á þykkt seinni hluta vetrar. Tveir menn geta varla vitjað um meira en 20 net á dag, og ef þeir hafa 150—200 net í vatninu, líður því oft vika milli þess sem vitjað er um. Fiskurinn er þó tal- inn óskemmdur að þessum tíma liðnum. Síðast liðið ár unnu um 6000 manns að fiskveiðum í fylkinu, og aflinn varð um 30 milljónir punda og áætlað verðmæti hans um 7 miljónir dollara. Fiskveiðar í vötnunum hafa ver- ið gott búsílag fyrir þá sem fyrst- ir settust hér að. Hvítfiskur var þá nógur og beztur til matar. Þá voru ekki til neinar reglugerðir um takmörkun fiskveiða, enda fór svo, að hvítfiskinum var útrýmt. Önnur fisktegund, „pickerel“, sem íslendingar kalla pikk, er nú verð- mætust, og í vetur sem leið voru greidd 40 cent fyrir pundið af honum upp úr vatninu. Hér eru líka margar aðrar tegundir, svo sem „sauger“, „pike“, „tullebee“, „goldeye", „perch“ og „maric“. Þessa síðast töldu fiska kalla landar keilu, enda eru þeir ekki óávipaðir íslenzkri keilu að útliti. En þetta eru skaðræðisfiskar, sem gleypa aðra fiska í heilu lagi og eta fisk úr netjum. Þykir keilan ekki mannamatur og er því notuð til minkafóðurs. Vegna ofveiði var farið að ganga á stofn pikksins allískyggi- lega. Þá var farið að reisa klak- stöðvar til þess að reyna að bjarga stofninum og veiðunum. Eina slíka klakstöð eiga íslending- ar og er hún við Álftaós hjá Manitobavatni. Þangað skulum við nú skreppa og skoða hana. ÞEGAR farið er frá Lundar niður að vatni, er ekin skemmsta leið í gegn um íslendingabyggðina og er hún um 15 km. Fyrst er haldið suður aðalbraut- ina, en síðan snúið til hægri og haldið fram hjá Laufási og síðan Borg. Sést þá heim að Lundi. Þar býr Árni útvegsbóndi og stundar kornrækt á sumrin en fiskveiðar á vetrum, og hefir nú að undan- förnu verið stærsti útgerðarmað- urinn hér um slóðir. Þegar komið er á vegarenda, er um tvennt að velja, að fara um hlaðið hjá Skúla Sigfússyni að norðan, eða Sigurði Sigurðssyni að sunnan. Heimili þeirra munu vera með þeim elztu hér um slóðir og báðir eru þeir landnemar. Þeir eru mágar, Sigurður og Skúli, því að Sigurður er giftur systur Skúla. Báðir eru þeir komnir yfir nírætt og að mestu hættir störfum. Synir þeirra hafa tekið við. Sigurður er ættað'ur úr Breiðafjarðareyum. Hann hefir verið yfirmaður klak- stöðvarinnar frá byrjun, en nú hefir Óskar sonur hans tekið við. Ekki verður nú mikið lengra haldið á bíl. Yfir engjar þeirra bænda, um 2 km., má þó komast í þurru veðri, en þá taka við skurðir og tjarnir, stórar og smá- ar. Landið hér er lítið hærra en yfirborð vatnsins og er það vaxið mannhæðarhárri stör. Hér verður því að stíga á skip og halda með því niður að Álftaósi, en það er um 4 km. leið. Á þessu fenjalandi veiða Lund- armenn vatnsrottur snemma á vorin vegna skinnanna. Góð skinn hafa að undanförnu verið seld fyrir 1 dollar hvert, og komið hef- ir fyrir að veiðimenn hafa fengið allt að 1000 rottur á veiðitíma- Séð inn í sal- inn þar sem hrognaglösin eru geymd.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.